Skólablaðið - 01.11.1958, Side 29
57 -
Ivars Orglands er því að mestu fólgið í
fyrirlestrum og kennslu fyrir almenningp
en þar fyrir þarf enginn að fælast B. A.
nám í norsku.
Spönskuk. var hafin hér við háskól-
ann á síðastliðnu hausti. Enn er því ekki
komið fast form á nám þetta. Jose F.
Romero, sem áður hafði lokið hér ísl. -
prófi fyrir erlenda studentas kennir
spönsku, og þarf enginn að forðast spönsk-
una af ótta við að skilja ekki kennarann.
Frönsku kennir nu Magnus G. JÓnsson,
menntaskólakennari. Er 1. stig upprifjun
á menntaskólakunnáttunni í frönsku, en þó
skulu lesnar um 600 -700 bls. á frönskum
texta. Er sagan Colomba eftir Prosper
Merimée þar á meðal, svo og ýmis frönsk
leikrit og ljóð. Stílagerð skal í l.stigi
aðallega beinast að höfuðatriðum beyginga
og setningarfræðinnar, en í 2. stigi eru
gerðar kröfur til aukins orðaforða nemand-
ans. Skal og þá lesa yfirlit yfir franska
bókmenntasögu og lestur texta verður um
1000 bls. 3. stig utheimtir allmikla leikni
í að skrifa og tala frönsku og skulu nú
franskar bókmenntir lesnar rækilegar
ásamt með franskri málsögu. Franskur
sendikennari starfar einnig við háskólann.
Leiðbeinir hann um framburð og daglegt
talmál.
Þyzkukennslan er svipuð. Ingvar
Brynjólfsson er hinn formlegi kennari, en
sendikennari leiðbeinir einnig. Allmikil
yfirferð mun vera í þýzkunáminu. Eru
lesnar bækur svo sem : Vom Baum des
Lebens eftir Hesse, Sagnasöfnin Stern-
stunden der Menscheit og Amok eftir
Zweig. Partur úr Faust eftir Goethe og
sýnisbækur þýzkrar Ijóðlistar og óbundins
máls. Málfræði er fyrst í stað dönsk :
Tysk Grammatik, en þegar fram í sækir,
lesa menn Geschichte der deutschen
Sprache. Ennfremur eru lesnir kaflar úr
ýmsum bókmenntasögum, svo sem
Deutsche Litteratur og Geschichte der
deutschen Dichtung eftir Frichse.
Latínu kennir Kristinn Ármannsson
rektor og er sú kennsla um margt lík því,
sem gerist í menntaskólum. Lesið er til
l.stigs 100 bls. af Caesar, 80 bls. af
Cicero og 30 bls. af Liviusi. Ennfremur
skal nú lesin málsaga og latnesk bók-
mennta og menningarsaga. 2. stig útheimt-
ir lestur á ritum Caesars, Ciceros og
Sallusts og skulu rit nokkurra silfuraldar-
höfunda lesín einnig. Á þessu stigi kennsl-
unnar er og Romverjasaga lesin. 3. stig
er beint áframhald með þyngdu námsefni
og bætist nú miðaldalatína við. Próf eru
bæði munnleg og skrifleg í öllum stigum.
Efnafræði og gríska eru í sérflokki
meðal B. A. greina. Strangt til tekið hafa
greinar þessar ekki verið kenndar innan
deildarinnar„ Engu að síður hafa menn
lokið prófum í þeim greinum með því að
stunda nám í þeim í öðrum deildum há-
skólans. B„ A. próf í efnafræði hefur
mönnum tekist að fá viðurkennt með því
að sitja eitt ár í læknadeild og Ijúka undir-
búningsprófi því, sem læknanemar Ijúka í
efnafræði. Mun próf þetta samsvara 2
stigum í B. A„prófi,og hirði ég ekki nánar
um að lýsa námi þessu, þar eð slík
fræðsla heyrir frekar undir læknastúdenta.
Grísku geta menn lært með því að
sitja í tímum með guðfræðinemum. Það
undirbúningspróf, er þeir Ijúka í grísku,
gildir sem 1 stig til B. A.prófs. Mál-
fræðikennslubók mun vera Græsk form-
lære eftir Berg og Hude og stuðst er við
uppskriftir kennarans, Kristins Ármanns-
sonar, rektors, í setningafræði. Lesið
er á grísku Anabasis eftir Xenópón, þó
ekki öll bókin, ennfremur Markúsarguð-
spjall allt og Varnarræða Sókratesar.
Á þessu stigi námsins er áherzla ekki
lögð á stílagerð. Kennsla til 2. stigs
mun vera að hefjast nú og er það nýlunda.
Áformað er að lesa eitthvað úr Hómers-
kviðum í þessu stigi, en óráðið mun enn
um annað námsefni. Geta má þess, að
áhugi virðist þó nokkur meðal stúdenta
almennt um grískunám.
Þá vil ég að síðustu drepa á eina
nýjustu greinina, sem kennd er innan há-
skólans, en það er svokölluð Bokasafns-
fræði. Björn Sigfússon háskólabókavörð-
ur kennir fag þetta og mun gert ráð fyrir
1 */2-2 ára námi til tveggja fyrstu stig-
anna. Grundvallaratriði fyrir námi þessu
er vinna í bókasafni og mun ekki hægt að
hefja nám nema menn hafi áður tryggt sér
atvinnu á einhverju safni hér í bæ„ Hin
verklega þjálfun skiptir hér mestu, en
hins vegar er bóklegt nám allnokkuð, og
léttist þó smátt og smátt eftir því sem
nemandinn kynnist betur starfsháttum
bókasafna. Aðaláherzla er lögð á kerfis-
bundna skráningu bóka og útheimtir það
allmikla þjálfun og er enda nokkuð stagl-