Skólablaðið - 01.04.1959, Síða 5
- 165 -
3)eus MöqUmvus.
FORSÍÐUMYND dro Kristján Thor-
lacius.
Skreytingar annaðist ritnefnd.
Aðrar myndir teiknuðu Gunnar Eyþórs -
er einmitt fólginn í reiði æskunnar.
En þrátt fyrir þessa margumtöluðu
reiði unga fólksins í dag, er ég þess
fuVLviss, að enginn okkar dimittenda mun
horfa reiður um öxl til þessa gamla
skóla, heldur ávallt minnast hans með
hlýhug og virðingu, einkum vegna þess,
að hann hefir kennt okkur að skoða alla
hluti í ljósi sannleikans og líta
bæri lífsins hlutlægum augum.
Að lokum vil ég fyrir hönd
sem nu kveðjum þenna skóla, þakka
rektor og kennurum samveruna og þraut
seigju og þolinmæði við að troða í o
fræðum sínum. Höfum við áreiðanlegá
oft og iðulega reynt í þessum ágætu
mönnum þolrifin með skilningsskorti
okkar og vankunnáttu. Vonandi uppskera
þeir ríkulegan ávöxt iðju sinnar eftir
tæpa tvo mánuði, er studentsprófinu lýk-
ur.
Skólafélögum okkar, sem eftir verða
hér í skólanum, þökkum við ánægjulegar
samvistir og samstarf og skemmtileg
kynni. Ég á þá ósk bezta ykkur til
handa og okkur sjálfum, að við reynumst
tru þeim anda, sem okkur hefir verið
innrættur í þessum skóla, þeim anda,
sem er aðall hvers sannmenntaðs
manns, að fylgja stefnu Ara hins fróða,
og hafa manndóm til að breyta eftir
sannfæringu okkar og leita sannleikans
í hverju máli. Verum þess einnig
minnug, að okkur ber að gjalda skuld
okkar við þjóðina, sem kostað hefir okk-
ur til mennta, með því að standa truan
vörð um íslenzka tungu, þjóðerni og
sjálf stæði.
Við árnum ykkur öllum og hinum aldna
og virðulega skóla allra heilla í fram-
tíðinni.
Jakob Ármannsson.
son og Hermann E. Hvalfjörð.