Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1959, Síða 12

Skólablaðið - 01.04.1959, Síða 12
•mrccttif ittd i ÍMIÍÍÍMI "YKKUR finnst hann vafalaust mikill hugvitsmaður," sagði professorinn, "maSurinn, sem gerði þetta furðutæki - forsjána, er gerir oss kleift að sjá og skynja löngu liðna atburði. En eg skal segja ykkur, að annar er honum fremri. Og nu ætla ég að sýna ykkur hann í forsjánni, mesta hugvitsmann allra alda. Gerið þið svo vel". * ---- * Tvær undarlegar verur berjast heift- arlega í skogarrjóðrinu. Þssr eru nakt- ar og berjast með kjafti og klóm. Við skynjum, áð þettk eru menn. Annar þeirra er mikill að vallarsýn með lang- ar og hvassar tennur. Hinn er lítill vexti og má sín augsýnilega minna. Báðir eru mennirnir nokkuð hærðir og minna í mörgu fremur á apa en menn. Þegar þeir hafa barizt langa strond, grípur sá minni til vopna herans og forðar sér, enda mjög af honum dregið. Hann hleypur góðan spöl og drepur hönd- unum á jörðina við og við sér til stuðn- ings. Loks hægir hann á sér og skjögr- ar nú áfram löturhægt, en áfram fer hann, áfram. Hann veit, að hann getur ekki sigrað óvin sinn, og vill því aðeins komast burt, burt. Hann sér ekki rótarflækjuna, sem ligg- ur yfir stíginn, festir því fótinn í henni og steypist fram yfir sig. Hann er líka allt of sljór og þreyttur, til að bera fyrir sig hendurnar, - alveg sama um allt og alla. ógurlegur drungi svífur á hann, og rauðar, bláar og grænar stjörn- ur dansa fyrir augum honum, - en honum er alveg sama, hann vill aðeins sofa. Sólin er komin hátt á loft, þegar hann vaknar. Svíðandi sársauka leggur um allt höfuð honum, og á enni sér finnur hann fyrir storknu blóði. Hann sezt upp og fer að hugsa um, hvernig hann eigi að ná hefndum á óvini sínum. Lengi situr hann og hugsar, en við fætur hon- um liggur blóði storkinn steinninn, sem hann hafði áður dottið á. Skyndilega fær hann hugmyndina, - hann urrar lágt og slær hendinni á steininn. Jú, það var sárt, og nú þyrfti hann ekki annað en gabba óvin sinn að steininum og láta hann detta. Á meðan óvinurinn Jægi rot- aður gæti hann svo bitið hann til bana. Hann ætlar að fara að leggja af stað, en þá flýgur honum í hug, að ekki sé nú alveg víst, að óvinur hans falli á steininn, þó að honum takist að gabba hann þangað. Nei, það þýðir víst ekki að hugsa um það, þetta er allt vonlaust. En bíðum við, skyldi það ekki gera sama gagn, ef steinninn dytti á hann, og þegar hann datt á steininn. Stórhrifinn af hug- myndinni þrífur hann steininn, hefur hann á loft og lætur hann falla ofan á aðra hend- ina. Hann sárkennir til en gleymir sárs- aukanum alveg við hugsunina um hefnd- ir. Nú þyrfti hann ekki annað en finna óvin sinn og láta steininn falla í höfuð honum. Vonglaður rís hann á fætur, tekur steininn og heldur af stað til rjóðursins. Á leiðinni hugsar hann stöðugt um,hvern- ig hann eigi að verða nógu fljótur að grípa steininn, til þess að láta hann falla aftur og aftur. Að lokum sezt hann niður og tekur að æfa sig. Hann lyftir steininum, lætur hann falla, grípur hann aftur,lyftir honum og lætur hann falla aftur. Þannig heldur hann áfram langa hríð, og að síð- ustu er hann hættur að sleppa steininum, heldur lemur honum í sífellu í jörðina. Enn heldur hann af stað. Nú skyldi óvin- urinn sannarlega komast að því fullkeyptu. Skammt frá rjóðrinu sér hann óvin sinn og urrar hátt. óvinurinn snýr sér að hon- um, og urrandi nálgast þeir hvor annan. Þegar þeir eru komnir þétt hvor að öðrum, sveiflar hann steininum í höfuð óvinar síns, svo að hann hnígur til jarðar. Steinöld er haJin. Reykjavík, 13. 3. '59. Grímur blanki.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.