Skólablaðið - 01.04.1959, Qupperneq 16
inn alls ekkert í nefndarleiöangur fyrir
Kristínu, hvaG þá þegar hefndinni átti
að beina að aðila, sem hann, þrátt fyrir
allt, var ekki alveg tilfinningalaus fyrir.
Eftir nokkurt þof samþykkti hann að
fara heim til syndaselsins og tala við
hann, Fyrrverandi kærastan hans kom
til dyra, en nú var hun blíð eins og
engill. Hún sagði honum, að mamma
sín hefði verið að kenna sér bæn og baö
hann í Jesú nafni aö koma inn fyrir,
amen. Þau sátu í stóra sófanum inni í
stofu hjá henni, og hún var að fræða
Henrik á því, aö með Jesú hefðu verið
tólf postular, einn hefði verið klettur.
Þarnæst. skoðuðu þau Línu langsokk og
henni fannst Kristín með afbrigðum
svipuð höfuðpersónu bókarinnar.
Henrik var ekki alveg sammála, en hann
þoröi alls ekki að mótmæla. Allt í
einu snéri hún sér að honum, vafði litlu,
brúnu handleggjunum um hálsinn á hon-
um og kyssti hann snöggt á munninn,
svo renndi hún sér niður af sofanum og
einbeitti sér við að tína blöðin af falleg-
asta stofublóminu hennar mömmu sinn-
ar, þau væru nefnilega visnuð, sagði
hún. Hún titraði öll af feimni og reyndi
að tala eins mikið og hún gat um allt,
sem henni datt í hug. Henrik heyrði
ekki eitt einasta orð, hann sat með
sælusvip og horfði dreymandi fram fyrir
sig. Hann var að hugsa um hið tilvon-
andi hjónaband.
Franzý.
"PROFSKREKKUR"—*
Listaverk þetta er eftir Hermann B.
Hvalfjörð, sem flestir munu kannast við.
Eins og menn sjá, (þeir sem hafa a
annað borö hið minnsta vit á listum )
er hér á ferðum stórséní í sinni grein.
Hermann tekur sér oftast fyrir hendur
að lýsa sálarástandi manna, og þykir
hann gera það af hinni mestu snilld.
Ein frægasta mynd hans af því tagi er
"Animus Gudnii", sem er gerð með
svörtu bleki.
"Prófskrekkur" er ein nýjasta mynd
hans og fundum við hana af tilviljun
málaða á drullugan borðdúk í Vetrar-
garðinum.
HÍlíllilfl'U'dtt.
IIÍIÍÍÍII«!!«■!;; Vf