Morgunblaðið - 30.12.2009, Síða 4

Morgunblaðið - 30.12.2009, Síða 4
4 Spegill ársins MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Sú endurnýjun sem varð á Alþingi í kosning- unum í vor er sú mesta frá upphafi. Nýir þing- menn voru 27 af 63, eða 42,9%. Mesta endurnýjun sem áður hafði þekkst var í kosningunum 1991, þegar 25 nýir menn sett- ust á þing, eða 39,7%. Minnsta endurnýjun á þingi í seinni tíma sögu varð hinsvegar árið 1963, eða 15%. Í fréttaskýringu Sigtryggs Sigtryggssonar kom fram að þingið nú væri hið reynsluminnsta frá því Alþingi var endurreist. Alls hefðu 42 þingmenn af 63 tveggja ára þingreynslu eða minni: „Eftir kosningarnar 1978 kom 21 nýr maður á þing. Aðeins Jóhanna Sigurðardóttir er eftir af þeim hópi. Eftir kosningarnar 1983 settust 14 nýir menn á þing. Af þeim hópi eru bara tveir eftir, þeir Árni Johnsen og Steingrímur J. Sigfússon. Eftir kosningarnar 1987 voru nýir þingmenn 21. Þeir eru nú allir hættir. Síðastir til að hverfa á braut úr þeim hópi voru Geir H. Haarde, Guðni Ágústsson og Valgerður Sverrisdóttir.“ Mikil endurnýj- un á Alþingi Morgunblaðið/Árni Sæberg Frelsi lýðræðisríkjanna er eftirfarandi í reynd: „Lögregla beitti táragasi gegn mótmælendum“ Þannig hljóðar Samfélagslegt ljóð semGyrðir Elísson tileinkar Degi Sig-urðarsyni í nýrri ljóðabók sinniNokkur almenn orð um kulnun sólar, nafngift sem mætti eins heimfæra upp á þjóð- arbúskapinn á árinu sem er að líða. Og ljóðið er einnig lýsandi fyrir róstusamt ár í stjórnmálum, þar sem sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu á Austurvelli. Sitt sýnist hverjum um það. En víst er að gjá hafði myndast á milli þings og þjóðar eftir banka- hrunið, sem varð í október árið 2008, en átti sér lengri aðdraganda. Ekki eru öll kurl komin til grafar vegna hrunsins, skýrsla rannsókn- arnefndar Alþingis verður innlegg í þá um- ræðu, en hún skilar af sér ekki síðar en 1. febr- úar á nýju ári. Eins og frægt er orðið stóð „Helvítis fokking fokk“ á einu kröfuspjaldinu og hrópuðu mót- mælendur: „Vanhæf ríkisstjórn!“ Það blasir við að í þessum orðum felst ekki útfærð fram- tíðarsýn, enda voru mótmælin ekki þess eðlis. Í þeim fólst miklu fremur gagnrýni á stjórn- völd fyrir að hafa ekki stöðvað glórulausa út- rás íslensku bankanna og tengdra útrásarfyr- irtækja. En freistandi er að álykta að undir niðri hafi búið krafan um gagnsærri vinnu- brögð og meira samráð. Og auðvitað var fólk reitt. Fjölmargir töp- uðu miklum fjármunum á bankahruninu, því jafnvel þótt innstæður væru tryggðar, þá varð fólk illa úti vegna hruns hlutabréfamarkaðar- ins, falls krónunnar og mikillar verðbólgu. Það kynti undir mótmælunum. Atburðarásin í lok janúar var svo reyf- arakennd, að helst má jafna til leikrita Shake- speares. Þegar mótmælin stóðu sem hæst 24. janúar og allt ætlaði um koll að keyra við þing- húsið, var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra í uppskurði í Stokkhólmi vegna höfuðmeins og sama dag tilkynnti Geir H. Haarde forsætisráðherra að hann hefði greinst með illkynja æxli í vélinda, framundan væri uppskurður og hann gæfi því ekki kost á sér áfram til formennsku í Sjálfstæð- isflokknum. Þremur dögum síðar varð ljóst að ríkis- stjórnin væri fallin. Jóhanna Sigurðardóttir tók við sem forsætisráðherra í minnihluta- stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, sem Framsókn varði falli, en þar var kominn til skjalanna nýr formaður, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Jóhanna varð síðan formaður Samfylkingarinnar, hennar tími var kominn. Og Bjarni Benediktsson tók við formennsku Sjálfstæðisflokksins. En þrátt fyrir mannabreytingar í forystu flokkanna var áfram gjá milli þings og þjóðar. Fráfarandi ríkisstjórn hafði verið gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi og fyrir að liggja á upplýs- ingum og það var einnig helsta gagnrýnin á ríkisstjórnina sem tók við í aðdraganda kosn- inga um vorið. Fyrir kosningar lofuðu til að mynda allir flokkar að mynda skjaldborg um heimilin, en ríkisstjórnin er enn gagnrýnd fyr- ir að ganga ekki nógu langt í þeim efnum, með- al annars af Hagsmunasamtökum heimilanna. En mest var deilt um tvö mál á árinu, samn- ingana um Icesave og umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Útlit er fyrir að ríkis- ábyrgð Íslendinga á Icesave verði samþykkt á þingi með naumum meirihluta og atkvæði þriggja þingmanna réðu því að þingsályktun- artillaga um að sækja um aðild að ESB var samþykkt 16. júlí. Í þessum tveimur stóru málum hafa stjórn- arflokkarnir beitt sér gegn þjóðaratkvæða- greiðslu, sem þó var eitt grunnstefið í gagn- rýni á vinnubrögð stjórnmálamanna á „gamla Íslandi“. Að vísu stendur til að bera mögu- legan aðildarsamning undir þjóðina, en sótt var um aðild að þjóðinni forspurðri. Sterk hreyfing er í þá átt, að Icesave-samningurinn verði borinn undir þjóðina, en 35 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun þess efnis til forsetans. Enn er kvartað undan upplýs- ingaleynd og skorti á samráði. Og skoð- anakannanir bera með sér að ekki hafi tekist að endurvekja traust þjóðarinnar – gjáin er á sínum stað. Nokkur orð um gjá  Gjá myndaðist milli þings og þjóðar og hefur ekki verið brúuð  Mestu átökin um umsókn um aðild að ESB og Icesave  Ekki sátt um þjóðaratkvæði Morgunblaðið/Eggert Mótmælt Enn er deilt um Icesave í þinginu. Átök Mikið mæðir á forystu- mönnum ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu í stífum fundarhöldum á Alþingi. Morgunblaðið/Golli Vinsælt á Fljúgandi furðuhlutur flaug yfir setningarathöfn Barack Obama Málaði risavaxið reður- tákn á hús foreldranna Richardson við dauðans dyr Jón Ásgeir selur snekkju og flugvél Aftur hætt saman Astrópía í mál við Heroes Helstu fréttir ársins 2009 19. Forsetaviðtal olli skjálfta Hringingum og skeytum rigndi yfir utanríkis- og fjár- málaráðuneyti Þýskalands 20. Hundraða prósenta verðmunur á mat 10-11oftastmeðhæstaverðið í könnunASÍenBónusoftast lægst 21. Afskrifa 1.500 milljarða Eignir Landsbankans eftir skuldajöfnun rýrna um 1.452 milljarða króna 24. Með húseignir í mínus • Eigið fé margra húseigenda uppurið eða neikvætt • þyngri greiðslubyrði 25. Rannsókn sett til hliðar Davíð Oddsson seðlabanka- stjóri segir fjölmörg einkahluta- félög hafa fengið sérstaka fyrirgreiðslu hjá bönkunum 26. Nýir eigendur að Árvakri Hópur Óskars Magnússonar átti hæsta tilboð í söluferlinu Mars 2. Flokkurinn þoli stór orð Harðorð skýrsla frá sjálf- stæðismönnum um starf flokksins og fall bankanna 3. Upplýst um skattaskjólin Skattayfirvöld fá rýmri upplýsingar til að eltast við hugsanlega skattsvikara 6. Ný lausn erlendra lána Lækkar greiðslubyrði erlendra húsnæðislána töluvert án niðurfellingar skulda 7. 500milljarðar til eigenda Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum 478 milljarða sam- kvæmt lánabók 9. Segjast hafa lent í svikamyllu Tugir efnaðra viðskiptavina Landsbankans í Lúxemborg hafa leitað til lögfræðinga ytra 10. StraumuryfirtekinnafFME Íbúðalánasjóður var langstærsti innistæðueigandinn í bankanum 11. Sjálfstæðari saksóknara Sérstakur saksóknari þarfmarg- falt fleira starfsfólk,segir EvaJoly 16. Heilu hverfin standa auð Eftirstöðvar „fasteigna- bólunnar“ á höfuðborgar- svæðinu blasa víða við 17. Launamálin endurmetin Verkalýðshreyfingin bregst illa við fréttum af arðgreiðslum HB Granda 18. 15.685 milljarða skuldir Skuldir íslenskra fyrirtækja jukust um tæpa 9.000 mill- jarða króna á tveimur árum 19. Ein stærsta kannabis- ræktun sögunnar Lögreglan lagði hald á nokkur hundruð kannabisplöntur á Esjumelum á Kjalarnesi 23. Starfsmenn SPRON grétu Á þriðja hundrað manns missir vinnuna í kjölfar yfirtöku FME á SPRON 26. Lífeyrisréttindi skerðast til framtíðar vegna hrunsins Setning neyðarlaganna kom illa við lífeyrissjóðakerfið 30. Formannsskipti hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu Bjarni Benediktsson og Jóhanna Sigurðardóttir kjörin til formennsku Apríl 1. Mörg þúsund nemar án vinnu í sumar Alvarlegar atvinnuhorfur hjá háskólanemum ræddar í menntamálanefnd 2. 200 milljónir gegn veði í sveitasetri Sigurður Einarsson skuldar VÍS 200milljónir króna gegn veði í hálfbyggðu sveitasetri sínu 3. 20.000 sækja sparnaðinn Margir hafa óskað eftir að fá viðbótarlífeyrissparnað sinn greiddan út 7. 347 fyrirtæki farin í þrot 47% fleiri fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota en á sama tíma og í fyrra Málamiðlun stjórnarflokkanna hefur verið eitt af grunnstefjunum á Alþingi. Einkum olli það titringi innan Vinstri grænna þegar þingflokk- urinn studdi aðildarumsókn að Evrópusam- bandinu, þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu við að- ild fyrir kosningar. Þá hrikti í stjórnarsamstarfinu þegar þing- flokkur Vinstri grænna klofnaði í afstöðu sinni til Icesave, en andstaða Ögmundar Jónas- sonar við það mál varð til þess að hann hrökkl- aðist úr ríkisstjórn. Vinstri grænir hleyptu í gegn álveri í Helgu- vík á vordögum, en náðu aftur sínu með hæl- krók þegar umhverfisráðherra úrskurðaði að fara skyldi fram sameiginlegt mat á Suðvest- urlínu, auk þess sem hún sagði nýverið í fyr- irspurnartíma í þinginu að ekki væri til nóg orka fyrir 360 þúsund tonna álver í Helguvík. Það mál gæti valdið miklum titringi í ríkis- stjórnarsamstarfinu. En stjórnarflokkarnir hafa verið sammála um að fara fyrningarleiðina svokölluðu, að endurúthluta aflaheimildum í sjávarútvegi. Það hefur sætt gagnrýni fólks og fyrirtækja sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi, enda hamlar óvissan sem þetta veldur nauðsynlegu viðhaldi og nýfjárfestingum í greininni. Eftir stendur að óvissa ríkir bæði í orkubúskapnum og sjávarútveginum, sem þó eru þær greinar sem líklegastar eru til að afla þjóðinni nýrra gjaldeyristekna. Þá virðist stjórnarflokkarnir ná saman um að fara leið skattahækkana og draga þannig úr þeim sparnaðaraðgerðum sem grípa þarf til í ríkisfjármálum, en deilt hefur verið hart á þessi áform, þar sem þau dugi ekki til, ekki sé innistæða fyrir auknum álögum og hætta sé á að ef þrengt sé enn frekar að fjölskyldum og fyrirtækjum, þá geti það dýpkað kreppuna enn frekar. Málamiðlun um hvað?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.