Morgunblaðið - 30.12.2009, Qupperneq 9
Ummæli #1
Ég hef heyrt þann orðróm að þarna
séu tengsl á milli og ef það er svo að
þetta sé fyrirfram skilyrði af hálfu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til þess að
koma hér að málum, að við gerum upp
öll þessi ósköp í Bretlandi og Hollandi
án þess að það liggi endilega fyrir að
okkur sé lagalega og þjóðréttarlega
skyld að gera það, þá er það auðvitað
ekkert annað en fjárkúgun. Þá eru allar
okkar verstu martraðir að rætast hvað
varðar aðkomu Alþjóðagjaleyrissjóðsins.
Hver sagði þetta í viðtali
við mbl.is 22. október 2008?
Ummæli #2
Hæstvirtur forseti. Það er akkúrat
hér (Gripið fram í: „Það hefur
ekkert breyst.“) sem gerður verður
greinarmunur á frjálsu hagkerfi
annars vegar og ábyrgu hagkerfi hins
vegar. (Gripið fram í: … „endalokin“.)
Spurningin er nefnilega sú og hún er
ansi ágeng, og ágengari en margur þorir
að horfast í augu við: Fer þetta tvennt
saman? Getur frjálst hagkerfi verið
ábyrgt? Er frelsið sterkara og frekara
en ábyrgðin þegar þriðja breytan,
blessuð mannskepnan, blandar sér
í þessi hugtök? Það er nefnilega svo
— og nákvæmlega hér — sem sjálft
grundvallaratriði mannlegra samskipta
hverfist um takmörk frelsisins. Þegar
upp er staðið, frú forseti, snýst Icesave-
málið um mannasiði. (Gripið fram í:
„Börnin okkar.“) - Sem við skulum
kenna mannasiði.
Hver ræðir hér aðalatriði Icesave-
málsins, með hjálp annarra
þingmanna, 20. ágúst 2009?
Ummæli #3
Því miður hefur skort samhljóminn
sem þarf að vera milli þings og þjóðar
í svo mikilvægu máli. Fjölmiðlarnir
eru sá hornsteinn í lýðræðisskipan og
menningu okkar Íslendinga að ekki er
farsælt að varanlega verði djúp gjá milli
þingvilja og þjóðarvilja. Slíka gjá þarf
að brúa.
Hver sagði þetta 2. júní 2004 þegar
tiltekin lög voru ekki undirrituð?
Ummæli #4
Ég get ekki neitað því að ég er undrandi
á því hvernig umræðan bæði í þinginu
og í fjölmiðlum hefur að mestu farið frá
aðalatriðum og leiðst út í lítilsverðan
sparðatíning, upphrópanir og
órökstuddar fullyrðingar.
Hver sagði þetta í viðtali
við Morgunblaðið 25. júlí 2009?
Ummæli #5
Ég var nú eiginlega bara orðinn leiður á
að hafa þetta hangandi yfir mér
Hver sagði þetta um Icesave
samningagerðina við Morgunblaðið í
júní 2009?
Ummæli #6
Ég treysti Svavari Gestssyni. Ég veit að
hann er að gera góða hluti og ég lofa þér
því að það er í sjónmáli að hann landi -
og hans fólk - glæsilegri niðurstöðu fyrir
okkur...
Hver sagði þetta í umræðuþættinum
Zetunni á mbl.is í mars 2009,
aðspurðum um stöðuna í Icesave-
viðræðunum við Breta og Hollendinga?
Ummæli #7
Spurning Helga Seljans til viðkomandi:
“Er eitthvað til í því sem hefur verið
fleygt í dag að það líti allt út fyrir að
við þurfum að taka á okkur að óbreyttu
einhverja fleiri hundruð milljarða sem
er mun meira en gert hefur verið ráð
fyrir...”
Svar viðkomandi: “Nei, það eru algjörar
sögusagnir, og þvert á móti gerum við
okkur vonir um það að það séu kannski
í sjónmáli miklu hagstæðari lausn í
þeim efnum en fyrri ríkisstjórn var búin
að undirbúa, sem var næstum búin að
samþykkja það að taka eitt risavaxið
lán á himinháum vöxtum fyrir þessu
öllu saman”
Hver sagði þetta 3. júní 2009, þremur
dögum áður en 600 milljarða Icesave
samningur var kynntur?
Ummæli #8
Eins og lögfræðingar hafa bent á
var hlutverk innlánatryggingakerfa
samkvæmt reglum ESB/EES-
svæðisins aldrei að takast á við
allsherjar bankahrun, heldur
aðeins fall einstakra banka. Sama
sjónarmið kemur fram í skýrslum og
yfirlýsingum frá Seðlabanka Evrópu og
framkvæmdastjórn ESB.
Veigamikil rök hnigu því strax frá
upphafi að því að íslenska ríkið bæri
ekki ábyrgð á skuldum vegna Icesave-
reikninganna umfram þá upphæð
sem var til staðar í Tryggingasjóði
innistæðueigenda.
Hver sagði þetta í grein um Icesave
málið sem birtist í Morgunblaðinu
24. janúar 2009?
Ummæli #9
Það er illt til þess að vita að heiðurslaun
mín sem nema eitthundrað og fimmtíu
þúsund krónum á mánuði fyrir
skatta - og hafa ekkert með starfslaun
listamanna að gera - skuli hafa valdið
svona mikilli fjölmiðlaathygli og
vandlætingu.
Hver sagði þetta á bloggi
sínu 28. apríl 2009?
Ummæli #10
Í ljósi þessa er mesta örlagastundin í
Icesave-málinu í raun enn eftir. Enn er
hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska
þjóð. Taki Tryggingasjóðurinn hins
vegar við skuldunum er ljóst að þá
verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin
endanlega verið skuldsett á grundvelli
pólitískra þvingunarskilmála sem
ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að
standa gegn.
Hver sagði þetta í grein í
Morgunblaðinu 24. janúar 2009?
Ummæli #11
Þegar KB banki opnaði útibú í
Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði
líklega engan fyrir því hve vel íslensku
fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að
ganga við að hasla sér völl á erlendri
grundu. Ævintýralega vel er kannski
rétta orðið yfir það. Kjarkur, þor og góð
þekking íslensku útrásarmannanna
skilaði meiri árangri hraðar við
fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá
fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli
á alþjóðavísu.
Hver sagði þetta á bloggi
sínu 5. ágúst 2008. Tveimur mánuðum
síðar hrundi íslenska bankakerfið og
viðkomandi tók niður bloggsíðuna
vegna endurskoðunar og breytinga?
Ummæli #12
Virðulegi forseti. Ég hef áður sagt
og ítrekað að þessir fyrirvarar eru í
stórum dráttum þess eðlis að hvert
þjóðþing mundi telja sér fært að
setja sambærileg öryggisákvæði til
að leggja áherslu á að ekki megi
skerða fullveldi þjóðar sinnar og
tiltekna grundvallarhagsmuni eins og
framtíðarefnahag þjóðarinnar. Þess
vegna leyfi ég mér að vera vongóð um
að Bretar og Hollendingar sýni málinu
í þeim búningi sem það fer nú fulla
sanngirni og skilning. Það er það sem
við förum fram á við þessar þjóðir nú í
kjölfar samþykktar þessara laga.
Það er alþekkt úr sögu evrópskrar
samvinnu að þjóðþing eða dómstólar
setji fyrirvara þegar verið er að afgreiða
mikilvæga milliríkjasamninga. Eins og
áður segir er verkefnið nú að sannfæra
viðsemjendur okkar um að við séum
ekki að hlaupast undan ábyrgð heldur
þvert á móti að axla ábyrgð en með
þeim hætti að við fáum örugglega undir
henni risið.
Hver sagði þetta á Alþingi
28. ágúst 2009 um fyrirvarana
sem nú eru algerlega útþynntir?
Svör sendist til
sus@xd.is
fyrir 4. janúar 2010
8 þjóðkunnir
einstaklingar á
myndunum hér að ofan
eiga þessi 12 ummæli.
Ef þú ert í vafa er
tilvalið að nýta
veraldarvefinn.
1-2. verðlaun
Vigdís
Ævisaga síðasta
sameiningartákns
íslensku þjóðarinnar
6-10. verðlaun
Þeirra eigin orð
Orðin sem þau sáu eftir.
3-5. verðlaun
Skuldadagar
Stórskemmtileg bók sem sýnir
þjóðfélagið í gamansömu ljósi
Áramótagetraun SUS 2009:
SUS óskar öllum Íslendingum gleðilegs árs
og farsældar á komandi ári