Morgunblaðið - 30.12.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 30.12.2009, Síða 12
12 Spegill ársins MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Jólaflóðið skilaði mörgum og ólíkumkreppubókum á land. Fræðimenngreindu nýliðna atburði, hver á sinnhátt. Ljóðskáld á borð við Sindra Freysson, Hauk Má Helgason og Sigurð Páls- son tóku hrunið persónulegum tökum, og það leitaði líka á síður allnokkurra skáldsagna. Eft- ir syndafallið leitar Huldar Breiðfjörð hrein- leikans í Færeyjum í Færeyskum dansi, Gæsku eftir Eirík Örn Norðdahl hefur verið lýst sem „hrunsbók með óvæntum snúningi“ og Bankster eftir Guðmund Óskarsson er sögð „hreinræktuð kreppubók“ – var tilnefnd til ís- lensku bókmenntaverðlaunanna, ef til vill sem fulltrúi kreppuverkanna. Og fleiri spunnu sög- ur út frá bankahruninu og atburðum á Austur- velli. Kreppan er hinsvegar ekki áberandi í þeim skáldverkum sem undirrituðum þykir rísa hvað hæst. Í sagnasafni Gyrðis Elíassonar, Milli trjánna, opnast sannkallaðir ævintýraheimar undir lágstemmdu yfirborði þar sem stutt er í fantasíuna. Harmur englanna eftir Jón Kalman Stefánsson gerist fyrir rúmri öld vestur á fjörð- um og er magnþrungið verk þar sem litapalett- an er eins og í málverki eftir Robert Ryman; öll möguleg blæbrigði af hvítu. Og það er kalt. Þá er ljóðabók Matthíasar Johannessen, Vegur minn til þín, eitt hans mesta og merkasta verk til þessa. Megintíðindi bókaútgáfunnar síðasta misseri má þó segja að séu þau, að höfundar beina sjón- um frá kreppu og dægurþrasi að því sem meira máli skiptir, til langs tíma litið. Að andans jöfr- um þjóðarinnar. Merkum listamönnum. Fólki sem skapar listaverk sem lifa af efnahagslegar hræringar; þetta eru bækur um fólk sem gerir okkur að sjálfstæðri – og vonandi stoltri – þjóð. Því á meðan bankajöfrar hafa viljað leggja nið- ur sameiningartákn lítillar þjóðar, tungumálið, og hafa veðsett afkomu okkar, þá eru það lista- mennirnir sem rísa yfir gjaldþrotin, sýna hver við erum og skapa verk sem þjóðin getur verið stolt af og eru hennar eigin, skuldlaust. Listamenn og stuðningsmenn þeirra Á árinu komu út merk verk um listamenn, og um stuðningsmenn listanna. Loksins kom út ævisaga Snorra Sturlusonar, skráð af Óskari Guðmundssyni. Má segja að kominn hafi verið tími til. Pétur Gunnarsson skilaði af sér seinna bindi tvíleiksins um Þórberg Þórðarson. Í Jón Leifs – líf í tónum fléttar Árni Heimir Ingólfs- son á eftirminnilegan hátt saman umfjöllun um líf og tónverk tónskáldsins, manns sem segja má að hafi verið jafn erfiður og mörg verk hans eru áheyrnar. Svavari Guðnasyni eru gerð verðug skil með stórri og vandaðri bók á aldar- afmælinu, og í Mynd af Ragnari í Smára, eftir Jón Karl Helgason, er brugðið upp eftirminni- legum myndum af listamönnum og Ragnari sjálfum, en hann var listamaður í að styðja við skapandi fólk og sjá til þess að það gat einbeitt sér að sköpuninni. Ólík efnistök ævisagnaritara Allar eru þessar ævisögur vandaðar og skrif- aðar af metnaði, en höfundarnir fara ólíkar leiðir. Pétur tekur Þórberg og samferðamenn hans persónulegum tökum; segist skrifa skáld- fræðisögu og lýsir það aðferðinni ágætlega. Jón Karl fer óvenjulega leið að sínu verki; skoðar ljósmynd af Ragnari í Smára og fólki sem stóð honum nærri og lætur söguna gerast á þremur dögum. Óskar hefur úr annarskonar, og vissulega takmarkaðri, heimildum að moða hvað Snorra varðar en vinnur forvitnilega úr þeim og dregur upp fína aldarfarslýsingu frá tímum Sturlunga. Árni Heimir er hvað hefð- bundnastur í tökum sínum á Jóni Leifs en gerir vel. Fleiri athyglisverðar bækur um fullorðna og merka listamenn komu út fyrir jólin, þótt ekki sé um hefðbundnar ævisögur að ræða. Vert er að minna á Vefti, bók um feril Ásgerðar Búa- dóttur, og bók um verk Manfreðs Vilhjálms- sonar arkitekts. Þessi lesari hefur fagnað öllum þessum góðu bókum, sem hjálpuðu honum að flýja þreytandi dægurþrefið, inn í ólíkt áhuga- verðari heima listamanna. Myndir af listafólki  Ævisögur merkra listamanna hvað markverðastar í jólabókaflóðinu  Margir skáldsagnahöfundar og ljóðskáld tókust á við bankahrunið Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ragnar í Smára við Íslandskort Athafna- maður sem hafði ómæld áhrif á menninguna. Halldór, Gunnar og Jón Lífi og verkum Halldórs Laxness hafa verið gerð verðug skil í ævisögum og sama má nú segja um Jón Leifs. Beðið er sögu Gunnars Gunnarssonar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Vinsælt á Ólafur Ragnar slasaðist Íslenskri fjölskylduvísað úr landi Jackson lifandi? Pissaðu í sturtunni! Björk setur hús á sölu Sængaði hjá föður sínum Helstu fréttir ársins 2009 Ágúst 1. Skuldabyrði sem þjóðin getur ekki staðið undir Eva Joly fordæmir framferði Breta í Icesave-málinu 4. Innbrotafaraldur en eftir- lit lögreglunnar í lágmarki Tilkynnt hafði verið um 34 innbrot um verslunarmanna- helgina 5. Stórskuldug aflands- félög í eigu hluthafa Kaupþings • Stofnuð af Kaupþingi á Tortola í ágúst 2008 • Svipar til viðskipta sjeiksins 7. „Það er búið að semja!“ Samningagerð um Icesave lokið að mati Breta 10. Enn algjör óvissa uppi um Icesave Stjórnarandstaðan segir fyrirvara stjórnarinnar ekki ganga nógu langt 13. „Knýja Exista í gjaldþrot“ Eigendur Exista róa lífróður til að halda yfirráðum yfir félaginu 14. Krafa um engar Icesave- greiðslur án hagvaxtar Stjórnarandstaðan sótti fast að setja efnahagsleg skilyrði fyrir ríkisábyrgð 18. Iceland Seafood í meiri- hlutaeigu Breta „Styrkir dreifileiðir íslenskra fiskframleiðenda,“ segir forstjóri Kjalars 19. Erlendar eignir lífeyris- sjóða aukist í hækkunum Heildareignir íslensku lífeyrissjóðanna námu 1.736 milljörðum króna í júní 20. Skúffufyrirtæki skulduðu yfir þúsund milljarða Þriðjungur þeirra virðist hafa þann tilgang að vera fjármögn- unarfyrirtæki eigenda sinna 22. Hagar í gjörgæslu Kaupþings Teymi sérfræðinga frá Nýja Kaupþingi starfar nú inni í Högummeð það fyrir augum að vernda hagsmuni bankans 24. Fá breska fjárfesta inn í rekstur Haga Jón Ásgeir segir enga hættu á að Kaupþing taki félagið yfir 25. Ríkisábyrgðin falli niður 2024 og fyrirvarar haldi Fjárlaganefnd fundaði enn einu sinni fram á nótt um Icesave-frumvarpið 26. Höfuðstóll lána verður lækkaður Íslandsbanki vinnur að útfærslu á lækkun höfuðstóls lána í erlendri mynt 29. Icesave losi lánastíflu Ríkisábyrgðin á Icesave-samn- ingunum samþykkt á Alþingi með 34 atkvæðum gegn 14 September 2. Hátt í 60 fórnarlömb mansals Í 30% tilvika tengjast mansals- málin kynlífsiðnaði 5. Norðmenn vilja setja tugi milljarða í endurreisnina Hafa fundað með lífeyrissjóð- unum og vilja stofna sérstakan fjárfestingarsjóð 7. Íslendingar í forystu við bindingukoltvíoxíðs í berg Sérfræðingar spá því að kolefnisbinding verði jafn stór iðnaður og olíuvinnsla 9. Allt að 25% færri sækja um lán vegna náms erlendis Fólk fer utan í nám „meðvitað um að það muni sitja uppi með miklar skuldir“ „Kreppan er áberandi í út- gáfunni. Það kom bylgja af fræðibókum sem fjalla um efnið en kreppan er líka áberandi í skáldskapnum,“ segir Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi á vefnum bok- menntir.is. „Nokkrar skáld- sögur fjalla beinlínis um þessi mál, Bankster, Vor- menn Íslands og fleiri, og þetta þema kemur líka upp í ljóðinu. Það birt- ist til dæmis í ljóðum og smásögum Gyrðis Elí- assonar, þótt það sé ekki áberandi. Þetta sést líka hjá Ísaki Harðarsyni og Sigurði Pálssyni. Það virðist vera að karlarnir geri þetta meira að sínu máli en konur, enda eru þeir ábyrgari fyrir því sem gerðist.“ Úlfhildur segir að í fæstum tilfellum takist höfundunum sérlega vel að fjalla um hrunið. „Þetta er of seint. Áður en kreppan skal á velti ég fyrir mér af hverju rithöfundar væru ekki að greina þetta furðuástand. Það var í raun bara Þráinn Bertelsson sem byrjaði að kafa eitthvað í það í tveimur glæpasögum. Síðan Ævar Örn Jópsepsson og Stefán Máni í fyrra. Það eru helst Ísak og Gyrðir sem taka þetta inn á áhugaverðan hátt. Fyrir utan það finnst mér að mestu lítið í þetta varið.“ Úlfhildur segir að vissulega hafi hún ekki lesið allt en henni finnst útgáfa ársins hafa verið frekar daufleg. Þó hafi komið út fínar ljóðabækur, til að mynda eftir Ísak, Ingunni Snædal og Hermann Stefánsson. Lítið varið í kreppuskrif Úlfhildur Dagsdóttir „Mér finnast ljóðabækur Matthíasar Jóhannessen og Sigurðar Pálssonar einkum standa upp úr af því sem ég hef verið að lesa. Þá er Harmur engl- anna eftir Jón Kalman Stefánsson afbragðs gott verk,“ segir Gauti Krist- mannsson, bókmenntarýnir og þýðandi. Hann segir mikinn skáldskap í Harmi englanna. „Stíllinn er skáldlegur og heim- spekin sem tjáð er í verkinu stendur undir þeim listrænu kröfum sem ég geri til prós- ans. Mér finnst sérkennilegt þegar höfundar setja fram mikilvægar hugsanir í einhverjum staccato-stíl. Hann hentar í greinaskrif í blöðum, en er ekki það sem ég vil sjá í skáld- skap. Síðustu ár hefur borið nokkuð á þeirri kröfu að ekki megi vera mikill skáldskapur í skáldskap. Það finnst mér skrýtið. Eins og sést í skrifum Jóns Kalman láta sumir höfundar það sem vind um eyru þjóta.“ Gauti segir að hrunið hafi eðlilega komið inn í bókmenntirnar en það hafi ekki alltaf lukkast vel. „Mér þótti ágætlega tekið á því hjá Sindra Freyssyni og Sigurði Pálssyni í ljóðunum, og hjá Guðmundi Óskarssyni í Bankster. Guðmundur tekur óbeint á hruninu með því að fjalla ekki um orsakirnar heldur afleiðingarnar hjá manni sem var innanbúðar í fjármálakerfinu. Merkasta bókin í ár og þótt lengur væri leitað finnst mér hins vegar vera Ummyndanir Óvíds í þýðingu Kristjáns Árna- sonar og reyndar eru eins og venjulega marg- ar bestu bókanna í ár þýðingar.“ Ummyndanir merkasta bókin Gauti Kristmannsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.