Morgunblaðið - 30.12.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 30.12.2009, Síða 16
16 Spegill ársins MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is Margir hafa sagt við mig síðustudaga og vikur að það hafi merki-lega lítið gerst í íþróttunum á þvíherrans kreppuári 2009. Flat- neskjan hafi ráðið ríkjum og fáir hafi staðið sig sem skyldi. Íslendingar gera miklar kröfur til síns íþróttafólks. Á þeim hefur ekkert verið slakað þó að góðærið sé að baki. Við eigum að vera best í heimi, hvað sem tautar og raular. Næst- best er ekki nóg. En hvað gerðist eiginlega á þessu litlausa íþróttaári sem nú er að baki?  Ólafur Stefánsson tryggði Ciudad Real Evr- ópumeistaratitilinn í handbolta með stór- kostlegri frammistöðu í úrslitaleiknum – annað árið í röð.  Eiður Smári Guðjohnsen varð Evrópu- og Spánarmeistari í fótbolta með Barcelona og spilaði 33 leiki með liðinu á tímabilinu.  Þórunn Helga Jónsdóttir varð Suður- Ameríkumeistari í fótbolta með Santos.  Þóra B. Helgadóttir var kjörin besta fót- boltakona Noregs – tekin fram fyrir nánast allt norska landsliðið sem komst í undan- úrslit á EM.  Helga Margrét Þorsteinsdóttir missti af gullverðlaunum á Evrópumóti unglinga í sjöþraut þegar hún meiddist á lokametr- unum, með yfirburðastöðu.  Handboltastrákarnir í 21 árs landsliðinu fengu silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu í Túnis og Ólafur Guðmundsson var kjörinn besti leikmaður mótsins. Sem sagt bestur í heimi í þeim aldursflokki.  Ásdís Hjálmsdóttir setti Íslandsmet í spjót- kasti sem hefði fleytt henni í úrslitakeppni á heimsmeistaramótinu.  Kvennalandsliðið í fótbolta var eitt tólf liða sem léku um Evrópumeistaratitilinn í Finn- landi.  Karlalandsliðið í handbolta tryggði sér þátt- tökurétt á enn einu stórmótinu og leikur til úrslita á EM í Austurríki í janúar. Nei, það gerðist hreinlega ekkert markvert hjá íslensku íþróttafólki á árinu 2009. Ansi hreint flatt og fábreytt ár. Eða hvað? Handahófskennd upptalningin hér að fram- an myndi eflaust þykja stórkostleg ársupp- skera hjá mörgum þjóðum þar sem íbúarnir eru taldir í milljónum. Ekki í fáum hundruðum þúsunda eins og á landinu okkar afskekkta sem margir telja á mörkum hins byggilega heims. Og var þó bara stiklað á stóru. Það vita kannski ekki margir að íslenskir keppendur í t.d. karate, taekwondo og skylmingum unnu til margra gullverðlauna á alþjóðlegum mótum á árinu 2009. Landsliðið í keilu skipaði sér í hóp átta bestu þjóða í Evrópu í fyrsta skipti. Kvennalandsliðið í handbolta á raunhæfa möguleika á að komast í úrslitakeppni Evr- ópumótsins í fyrsta skipti. Körfuboltalands- liðin unnu góða sigra. Og fjölmargt annað ís- lenskt íþróttafólk stóð sig með miklum sóma á erlendum vettvangi þó að það hafi ekki endi- lega fagnað sigrum eða komið heim með verð- launapeninga um hálsinn. Nei, þegar við lítum um öxl og skoðum afrek liðins árs getum við verið stolt af íslensku íþróttafólki. Við getum ekki miðað allt við silfr- ið góða í Peking. Það er miklu nær að horfa til þeirrar ótrúlegu breiddar sem er í íslenskum íþróttum. Það er magnað að við skulum eiga afreksfólk á góðum alþjóðlegum mælikvarða í eins mörgum greinum og raun ber vitni. En það sem mestu máli skiptir er að íþrótta- hreyfingin og grasrótarstarfið í landinu hefur haldið bærilega velli í þeim þrengingum sem gengið hafa yfir þjóðina undanfarna fimmtán mánuði. Íþróttastarfið í landinu, stærsti for- varnarþáttur samfélagsins, er að mestu borið uppi af ótölulegum fjölda sjálfboðaliða sem halda félögum og íþróttagreinum gangandi af áhuga og metnaði, víðast hvar við afar tak- mörkuð fjárráð eða styrki. Það eru fyrst og fremst foreldrar sem standa undir barna- og unglingastarfi flestra félaga, safna fé fyrir launum þjálfara og fjármagna keppnisferð- irnar. Það er þarna – í grasrótinni – sem stærstu sigrarnir vinnast. Gerðist ekki neitt?  Íslendingar meistarar í Evrópu og Suður-Ameríku  Íslensk landslið í úrslitakeppni  Besti leikmaður Noregs  Stærstu sigrar í grasrótinni Góðar Ásdís Hjálmsdóttir og Helga Margrét Þorsteinsdóttir settu báðar Íslandsmet. Þjóðhátíðargleði Lands- liðsmennirnir í handbolta höfðu ástæðu til að fagna innilega eftir að þeir sigr- uðu Makedóníu í Laug- ardalshöllinni hinn 17. júní. Þeir leika til úrslita á EM í Austurríki í janúar. Morgunblaðið/hag Vinsælt á Ásdísi Rán hent út af Facebook Eiginkonan farin frá Tiger Hélt að hún væri rosalega fræg Kraftlyftingakona ól óvænt barn Biður konu Tigers afsökunar Fundu fimmtíu nálar í tveggja ára dreng Helstu fréttir ársins 2009 30. Eldsneyti einkabíls hækkar um 60 þúsund krónur á ári Kolefnisskattur sagður sjónarspil Desember 1. Framleiðslufyrirtæki sjá fram á frekari uppsagnir Sami vandi blasir við öllum fyrirtækjum í greininni 3. Vilja reisa risaverksmiðju til áburðarframleiðslu Útflutningur yrði 1,4 milljónir tonna 4. Skuldabyrði þjóðarinnar eykst frá síðustu áætlun Seðlabankastjóri segir ríkið ráða við skuldir 5. Samkomulag um afgreiðslu Icesave Ensk lögfræðistofa fengin til að meta samningana um Icesave 7. Trúnaðarpóstar Indriða birtir Wikileaks birtir tölvusamskipti um Icesave-deiluna 9. Níu lögreglumenn gera bótakröfu vegna átakanna Einn lögreglumaður hlaut varanlega örorku 10. 220 milljörðum bjargað Skilanefnd Kaupþings vildi bíða með eignasölu og hafnaði gjaldþrotaleiðinni 11. Skert lífskjör og kaupmáttur Bankaráðsmaður í bankaráði Seðlabankans varar við áhrifum þess að samþykkja Icesave-samninginn 14. Skólakerfinu gert að spara 6-7 milljarða Matseðill á leikskólum ræðst af tilboðum í lágverðsverslunum 16. Eignir Landsbanka kyrr- settar fyrir hryðjuverkalög Gert að binda í reiðufé 10% af innistæðum 3. október 2008 og 20% frá 6. október 17. „Flóknari og ónákvæmari“ RSK telur líklegt að leiðrétta þurfi álagningu tuga þúsunda eftir skattabreytingu 19. Hlutabréf í 365 einskis virði samkvæmt verðmati Vaxtaberandi skuldir 365 eftir samruna við Rauðsól munu nema 4,6 milljörðum 22. Nýr sjóður samningsbrot Bjóða fram ráðgjöf í máli gegn breska ríkinu sem yrði „vandræðalegt“ fyrir Breta 23. Lagalegur vafi og ágreiningur um Icesave Lögmenn telja að álit Mishcon de Reya staðfesti gagnrýni á frumvarpið 29. Afborganir lána 40% tekna Jón Daníelsson, dósent í fjármálum, segir að íslenska ríkið sé nú nærri eða yfir sínu skuldaþoli Sautjánda júní stemningin var endurvakin af karla- landsliði Íslands í hand- bolta á þjóðhátíðardeg- inum árið 2009. Rétt eins og árin 2006 og 2007 nýtti handboltalandsliðið sér stemninguna í Laug- ardalshöll á þessum hátíð- isdegi til að tryggja sér þátttökurétt á enn einu stórmótinu. Ísland vann stórsigur á Makedóníu, 34:26, frammi fyrir troðfullri Laugardalshöll og þar með voru farseðlarnir til Austurríkis gulltryggðir. Þar leikur Ísland í úrslitakeppni EM í næsta mán- uði, nánar tiltekið dagana 19.-31. janúar. Ólafur Stefánsson var ekki með að þessu sinni því hann tók sér ársfrí frá landsliðs- verkefnum eftir silfrið í Peking haustið 2008. En þessi magnaði handboltamaður var samt í sviðsljósinu sem aldrei fyrr. Hann vann óumdeilanlega stærsta íþróttaafrek Ís- lendings á árinu 2008 þegar hann tryggði Ciudad Real sigur í Meistaradeild Evrópu með frækinni frammistöðu í seinni úrslita- leiknum gegn Alfreð Gíslasyni og hans mönnum í Kiel. Rétt eins og hann gerði í úr- slitaleik gegn sama liði nákvæmlega einu ári áður. „Það er ekki bara að Óli sé góður leik- maður, heldur er hann frábær liðsmaður sem er alltaf að miðla til samherja sinna og gerir þá raunverulega betri,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari við Morg- unblaðið þegar það ræddi við hann um afrek Ólafs. Ísland á EM og afrek Ólafs Ólafur Stefánsson Þau þáttaskil urðu í ís- lenskri knattspyrnu á árinu 2009 að A-landslið lék í fyrsta skipti í úr- slitakeppni Evrópumóts. Það var kvennalandsliðið sem var í hópi þeirra tólf þjóða sem léku um Evr- ópumeistaratitilinn í Finn- landi í lok sumars. Íslenska liðið var í tólfta sæti samkvæmt styrkleikalista af þeim tólf þjóðum sem léku í Finnlandi. Það var því ekkert óvænt við það að því skyldi ekki takast að komast áfram úr riðlakeppninni og þyrfti að fara heim að henni lokinni. Ís- land tapaði þó öllum leikjum sínum naum- lega, 1:3 fyrir Frökkum eftir að hafa náð for- ystunni með marki Hólmfríðar Magnúsdóttur og klúðrað vítaspyrnu, 0:1 fyrir Noregi og 0:1 fyrir Þýskalandi en tvær síðarnefndu þjóðirnar komust í fjögurra liða úrslit. Þýskaland vann England, 6:2, í úr- slitaleik mótsins. „Það er mikill meðbyr með okkur, þjóðin fylgdist með og fjölmargir stóðu á bak við okkur sem er gífurlega dýrmætt. Því miður gátum við ekki launað fyrir okkur með því að vinna leik á mótinu en við vissum að þetta yrði erfitt. Við vorum í langsterkasta riðlinum, sýndum samt að við áttum heima hérna og getum því vel farið stoltar heim. Við áttum möguleika í öllum leikjunum,“ sagði Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, við Morgunblaðið í mótslok í Finn- landi. Fyrstar í úr- slitakeppni EM Katrín Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.