Morgunblaðið - 30.12.2009, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
NÝTUM
TÆKIFÆRIN
OG TENGJUMST
TRYGGÐARBÖNDUM
Á NÝJU ÁRI!
P
&
Ó
Það er gaman að starfa aðverkefnum sem væntingareru bundnar við,“ segir Ey-
steinn Jóhann Dofrason, verkefn-
isstjóri hjá Suðurverki. Starfsmenn
fyrirtækisins hafa síðustu misseri
unnið að gerð Landeyjahafnar en
tilkoma hennar mun valta byltingu
í samgöngum milli lands og Eyja.
Vinnu við hafnargarða, sem hvor
um sig er rúmir
650 metrar, er
lokið og nú er
unnið að gerð
viðlegukants þar
sem ferjuskip
leggjast að
bryggju. Fram-
kvæmdinni lýkur
í júlí á næsta ári
– eða fyrir
Þjóðhátíð í Eyj-
um!
„Verkefnið er risavaxið,“ segir
Eysteinn. „Ofan af Seljalandsheiði
tókum við 730 þúsund rúmmetra af
grjóti. Snemma á þessu árin byrj-
uðum við svo að aka grjóti í
hafnargarðana tvo og vorum þar á
fullum dampi fram í september.
Þegar best lét vorum við með um
110 manns í þessu verkefni, fínan
hóp af hörkuduglegum körlum. Í
raun hefur gangurinn í þessu verk-
efni verið lyginni líkastur.“
Eftir því sem framkvæmdir við
Landeyjahöfn þokast áfram hafa
stjórnendur Suðurverks fækkað í
starfsmannahóp sínum. „Slíkar að-
gerðir eru óhjákvæmilegar, því op-
inberir aðilar virðist ekki ætla í
neinar stórframkvæmdir á næst-
unni,“ segir Eysteinn sem þykir sá
áhugi sem fólk sýnir fram-
kvæmdum í Landeyjum ánægju-
legur.
„Allt frá því mynd kom á fram-
kvæmdina hefur fólk komið hingað
í hópum til að skoða og spyrja. Á
góðum degi eru þetta heilu rút-
urnar,“ segir Eysteinn. sbs@mbl.is
Morgunblaðið / RAX
Hafnargerð Vinna við Landeyjahöfn er ein stærsta verklega framkvæmdin sem nú er yfirstandandi. Höfnin verður tekin í notkun síðla sumars 2010.
Eysteinn Jóhann
Dofrason
í Bakkafjöru
Eysteinn
Dofrason
Fram-
kvæmdin
er risa-
vaxin