Morgunblaðið - 30.12.2009, Qupperneq 26
26 Fréttamyndir af innlendum vettvangi
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Mótmæli almennings, sem skipulögð voru í fyrravetur,
náðu hámarki vikuna frá fyrsta þingfundi nýs árs og þar
til ríkisstjórnin féll mánudaginn 26. janúar. „Búsáhalda-
byltingin“, sem svo var nefnd vegna þeirra áhalda sem
mótmælendur notuðu til að láta til sín heyra, reyndist
vera mestu mótmæli á Íslandi frá 1949. Aðal mótmælin
voru framan við alþingishúsið þar sem hundruð og jafnvel
þúsundir manna komu saman. Lögreglan varði húsið. Þar
var Óslóarjólatréð og fleira lauslegt notað til að kveikja
bál og fána „Nýja Íslands“ haldið á lofti. Kvöldið eftir
beitti lögreglan táragasi til að halda aftur af mótmæl-
endum.
Morgunblaðið/Júlíus
Heit mótmæli við alþingishúsið í „búsáhaldabyltingu“
Miklar sviptingar voru í stjórn-
málum á árinu. Ríkisstjórn Geirs
H. Haarde féll þegar Samfylk-
ingin sleit samstarfinu við Sjálf-
stæðisflokkinn. Við tók minni-
hlutastjórn Samfylkingar og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs undir forystu Jóhönnu
Sigurðardóttur. Framsókn-
arflokkurinn lýsti því yfir að hann
verði stjórnina falli. Samfylking
og VG náðu hreinum meirihluta í
alþingiskosningum í apríl og
mynduðu nýja ríkisstjórn undir
forystu Jóhönnu. Tekist var á um
ýmis mál í þinginu, eins og um-
sókn um aðild að Evrópusam-
bandinu og Icesave. Jóhanna Sig-
urðardóttir sat kankvís í stóli
forsætisráðherra þegar Geir H.
Haarde fór í ræðustól sem al-
mennur þingmaður.
Morgunblaðið/Golli
Ný ríkisstjórn við völd
Dagskrá Dalai Lama, andlegs leiðtoga Tíbeta, var
þéttskipuð í heimsókn hingað til lands í byrjun júní
og opinberir fundir með honum sérlega vel sóttir.
Dalai Lama hefur verið í útlegð frá heimalandi sínu
frá því á sjötta áratugnum. Dalai Lama átti óform-
lega fundi með nokkrum ráðherrum og alþing-
ismönnum, heimsótti Alþingishúsið og fundaði með
forseta Alþingis og utanríkismálanefnd. Sendiherra
Kína lýsti yfir óánægju sinni með fundi Dalai Lama
með íslenskum ráðamönnum. Myndin var tekin þegar
Dalai Lama sótti sameiginlega friðarstund í Hall-
grímskirkju.
Morgunblaðið/Kristinn
Margir komu á fund Dalai Lama á Íslandi
Vladimir Ashkenazy, heið-
ursstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, var ánægður þeg-
ar hann skoðaði tónlistar- og
ráðstefnuhúsið við austurhöfn
Reykjavíkur. Húsið er óðum að
taka á sig mynd en framkvæmdir
hófust á vormánuðum á vegum
ríkis og Reykjavíkurborgar, eftir
nokkurra mánaða hlé vegna fjár-
hagserfiðleika fyrirtækjanna sem
stóðu fyrir uppbyggingunni. Og
nú hefur húsið fengið formlegt
nafn. Harpa mun hljóma þegar
höllin verður tekin í notkun á
árinu 2011. Morgunblaðið/Ómar
Harpa að taka á
sig mynd