Morgunblaðið - 30.12.2009, Qupperneq 28
28 Fréttamyndir af erlendum vettvangi
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Barack Obama sór embættiseið forseta Bandaríkjanna 20. jan-
úar, fyrstur blökkumanna. Tilkynnt var í október að Obama
fengi friðarverðlaun Nóbels í ár og hann tók við verðlaununum í
Ósló 10. desember. Í þakkarræðu kvaðst forsetinn taka við verð-
laununum af „mikilli auðmýkt og þakklæti“ og viðurkenndi að
ákvörðun nóbelsnefndarinnar hefði valdið deilum. Hann rétt-
lætti þá ákvörðun sína að senda 30.000 bandaríska hermenn til
viðbótar til Afganistans og sagði að stundum væri beiting her-
valds ekki aðeins nauðsynleg heldur siðferðislega réttlætanleg.
Obama sver hér eiðinn fyrir utan þinghúsið í Washington. Við
hlið hans eru eiginkona hans, Michelle, og dætur þeirra, Malia
og Sasha.
Reuters
Obama sæmdur friðarverðlaunum Nóbels
Þing aðildarríkja loftslagssamn-
ings Sameinuðu þjóðanna fór fram í
Kaupmannahöfn í desember og
embættismenn frá 192 löndum
ræddu þá aðgerðir til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda. Sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
Maldíveyja, Ibrahim Didi, und-
irritar hér áskorun um slíkar að-
gerðir á ríkisstjórnarfundi 17. októ-
ber. Fundurinn var haldinn
neðansjávar til að vekja athygli á
hættunni sem eyjunum er talin
stafa af hækkun sjávarborðs ef spár
um hlýnun jarðar ganga eftir.
Loftslagsmál í
brennidepli
Hamid Karzai sór embættiseið forseta Afganistans í
nóvember eftir að hafa verið lýstur réttkjörinn for-
seti landsins í mjög umdeildum kosningum sem fram
fóru 20. ágúst. Leiðtogar Vesturlanda styðja þá nið-
urstöðu þrátt fyrir stórfelld kosningasvik stuðnings-
manna forsetans. Önnur umferð átti að fara fram í
nóvember en ákveðið var að hætta við hana eftir að
helsti keppinautur Karzais, Abdullah Abdullah, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, ákvað að draga framboð
sitt til baka.
Abdullah ræðir hér við fjölmiðlamenn eftir kosn-
ingafund í Bamiyan-héraði 29. júlí.
Karzai hélt velli í umdeildum kosningum Mikið var um dýrðir í Líbíu í september þegar liðnir voru fjórir áratugir
síðan Muammar Gaddafi rændi völdum í landinu. Í þann tíma hefur hann
stjórnað landi og lýð sem heldur duttlungafullur einræðisherra og honum
hefur hingað til tekist að koma í veg fyrir að öðrum tækist að leika valda-
ránsleikinn eftir honum.
Gaddafi ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í fyrsta skipti 23.
september og gagnrýndi þá valdamestu ríki heims fyrir að brjóta meg-
inreglur samtakanna.
Í 40 ár á valdastóli