Morgunblaðið - 30.12.2009, Side 31
Sage Francis -
Sick of Wasting...
Ben Frost - By the
Throat
Hildur Guðnadóttir
- Without Sinking
Jóhann Jóhanns-
son - And In The ...
Snorri Helgason -
I’m gonna put ...
Hjálmar - IV
Jónsi & Alex -
Riceboy Sleeps
Ragnheiður Grön-
dal - Tregagás
Sykur - Frábært
eða frábært
Built To Spill -
There Is No Enemy
Fever Ray - Fever
Ray
DOOM - Born
Like This
Kronos Quartet -
Floodplain
Raekwon - Only
Built 4 Cuban ..
Choir Of Young Be-
lievers - This Is ...
Espers - Espers III
Grizzly Bear -
Veckatimest
Vic Chesnutt -
At The Cut
Innlent
Árni Heiðar
Karlsson - Mæri
Bróðir Svartúlfs -
Bróðir Svartúlfs
Erlent
31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Isis – Wavering Radiant
Eftir að hafa hitað upp
fyrir rokksveitina Tool
settust þeir Isis-félagar
niður til að semja nýja
skífu og kemur kannski
ekki á óvart að Wavering
Radiant varð þyngri og
hrárri en platan þar á
undan. Að öðru leyti er
þetta klassísk Isis-plata,
magnaðir gítarflekar,
dynjandi trommur og
syngjandi bassi – rokk-
plata ársins.
Mew – No More Stories Are Told
Danirnir í Mew eru gefn-
ir fyrir íburð og flúr og
láta það eftir sér á
þessari mögnuðu skífu.
Tónlistin uppskrúfað og
skemmtilegt glaðvært
geimrokk og lögin sí-
breytileg eftir því sem
oftar er hlustað á plöt-
una. Það fækkaði um
einn í sveitinni áður en
platan var tekin upp og
skilaði sér í meiri bjart-
sýni og meira fjöri.
Ekkehard Ehlers – Ballads
Á síðustu skífum hefur
Ekkehard Ehlers kannað
ýmis tónlistarsvið og
-stíla og nú kominn tími á
jazz eða í það minnsta
einskonar jazz. Hann fékk
slagverksleikarann Paul
Wirkus í lið með sér, en
líka bregður fyrir kontra-
bassa og klarínetti. Tón-
listin er ekki árennileg
við fyrstu hlustun en
smám saman áttar mað-
ur sig á snilldinni.
Laura Gibson – Beasts of Seasons
Samkvæmt sögunni sat
Laura Gibson í litlu her-
bergi með útsýni yfir
kirkjugarð og samdi
þessi lög og þegar hlust-
að er á þau má svosem
vel trúa því. Tónlistin er
hægfara og útsetningar
naumhyggjulegar, stund-
um bara rödd og ávæn-
ingur af laglínu, en hún
syngur svo frábærlega að
ekki er annað hægt en
hlusta og hrífast.
Wild Beasts – Two Dancers
Tónlist Wild Beasts er
sérkennileg blanda af
danspoppi og hreinni
nýbylgju, en aðal henn-
ar er tveir framúrskar-
andi söngvarar, annar
meistari í falsettu-
fimleikum og hinn stát-
ar af vinalegum bari-
tón. Á Two Dancers
tekur sveitin risastökk
fram á við bæði hvað
varðar músíkina og
flutninginn.
Antony & The Johnsons – The Crying Light
Á The Crying Light virð-
ist Antony Hergarty
framandlegri en nokkru
sinni, víst er röddin
heillandi fögur en hún
er að sama skapi ójarð-
nesk og upphafin. Út-
setningar á lögunum,
sem Nico Muhly vélaði
um, eru fínlegri en forð-
um og falla frábærlega
að söngnum og eins að
dulúðugum trega-
skotnum textunum.
Við þröskuldinn
Dan Deacon – Bromst
Að hlusta á Spiderman
of the Rings, sem kom
út 2007, var eins og að
vera þrifinn upp á
hnakkadrambinu og
hristur rækilega.
Bromst er allt annars
eðlis, þyngri plata og al-
varlegri um margt en
það er aldrei langt í
grallarann og inn á milli
eru sprettir af geggjuðu
fjöri og villimannslegri
keyrslu.
Bibio – Ambivalence Avenue
Bibio, eða bara Stephen
Wilkinson, hefur verið
einkar afkastamikill á
árinu – sendi frá sér þrjár
breiðskífur og erfitt að
gera upp á milli tveggja
þeirra fyrri, Vignetting the
Compost og Ambivalence
Avenue. Sú síðarnefnda
hefur þó vinninginn við
nánari skoðun eða æv-
intýramennskar meiri og
tilraunirnar skemmtilegri,
þó báðar séu frábærar.
Andrew Bird – Noble Beast / Useless Creatures
Andrew Bird er frumlegur
fýr, frábær lagasmiður,
flottur söngvari og fínn
fiðluleikari. Hann semur
einskonar kammerpopp
með óvæntum útúrdúrum
og fléttum og nær alltaf
að koma á óvart. Þessi
plata hans kom út í tveim-
ur útgáfum, báðum frá-
bærum, en sú sem er með
aukaplötunni Useless
Creatures hefur vinning-
inn.
Animal Collective – Merriweather Post Pavilion
Það var mál manna að
þegar í janúar væri
komin út plata ársins,
en þá birtist Merri-
weather Post Pavilion.
Hún er aðgengilegri en
fyrri verk Animal Col-
lective, laglínurnar
ekki eins snúnar og
textarnir (að mestu)
skiljanlegir. Verður
Animal Collective Sim-
on og Garfunkel nýrrar
aldar?
Erlendar plötur
Nú þegar árið 2010 er rétt handan viðhornið er tími til að fara að huga aðáramótaheitunum, en í þetta sinnskulu þau vera með smákryddi.
Láttu nýja árið snúast um sambandið
þitt. Ekki aðeins verður auðvelt og
skemmtilegt að reyna að ná markmið-
unum í kynlífinu heldur mun það
bæta þig og gera þig að nýrri mann-
eskju á nýju ári. Með því að strengja
einhver eða öll eftirtalinna heita get-
ur þú skemmt þér betur, aukið
ánægjuna í sambandinu og
styrkt það til muna.
Vertu hvatvísari. Jafnvel þótt
þú hafir ekki löngun í kynlíf,
reyndu að kalla hana fram.
Það er t.d. hægt að gera með
nautnafullum snertingum,
eiga frumkvæði að nýjum
kynlífsstellingum eða eiga
óvænta einkastund með makanum.
Búðu til kynlífsáætlun. Náðu þér í nokkrar
kynlífsbækur eftir vel metna sérfræðinga.
Punktaðu hjá þér þær kynlífsstellingar og -at-
hafnir sem þér líst vel á og skipulegðu nokkurs
konar æfingaáætlun fyrir kynlífið.
Klæmist hvort við annað. Hugsaðu út fyrir
rammann þegar kemur að því að tala dálít-
ið dónalega. Reyndu að vera dálítið frum-
legur enda er hægt að fá innblástur víða.
Gerðu eitthvað sem þú myndir aldrei
gera í bólinu. Þér þarf ekki endilega
að hugnast það en prufaðu það –
carpe diem. Svo geturðu notið þess
einfaldlega að hafa reynt og prufað
eitthvað nýtt.
Njótið ásta í hverju herbergi. Þó að
áramótaheit flestra miði að því að
eyða minni tíma í sófanum, getið þið
notað hann við að byrja að efna
þetta heit. Setjið það markmið að
elskast annars staðar en í rúminu og prufið
önnur herbergi í húsinu til tilbreytingar.
Leystu frá skjóðunni. Það er erfitt fyrir mak-
ann að uppfylla þarfir þínar ef hann veit ekki
hverjar þær eru. Láttu 2010 vera árið þar sem
þú ert hreinskilin(n) um hvað kemur þér til og
hvað þarf til að fullnægja þér.
Láttu athuga heilsuna … þarna niðri. Pant-
aðu tíma í allar árlegu skoðanirnar, t.d.
krabbameinsskoðun. Láttu athuga hvort þú
sért með einhverja kynsjúkdóma og birgðu þig
upp af getnaðarvörnum til að koma í veg fyrir
óundirbúna þungun.
Lærðu nýja brellu. Reyndu að læra nýtt bragð
í bólinu til að bæta á afrekaskrána en hafðu í
huga að suma tækni getur tekið langan tíma að
fullkomna, t.d. að endast lengur í rúminu.
Prufaðu einhver af þeim kynlífsráðum sem
reglulega er fjallað um í fjölmiðlum. Þú hefur
engu að tapa.
Verðið „þetta“ par. Verið parið sem er alltaf
ofan í hvort öðru og sendir frá sér smitandi
kynorku. Leggið einu sinni í viku af stað í kyn-
lífsævintýri og það er bannað að skrópa. Verið
öfunduð af erótíkinni í stað þess að öfunda
aðra.
Horfðu fram á við. Ef þú syrgir gamalt sam-
band hættu því. Þú getur ekki tekið framtíð-
inni opnum örmum ef þú ert föst/fastur í for-
tíðinni. Hugsaðu fram á við og vertu opin(n)
fyrir því sem árið 2010 hefur upp á að bjóða,
sem gæti verið betra og meira spennandi en
nokkuð sem þú hefur upplifað hingað til.
Skoðaðu heildarmyndina. Hafðu í huga að
önnur áramótaheiti bæta líka kynlífið, t.d. að
grennast og komast í gott form og hætta að
reykja. Þegar þú áttar þig á hversu góð áhrif
það hefur á kynlífið að efna þessi heit hvetur
það þig til að halda áfram á réttri braut.
Njóttu fyrirhafnarinnar! Ekki verða of upp-
tekin(n) af því að ná markmiðunum í kynlífinu
heldur njóttu þess að reyna það!
Kynlífsáramótaheit 2010
Kynfræðingurinn
Dr. Yvonne Krist-
ín Fulbright