Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 1

Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 1
M Á N U D A G U R 4. J A N Ú A R 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 1. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «VEFVERSLUN HLJÓMFAGRIR ÁLFA- SKÓR SEM GLEÐJA «STÓRAFMÆLI Matthías Johannes- sen áttræður 6 Sérblað um HEILSU fylgir Morgunblaðinu í dag VEL hefur viðrað til útivistar í froststillum og blíðviðri síðustu daga. Það hefur fólk líka nýtt sér; margir hafa gengið á fjöll, leikið sér á skaut- um eða farið í útreiðartúra. Í frosthörkum síð- ustu daga hefur ís lagt á vötnum og þau orðið vinsæl meðal hestamanna sem fyrirtaks góðir skeiðvellir. Á ísagrárri spöng hefur verið vinsælt að spretta úr spori þar sem knapar hafa leikið listir sínar á hálum ís. Morgunblaðið/Ómar HESTAMENN Á HÁLUM ÍS Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is HUGMYNDIR eru uppi um að stækka verksmiðju Actavis á Íslandi um helming. Í dag getur verksmiðj- an framleitt tæpan milljarð taflna á ári, en eftir fyrirhugaðar breytingar verður framleiðslugetan 1,5 milljarð- ar taflna. „Verksmiðjan hér á landi er alveg fullnýtt,“ segir Guðbjörg Edda Egg- ertsdóttir, aðstoðarforstjóri Actavis Group. Hún telur góðar líkur á að af áðurnefndri stækkun verði og að henni ljúki á þessu ári. Endanleg ákvörðun verði að líkindum tekin innan nokkurra vikna. Hjá Actavis á Íslandi starfa um 580 manns, en samanlagður starfs- mannafjöldi fyrirtækisins er tæp- lega 11 þúsund í 40 löndum. Stærsti hluti starfsmanna fyrirtækisins hér á landi fæst við þróun samheitalyfja, en um 160 manns starfa í verksmiðj- unni, sem er í Hafnarfirði. Gera má ráð fyrir að starfsmönn- um hér á landi fjölgi eitthvað með fyrirhugaðri stækkun verksmiðj- unnar. Að sögn Guðbjargar Eddu verður fjölgun starfsmanna þó ekki í beinu hlutfalli við stækkunina, enda felist sú hagræðing sem náist fram með stækkun verksmiðjunnar meðal annars í því að hægt verði að auka framleiðsluna án þess að fjölga starfsmönnum mikið. Actavis rekur sextán verksmiðjur víðsvegar um heiminn. Guðbjörg Edda segir að í dag sé hagkvæmast að stækka verksmiðjuna hér á landi. Íslenska verksmiðjan hafi leyfi til að framleiða flest nýrra lyfja Actavis, m.a. sökum þess að þróunarsetur fyrirtækisins er hér og því sé hægt að auka framleiðslu hraðar en í er- lendu verksmiðjunum. Mikil stækkun fyrirhuguð  Stefna á að auka framleiðslugetu Actavis á Íslandi um rúmlega helming  Verksmiðjan í Hafnarfirði sprungin  Líklegt að starfsmönnum fjölgi eitthvað Fleiri töflur Framleiðslugetan í dag er milljarður taflna á ári.  ,,Það hafa nú þegar margir sett sig í samband við mig og það er ósköp eðlilegt,“ segir Ágúst Einars- son, stjórnarformaður Framtaks- sjóðs Íslands. Lífeyrissjóðir leggja sjóðnum til 30 milljarða til fjárfest- inga í fyrirtækjum. »14 Margir leita á náðir fram- takssjóðs lífeyrissjóðanna  Biðlistar vegna hjúkrunarrýma töldu einungis 60- 70 manns um mán- aðamótin nóvem- ber/desember sl. Þetta er kúvend- ing frá því í árslok 2007 þegar 464 eldri borgarar voru á biðlista eftir hjúkrunarrými. Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu, segir skýringuna að finna í strangara vistunarmati nú en áður og betri nýtingu úrræða á borð við heima- hjúkrun og dagvistun. A.m.k. 154 hjúkrunarrými verða tekin í notk- un á árinu á nýjum hjúkrunar- heimilum en ráðgert er að bæta með því aðstöðu og fækka fjölbýl- um en ekki fjölga hjúkrunar- plássum í raun. »8 Strangara mat og minni bið Eftir Sigurð Boga Sævarsson og Hlyn Orra Stefánsson ENN er beðið eftir að forseti Íslands tikynni hvort hann staðfesti Icesve-lögin nýju, en aldrei hefur liðið jafn langur tími frá því forseti fær lög í hend- ur og þar til hann tilkynnir ákvörðun sína. Stjórn- málafræðingarnir Ólafur Harðarson og Eiríkur Bergmann segja óvissuna vegna málsins óheppi- lega. Þeir telja mögulegt að forsetinn hafi þegar gert upp hug sinn en dragi að segja frá ákvörð- uninni til að undirstrika alvöru málsins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, segir ekki mikið tilefni til biðleiks á Bessastöðum. Nú reyni á hvort forsetinn sé sjálf- um sér samkvæmur og synji lögunum staðfest- ingar – eða sýni að þeir fyrirvarar sem hann gerði þegar lögin voru samþykkt í fyrra sinnið hafi verið staðlausir stafir. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ekki öllu skipta hve langan umþóttunartíma forsetinn taki sér. Mik- ilvægt sé hins vegar að hann nýti sér frestinn vel og leiti til dæmis álits erlendra lögspekinga en þannig ætti honum að verða ljóst að samningarnir væru Íslendingum algjörlega óviðunandi. „Ekki mikið tilefni til biðleiks“  Aldrei hefur verið beðið jafn lengi eftir ákvörðun forseta  Óvissan slæm, segja stjórnmálafræðingar  Reynir á hvort forsetinn sé „sjálfum sér samkvæmur“ Morgunblaðið/Ómar Mótmæli Hvetja forseta til að neita undirskrift.  Beðið ákvörðunar forseta | 2 og 4 Morgunblaðið/RAX Undirskriftir vekja mikla athygli utan landsteinanna  Fjölmargir erlendir fjölmiðlar fjölluðu í gær um undirskriftasöfn- un Indefence-hópsins sem hvetur forseta Íslands til að synja Icesave- lögunum staðfestingar. Stöðugt fjölgar á listanum og höfðu um 62.000 manns skráð sig á hann í gærkvöldi eða vel ríflega fjórðungur kosningabærra manna. Þá má nefna að breska blaðið Gu- ardian telur talsverðar líkur á póli- tískum óróa á Íslandi í ár. »2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.