Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 7
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
39
80
1
Fjárhagsleg hagræðing
Ef fjárhagsleg staða heimilisins er ekki mjög alvarleg getur nægt
að endurskoða einstaka útgjaldaliði með þjónustufulltrúa í næsta
útibúi.
Endurfjármögnun skammtímalána
Viðskiptavinir geta sótt um að skuldbreyta skammtímalánum
en möguleikar á skuldbreytingu eru þó háðir mati á greiðslugetu
viðskiptavinar. Gefi mat jákvæða niðurstöðu er skoðað að sameina
skuldir í nýja fyrirgreiðslu eða lengja lánstíma.
Eingöngu vaxtagreiðslur í eitt ár
Viðskiptavinir geta sótt um að greiða eingöngu vexti af lánum með
veði í íbúðarhúsnæði í allt að 12 mánuði. Ef lán er í vanskilum er
skoðaður sá möguleiki að skuldbreyta vanskilunum.
Tímabundin föst greiðsla
Viðskiptavinum býðst að semja við bankann um að greiða fasta
greiðslu af íbúðalánum í tiltekinn tíma. Þetta léttir greiðslubyrðina
og gefur svigrúm til endurskipulagningar fjármála heimilisins.
Frysting afborgana í allt að þrjú ár
Viðskiptavinum stendur til boða að fresta afborgunum og greiðslu
vaxta af íbúðalánum í allt að 3 árað uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Ekkert þarf að greiða af lánum þann tíma, en höfuðstóllinn hækkar
sem nemur áföllnum vöxtum og verðbótum. Ef viðskiptavinur hefur
áður fengið frystingu dregst lengd þeirrar frystingar frá. Ef lán er í
vanskilum er sá möguleiki skoðaður að skuldbreyta vanskilunum.
Frestun vegna sölutregðu
Þeir sem eru að byggja eða hafa keypt fasteign en hefur ekki
tekist að selja eignina sem þeir áttu fyrir, geta óskað eftir að fresta
greiðslu afborgana af höfuðstóli og vaxtagreiðslum af annarri
eigninni. Þegar frystingu er aflétt bætast vextir og verðbætur við
höfuðstólinn og greiðslubyrðin er umreiknuð.
Sértæk skuldaaðlögun
Sértæk skuldaaðlögun er ætluð þeim sem eru í verulegum
greiðsluerfiðleikum.Hún felurí sérsamning milli kröfuhafa og lántaka
til þriggja ára. Skuldir sem eru umfram 110% af virði íbúðarhúsnæðis
eru felldar niður standi viðkomandi við samninginn.
Opinber greiðsluaðlögun
Opinber greiðsluaðlögun er ætluð þeim sem hafa leitað
annarra tiltækra greiðsluerfiðleikaúrræða sem eru í boði hjá
lánastofnunum og sýnt fram á að þau úrræði hafa reynst
ófullnægjandi.
Kynntu þér málin vel
Landsbankinn leggur ríka áherslu á að viðskiptavinir kynni sér vel
þær fjölmörgu lausnir sem þeim standa til boða. Nánari upplýsingar
er að finna á landsbankinn.is eða hjá þjónustufulltrúa í næsta útibúi.
Útibú Landsbankans eru opin frá kl. 11-16 í dag.
LAUSNIR FYRIR HEIMILIÐ | landsbankinn.is | 410 4000
50% endurgreiðsla vaxta
- til þeirra sem ekki hafa nýtt úrræði vegna
íbúðalána
Til að koma til móts við viðskiptavini sem ekki
hafa þurft að grípa til annarra úrræða en greiðslu-
jöfnunar mun Landsbankinn endurgreiða 50% af
vöxtum íbúðalána í íslenskum krónum sem voru
til greiðslu í desember. Endurgreiðslan verður lögð
inn á reikning viðskiptavina bankans í lok janúar.