Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 19
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ef éghefðihafthug-
mynd um það
þegar ég byrj-
aði, hvað þetta
væri mikið
mál, þá hefði
ég frekar
varið tím-
anum í að
reyna að
læra golf.
En ef maður
byrjar á
einhverju
verki af
þessu tagi,
þá er eins
gott að ljúka
því,“ segir
Áskell Þór-
isson. Hann
hefur stofnað
Litlu búðirnar,
vefverslun fyr-
ir íslenskt
handverk og
náttúruvörur.
Áskell starfar
sem útgáfu- og
kynningarstjóri Land-
búnaðarháskóla Ís-
lands en Litlu búð-
irnar eru
hugarfóstur
hans og áhuga-
mál. Staða hans
er ekki ólík því
sem handverks-
fólkið býr við,
það framleiðir
vörurnar í hjá-
verkum. Veg-
ferðin hófst þeg-
ar hann var að
leita á netinu og skoða hluti frá
handverksfólki. „Ég sá að margir
eru með heimasíður en afskaplega
misjafnar að gæðum og datt í hug
að útbúa sölusíðu,“ segir Áskell.
Stuðningur sem hann fékk hjá
Vaxtarsamningi Vesturlands gerði
honum kleift að hefjast handa.
Þýtt á erlend tungumál
Þótt enn sé verið að þróa vefinn
og sníða af honum agnúa hafa
Litlu búðirnar verið opnaðar. Þeg-
ar hafa liðlega þrjátíu framleið-
endur skráð sig inn með fram-
leiðsluvörur af ýmsu tagi.
Vörurnar eru flokkaðar niður í
átta litlar búðir.
„Það er mikil gróska í hand-
verki og margir að gera fallega
hluti. Fólk hefur í mörgum til-
vikum átt í erfiðleikum með að
koma vörum sínum á framfæri.
Litlu búðirnar munu ekki bjarga
öllu en vonandi hjálpa einhverjum
að bjóða vörur sínar til sölu sem
Handverksfólk fær inni í
litlum búðum á netinu
annars hefðu ekki lagt í það,“ seg-
ir Áskell.
Hann segir að margt hand-
verksfólk hafi fylgst með þróun
Litlu búðanna og reikna megi með
fjölgun framleiðenda á næstu vik-
um.
Næsta skrefið er að þýða vefinn
á erlend tungumál. Þegar er byrj-
að að þýða hann á þýsku og bind-
ur Áskell vonir við að það geti
skapað nýjan markað fyrir hand-
verksfólk.
Hver hlutur einstakur
Áskell tekur fram að þeir sem
kaupa vörur á vef Litlu búðanna
geti í sumum tilvikum þurft að
bíða eftir að fá vöruna afhenta.
Framleiðendur þurfi tíma til að
framleiða vöruna eða taka hana
til. Það geti til dæmis tekið hátt í
þrjár vikur að prjóna lopapeysu
og koma henni til skila, þegar
mikið er að gera.
Lögð er áherslu á að sýna af-
urðirnar á myndum og veita
greinargóðar upplýsingar um
framleiðendur og hvar þeir búa.
Áskell lætur þess getið að þótt
fólk geti valið sér vörur eftir ljós-
myndum séu þær ekki alltaf ná-
kvæmlega eins og á myndinni.
„Vörur í Litlu búðunum eru hand-
verk, hver hlutur er einstakur,“
segir Áskell.
Áskell
Þórisson
TENGLAR
.....................................................
www.litlubudirnar.is
Áskell Þórisson stofnar vefverslun með íslenskt handverk og náttúruvörur
Vonast til að geta aðstoðað handverksfólk við að koma sér á framfæri
Sturlunga Kristín
Gunnarsdóttir sækir
hugmyndina að peys-
unni til Sturlungu.
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010
• MOTORS. Tískuverslun á Laugavegi með sterk vörumerki í einkasölu og sérvörur
fyrir mótorhjólafólk. Gæti hentað vel til sameiningar.
• Rótgróið iðnfyrirtæki með bygginga- og viðhaldsvörur. Ársvelta 90 mkr.
• Þekkt iðnfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til almennings.
Ársvelta 350 mkr.
• Lítið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með álprófíla og plexigler.
Ársvelta 50 mkr.
• Heildverslun með neytendavörur. Góð örugg umboð. Ársvelta 80 mkr.
• Rótgróið framleiðslufyrirtæki tengt byggingariðnaði og viðhaldi. Ársvelta 260
mkr. Litlar skuldir.
• Lítið framleiðslufyrirtæki með örugga viðskiptavini. Tvö stöðugildi. Ársvelta 55
mkr. EBITDA 15 mkr.
• Þekkt heimilisvöruverslun. Ársvelta 120 mkr.
• Rógróið iðnfyrirtæki með öruggan markað. Ársvelta 220 mkr.
• Heildverslun með stórmarkaðsvörur (ekki matvæli). Ársvelta 120 mkr.
• Rótgróið framleiðslu og innflutningsfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til
neytenda. Ársvelta 160 mkr.
• Lítil en rótgróin bílaleiga. Auðveld kaup.
• Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup.
• Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr. Hentar vel til
sameiningar.