Morgunblaðið - 04.01.2010, Side 20

Morgunblaðið - 04.01.2010, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Pistill sem ÓliBjörn Kára-son birtir á vefsíðuni AMX í gær er athyglis- verður og afar skýr. Hann fjallar um ríkisábyrgðar- frumvarpið, sem Alþingi sam- þykkti naumlega næstsíðasta dag liðins árs. Í upphafi pistilsins segir að þungbært hafi verið að fylgj- ast með útsendingu í sjónvarpi frá þessum atburðum. Það hef- ur fleirum þótt, því landsmenn tóku í beinu framhaldi að skrifa í stórum stíl undir áskorun um að málið fengi ekki endanlegan frágang án beins atbeina þjóðarinnar. Fyrir liggur að meirihluti ís- lenskra alþingismanna er sömu skoðunar. Bent er á í pistli Óla Björns að alls ekkert bendi til þess að ríkisábyrgð hafi verið á inni- stæðusöfnun Landsbankans í Bretlandi og Hollandi enda sé slíkrar ábyrgðar hvergi getið í íslenskum lögum, sem er ófrá- víkjanleg forsenda þess að hún geti verið fyrir hendi. Slíkrar ábyrgðar sé heldur ekki getið í því regluverki Evrópusam- bandsins sem Ísland hefur gert að sínu. Og þrautav- arakenningin um að Ísland beri að minnsta kosti „sið- ferðilega ábyrgð“ fái heldur ekki staðist. Starfsemi L.Í. í Bretlandi og Hollandi hafi ver- ið lögleg þar og fylgt öllu reglu- verki Evrópusam- bandsins og fór fram með fullri vitneskju þar- lendra yfirvalda. Innistæðueigend- urnir fengu hærri vexti en gerðist og gekk, sem benti ótvírætt til aukinnar áhættu, og því hefur ekki verið haldið fram í málinu að þeir hafi ver- ið beittir blekkingum. Rök- semdir í þessum pistli eru einkar skýrt fram settar og að því leyti frábrugðnar þeim ræðum sem fluttar voru hinn örlagaríka dag og áttu að rétt- læta Icesave-gerninginn. Það er vissulega erfitt að fullyrða að einhver staða sé hundrað prósent lögfræðilega rétt þegar samningamenn ís- lensku þjóðarinnar hafa af henni þann rétt sem var frum- skylda þeirra að tryggja: Að málið yrði aldrei samþykkt án þess að réttbærir dómstólar hefðu um það fjallað. Á þetta er bent í umræddum pistli. En jafnvel án dómsniðurstöðu hlýtur hin lögfræðilega túlkun að blasa allskýrt við eftir opin- bera umræðu fjölda fræði- manna. Hún hefur í raun stutt mjög þá niðurstöðu sem fæst hjá Óla Birni Kárasyni og er þá raunar horft til þess sem lögfræðingar hafa almennt sagt um málið, óháð frá hvaða hlið þeir hafa heldur talað. Mjög athyglisverð grein um rík- isábyrgðarmálið hefur verið birt á vefnum AMX. } Lagaleg staða er skýr Ólafur RagnarGrímsson af- greiddi Icesave- málið þannig 2. september sl. að engum ætti að geta komið í hug að hann myndi stað- festa gerninginn nú, óháð gríð- arlegum fjölda áskorana. Þá var hvergi minnst á „afleið- ingar“ eins og hann reyndi að hanna í nýársræðu sinni. Svo fordæmalausir sem þeir til- burðir voru virtist þó reynt að setja þá í efnislegan búning. Þetta stjórnskipunarmál væri ekki upp með núverandi hætti nema vegna þess sem Ólafur Ragnar gerði sumarið 2004. Því hefur verið haldið fram að það verk hafi eingöngu verið unnið í hagsmunagæslu forsetans fyrir Jón Ásgeir í Baugi og Sigurð G., kosninga- stjóra forsetans. Ólafur Ragn- ar hefur reynt síðan þá að sveipa málið í annan búning, reyndar margbreytilega bún- inga, og er það skiljanleg til- raun. Með hliðsjón af því er fróðlegt að sjá að eftirmanni hans á kennarastóli í háskól- anum dettur ekki annað í hug en að þessu sinni muni Ólafur eingöngu horfa til þess hverjir séu hags- munir þeirra sem teljast til vina hans. Prófessorinn sagði: „Það er engin leið að segja það með einhverri vissu en ég mundi halda að það væru frekar minni líkur en meiri [að Ólafur Ragnar neitaði, að skrifa und- ir]. Ef Ólafur neitar að skrifa undir þetta stendur hann svo- lítið uppi vinalaus í hinu póli- tíska landslagi á Íslandi. Það er alveg ljóst að mjög stór hluti þeirra sem vilja að hann neiti að skrifa undir eru litlir vinir Ólafs og mjög stór hluti þeirra sem gera ráð fyrir að hann muni skrifa undir eru kannski helst þeir sem eru pólitískir vinir Ólafs.“ Það er athyglisvert að pró- fessor Gunnar Helgi telur borðleggjandi að Ólafur Ragn- ar Grímsson eigi fáa vini í hópi þeirra næstum 60.000 Íslend- inga sem hafa skrifað undir áskorun til forsetans. Útskýringar prófess- orsins í stjórn- málafræði um hvað ráði gerðum forset- ans eru sláandi.} Vinahagsmunir sagðir ráða STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon M atthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, skáld og rithöfundur, átti áttræðisafmæli í gær, 3. janúar. Af því tilefni hefur Bókafélagið Ugla, sem Jakob F. Ásgeirsson, veitir forstöðu, gef- ið út á bók ljóðabálkinn Hrunadansinn, sem birtist hér í Morgunblaðinu hinn 12. apríl 2006 og disk með flutningi Gunnars Eyjólfssonar leikara á því verki. Gunnar hreifst af þessu mikla ljóði Matthíasar þegar hann las það í Morg- unblaðinu og lærði utan að. Frumflutningur hans á Hrunadansinum í Rotaryklúbbi Reykjavíkur er ógleym- anlegur. Hugmyndina að þessari útgáfu á áttræðisafmæli Matt- híasar átti Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráð- herra og vinur og samstarfsmaður Matthíasar í áratugi. Hugmyndina að því að birta ljóðabálkinn með þeim hætti sem gert var í Morgunblaðinu átti hins vegar annar sam- starfsmaður og vinur Matthíasar í áratugi, Árni Jörgen- sen, fyrrverandi útlitsritstjóri Morgunblaðsins, sem kom til mín einn góðan veðurdag, hafði lesið ljóðið hjá Matt- híasi, taldi það einstakt og lagði til að það yrði birt með þeim hætti, sem gert var. Matthías dvelst nú í útlöndum ásamt sonum sínum og tengdadóttur. Saga Morgunblaðsins í bráðum 100 ár er samofin sögu íslenzku þjóðarinnar á sama tíma með sigrum og ósigrum. Matthías Johannessen ritstýrði Morgunblaðinu í rúmlega 40 ár af þessum nær 100 árum, lengur en nokkur annar. Samanlagður ritstjóraferill hans og Valtýs Stefánssonar spannar um 80 ár. Á milli þeirra voru djúp tengsl, sem áttu sér rætur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á síðari hluta 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Valtýr var sonur Stefáns Stef- ánssonar frá Heiði, síðar skólameistara á Möðruvöllum en Stefán skólameistari, dr. Valtýr Guðmundsson, einn af forystumönnum Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni og Jó- hannes Jóhannesson, móðurafi Matthíasar, voru einkavin- ir og pólitískir samherjar en Jóhannes var formaður sam- bandslaganefndarinnar, sem samdi um fullveldi Íslands við Dani 1918. Valtýr Stefánsson var skírður í höfuðið á dr. Valtý. Þegar Matthías sótti um vinnu á Morgunblaðinu horfði Valtýr á hann og sagði: Ertu ekki dóttursonur Jóhannesar bæjarfógeta? Matthías játti því. Valtýr sagði: Þú ert ráð- inn. Raunar voru tengsl fólksins á Heiði við ritstjórn Morg- unblaðsins víðtækari vegna þess að afi Sigurðar Bjarna- sonar frá Vigur, sem var einn af ritstjórum blaðsins frá 1956 til 1970, var séra Sigurður Stefánsson, bróðir Stefáns skólameistara. Sigurður Bjarnason lifir nú í hárri elli og varð 94 ára gamall nú í desember. Þótt slík ættartengsl séu ekki í uppáhaldi í nútímanum er ekki hægt að skilja Matthías Johannessen án þess að gera sér grein fyrir þessari fjölskyldusögu hans. Hann er alinn upp í andrúmi sjálfstæðisbaráttunnar. Anna móðir hans dvaldist sem unglingsstúlka á heimili dr. Valtýs í Kaupmannahöfn og var alnafna konu dr. Valtýs Guð- mundssonar, sem hét Anna Jóhannesdóttir. Þeir Matthías og Valtýr Stefánsson voru kjölfestan í rit- stjórn Morgunblaðsins frá 1924 til síðustu aldamóta og áhrifa þeirra gætir enn í hefðum, venjum og vinnubrögð- um. Þegar Matthías var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins í ágústmánuði 1959 var þjóðin í kreppu, bæði pólitískri, efnahagslegri og tilfinningalegri kreppu. Kalda stríðið hafði geisað í áratug og harkan í hinni pólitísku baráttu mikil. Þjóðin var klofin í afstöðu til aðildar Íslands að Atl- antshafsbandalaginu og veru bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þessi sundrung hafði djúpstæð áhrif á menningarlífið en á þeim vettvangi var Matthías orðinn virkur þátttakandi. Fyrsta ljóðabók hans, Borgin hló, kom út 1958. Stríðsgróðinn var horfinn og íslenzkir ráðamenn gengu á milli erlendra sendiráða og leituðu eftir lánum. Fyrsta vinstristjórn lýðveldisins hafði hrökklast frá völdum tæpu ári áður. Höft ríktu á öllum sviðum. Þegar minn árgangur útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1958 var álitamál, hvort hægt væri að fá gjaldeyri afgreiddan til að innleysa efni í stúdentshúfur. Inn í þetta andrúmsloft kom 29 ára gamall ritstjóri og vildi opna blaðið! Hann hafði áður tekið viðtal við Halldór Kiljan Laxness og birt í Morgunblaðinu en sá maður hafði þá ekki sést á síðum Morgunblaðsins lengi. Hann var vin- ur og aðdáandi Steins Steinarr, sem ekki var eftirlæti sjálfstæðismanna á þeirri tíð. En hann naut trausts þeirra Valtýs Stefánssonar og Bjarna Benediktssonar og það réð úrslitum. Og svo vildi hann fá Eyjólf Konráð Jónsson með sér sem ritstjóra og fékk því framgengt hálfu ári seinna. Þá var Eykon framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins. Að opna Morgunblaðið og rjúfa tengslin við Sjálfstæðis- flokkinn tók aldarfjórðung. Við Matthías litum svo á að því verki hefði verið formlega lokið þegar við skrifuðum bréf til þingflokks Sjálfstæðisflokksins sumarið 1983. Í áratugi höfðu fulltrúar Morgunblaðsins átt rétt til setu á þing- flokksfundum Sjálfstæðisflokksins, fyrst ritstjórar, svo leiðarahöfundar og loks þingfréttaritarar. Þetta sumar fengum við í fyrsta sinn bréf, þar sem óskað var eftir nafni þess, sem sækja mundi þingflokksfundi af blaðsins hálfu þá um haustið. Við skrifuðum svarbréf í samráði við stjórn Árvakurs hf., sem Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins, var þá formaður fyrir, og afþökkuðum boðið. Í dag er erfitt að skilja að það þótti tíðindum sæta þegar Hannibal Valdemarsson skrifaði grein í Morgunblaðið á Viðreisnaráratugnum. Að opna Morgunblaðið fyrir and- stæðum sjónarmiðum var eins konar opnun á þjóðfélaginu sjálfu, þar sem þegnarnir höfðu í raun gengið um með kreppta hnefa hver í annars garð. Matthías gekk lengra en að opna Morgunblaðið í nánu samstarfi við Eykon og Sigurð frá Vigur. Smátt og smátt byggði hann upp tengsl yfir þá djúpu gjá, sem var á milli fólks á þessum árum. Þeim varð vel til vina, honum og Þórarni Þórarinssyni, ritstjóra Tímans, og náin tengsl sköpuðust á milli Eykons og Þórarins. Snemma á áttunda áratugnum var Þórarinn tíður gestur á ritstjórnar- skrifstofum Morgunblaðsins. Þar fóru fram opinská sam- töl. Skiptar skoðanir á dægurpólitík þeirra ára skiptu engu máli. Þeim gekk líka vel að tala saman, Matthíasi og Magnúsi Kjartanssyni, ritstjóra Þjóðviljans, þótt þess sæjust engin merki á skrifum blaðanna, nema síður væri. Að því kom að Magnús vildi fremur skrifa í Morgunblaðið en önnur blöð. Ég lagði mig fram um að veita honum góða þjónustu. Eftir fall vinstristjórnar Ólafs Jóhannessonar vorið 1974 dró smátt og smátt úr kaldastríðsátökunum á hinum pólitíska vettvangi en þau lifðu góðu lífi í menningunni. Nú sneri Matthías sér að því að brúa það bil og þótti okkur yngri samstarfsmönnum hans nóg um. Við sáum að þeim fjölgaði vinstrimönnum í menningarlífinu, sem áttu erindi við Matthías. Um þessa sáttaviðleitni Matthíasar var ekki einhugur í hópi þeirra skálda og rithöfunda, sem mest höfðu orðið fyrir barðinu á þeim anda, sem ríkti á dögum kalda stríðsins. En sá, sem hafði Morgunblaðið í hönd- unum, réð ferðinni. Þegar Berlínarmúrinn féll og kalda stríðinu lauk töldum við Björn Bjarnason, sem þá var aðstoðarritstjóri Morg- unblaðsins, að þeim ósigri ætti að fylgja fast eftir gagnvart talsmönnum Sovétvaldsins á Íslandi og höfðum uppi til- burði í þá átt. Við komumst hins vegar ekkert áleiðis vegna þess að Matthías var mótfallinn því að láta kné fylgja kviði. Þegar ég horfi yfir farinn veg tel ég að opnun sam- félagsins og sættir á milli andstæðra hópa séu mesta fram- lag Matthíasar Johannessen til íslenzkra þjóðfélagsmála á seinni helmingi 20. aldarinnar og að því marki hafi hann beitt áhrifamætti Morgunblaðsins. Í útgáfu Uglu á Hrunadansinum er birt ritskrá Matt- híasar, sem vinur hans í meira en hálfa öld, Sigurjón Björnsson, prófessor í sálfræði, hefur tekið saman. Sú rit- skrá sýnir að Matthías hefur skilað tvöföldu ævistarfi. Hvernig fór hann að því? Hann var og er hamhleypa til verka. En skýringin er fyrst og fremst ein: Hanna, eig- inkona hans. Án hennar hefði vegferð Matthíasar orðið önnur. Áratugum saman ritstýrði hann Morgunblaðinu í smá- atriðum dag frá degi. En fyrst og fremst var það andi hans sem réð ferðinni. Við hinir vorum handverksmenn. Ég hef ekki vit á bókmenntum. En mér er ljóst að bók- menntaverk Matthíasar eru að verulegu leyti sprottin úr lífsreynslu hans sjálfs, sem að sumu leyti hefur verið sárari en flestir gera sér grein fyrir. Þess vegna er hann mikið skáld. Það gladdi mig mjög að sjá þá skoðun stað- festa í merkum ritdómi sem Sigurður Hróarsson skrifaði í Í tilefni af áttræðisafmæli Matthíasar Johannessen Morgunblaðið/Þorkell Hanna og Matthías Johannessen við skilti með ljóði Matthíasar í miðgarði Sólheima í Grímsnesi. Eftir Styrmi Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.