Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 21

Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 Fréttablaðið fyrir skömmu um síðustu ljóðabók Matthías- ar, Vegur minn til þín, sem kom út í haust. Þar er að finna í bókarlok ljóðið Tvö ein, sem ort er eftir lát Hönnu. Sameiginleg vinkona okkar Matthíasar, Jónína Mich- aelsdóttir, sagði við mig fyrir langa löngu að Matthías hefði „opna æð til framtíðarinnar“. Þessi orð hafa sótt á mig síðustu árin vegna umræðna um meðferð, sem ungt og umkomulaust fólk varð að sæta á opinberum meðferð- arheimilum fyrir hálfri öld eða svo. Upplýsingar um þessa meðferð hafa komið fram síðustu ár með sívaxandi þunga. Fyrir u.þ.b. 40 árum var sýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Fjaðrafok eftir Matthías. Það leikrit fjallaði um þá at- burði, sem þjóðin nú í upphafi 21. aldar skammast sín fyr- ir, að hafi orðið í okkar samfélagi og stjórnvöld hafa beðizt afsökunar á. Leikritið varð ekki til þess að opinber með- ferðarheimili væru tekin til nánari skoðunar. Þvert á móti. Höfundurinn var hrakyrtur. Hann neyddist til þess að breyta texta verksins til þess að komast hjá því að lög- banns yrði krafizt á sýninguna og Þjóðleikhúsið yrði fyrir miklum fjárhagslegum skaða. Hvernig varð Fjaðrafok til? Ég veit það ekki en mér býður í grun, að Matthías hafi séð í augum færeyskrar stúlku heila veröld þjáninga og sorgar, sem hafi knúið hann til að skrifa þetta verk. Fjaðrafok kom út í bók ásamt fleiri leikritum Matthíasar 1975. Með þeirri útgáfu birtist eins konar eftirmáli, sem hann nefnir Viðskilnaður. Þar segir: „Áður var minnzt á Bjargsmálið. Ég hitti litlu stúlk- una, sem það snerist einkum um, hún var færeysk og hét Marjun. Hún var send til Íslands svo að hún gengi ekki breiða veginn til glötunar.“ Viðskilnaður er dramatísk lesning. Þegar sá texti er les- inn nú er ljóst að Matthías hefur verið áratugum á undan sinni samtíð í sýn á meðferð svonefndra meðferðarheimila. Fjölmiðlun hefur tekið miklum breytingum á þeim ára- tug sem liðinn er frá því að Matthías Johannessen lét af ritstjórn Morgunblaðsins. Tækninni hefur fleygt fram. Nýjar samskiptaaðferðir komið til sögunnar. Nú getur hver einstaklingur sett upp sinn eigin fjölmiðil. Það er já- kvætt og býður upp á aukið lýðræði. En því miður hafa aukin gæði í fjölmiðlun ekki fylgt í kjölfarið á nýrri tækni. Þvert á móti. Matthías var mjög kröfuharður um gæði í starfi sínu sem ritstjóri Morgunblaðsins. Það átti ekki sízt við um meðferð íslenzks máls á síðum blaðsins. Ég gat ekki betur séð, hvað eftir annað, en að hann liði líkamlegar kvalir, þegar alvarlegar málvillur voru í blaðinu. Ný tækni gerir það að verkum að það herðir fjárhags- lega að fjölmiðlafyrirtækjum um allan heim og þar á með- al hér. Sú þróun hefur ekki síður komið niður á Morg- unblaðinu en New York Times. Hér kemur margt til. Mikið af fréttum og upplýsingum liggur nú fyrir á netinu dag hvern án þess að nokkur greiðsla komi fyrir. Ókeypis fréttum er ekki bara dreift á netinu heldur líka í blöðum. Þessi aukna fjölmiðlun hefur leitt til þess að auglýsinga- tekjur dreifast á fleiri aðila en áður. Niðurstaðan er að starfsemi hefðbundinna fjölmiðlafyrirtækja hefur dregizt saman. Starfsfólki hefur fækkað. Laun þeirra, sem eftir eru hafa lækkað. Það er óhugsandi að þannig haldi þetta áfram. Það er ekki ólíklegt að árið 2010 verði uppgjörsár í þess- um efnum, bæði hér á Íslandi og annars staðar. Það eru einfaldlega ekki til peningar til þess að halda svona áfram. Google-leitarvélin nýtir sér ókeypis aðgang að efni, sem aðrir hafa greitt kostnað við að framleiða til þess að selja auglýsingar, sem það fyrirtæki eitt hefur tekjur af. Hér á Íslandi er haldið úti netútgáfum sem byggjast á því að taka án endurgjalds efni frá þeim fjórum hefðbundnu fjöl- miðlafyrirtækjum sem hér eru starfrækt. Á þessu hlýtur að verða breyting, sem leiðir til þess að endurgjald komi fyrir þessa vinnu eins og aðra. Viljum við byggja líf okkar á upplýsingum sem safnað er saman á vegum svonefndra auðmanna (sem reyndar eru tæpast til lengur á Íslandi) og litaðar af sjónarmiðum þeirra? En um leið og greiðsla kemur fyrir er líka hægt að gera meiri kröfur um gæði og þá mun fólk verða vandfýsnara á upplýsingar. Þess vegna mun eðlileg þróun að þessu leyti verða þeim fjölmiðlafyrirtækjum í hag sem gera stífar kröfur um gæði, eins og Morgunblaðið gerir. Ég er því bjartsýnn á framtíð hins gamla blaðs okkar Matthíasar sem ég leyfi mér að kalla „okkar“, þótt við höfum aldrei átt krónu í því en þessi tilfinning starfsmanna Morgunblaðs- ins fyrr og síðar að þeir „eigi“ blaðið hefur alltaf verið einn mesti styrkur þess. Einn ríkasti eðlisþáttur í fari Matthíasar Johannessen er tilfinningalegt örlæti hans. Því hafa bæði ég og aðrir samstarfsmenn hans kynnzt. Mér er enn minnisstætt and- artak fyrir tæpum fjörutíu og tveimur árum, þegar hann horfði á mig, sá án orða að veröldin hafði hrunið og veitti mér þrek til að takast á við tilveruna. Ég þakka þessum gamla vini mínum og samstarfsmanni fyrir uppeldið, óska honum til hamingju með afmælið og honum og fjölskyldu hans velfarnaðar á komandi árum. Morgunblaðið/Kristinn Ritstjórar Morgunblaðsins. F.v. Matthías Johannessen, Sigurður Bjarnason frá Vigur, Eyjólfur Konráð Jónsson og Styrmir Gunnarsson. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Matthías og Jóhannes S. Kjarval árið 1968. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ritstjórar Morgunblaðsins. F.v. Matthías Johannessen, Jón Kjart- ansson, Sigfús Jónsson framkvæmdastjóri, Valtýr Stefánsson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Sigurður Bjarnason frá Vigur. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Matthías og Halldór Laxness á Morgunblaðinu árið 1980.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.