Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 28

Morgunblaðið - 04.01.2010, Page 28
28 Afmæli MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 MultiOne fylgihlutir Eigum á lager mikið úrval fylgihluta fyrir MultiOne fjölnotavélarnar. Orkuver ehf. www.orkuver.is Sími: 534-3435. MultiOne Eigum á lager nýjar MultiOne fjölnotavélar í ýmsum stærðum. Orkuver ehf. www.orkuver.is Sími: 534-3435. Hljóðfæri Dúndurtilboð!!!! Kassagítarar: 1/4 stærð kr. 10.900 pakkinn með poka, strengjasetti og stilliflautu. 4/4 stærð 15.900.- Rafmagns- gítarpakkar frá kr. 39.900. Þjóðlagagítarpakkar frá 19.900.- Hljómborð frá kr. 8.900.- Trommusett kr. 79.900.- með öllu. Gítarinn, Stórhöfða 27, sími 552 2125. www.gitarinn.is Ártúnshöfði Til leigu 76 fm á götuhæð við umferðargötu. Stórir gluggar, snyrtilegt húsnæði, flísalagt. Leigist með hita, rafmagni og hússjóði. Uppl. í síma 892-2030. Bílskúr Flash 2 Pass fjarstýringar Fjarstýringar f. bílskúrshurðaopnara. Virkar með ljósabúnaði bílsins eða mótorhjólsins. Kynntu þér málið. www.orkuver.is Sími: 534-3435. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Húsviðhald Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Kerrur Kerrur sem hægt er að fella saman - Orkel FoldTrailer kerrurnar er hægt að fella saman, þær taka því lítið pláss í geymslu. Orkuver ehf. www.orkuver.is Sími: 534-3435. Atvinnuauglýsingar Læknir óskast til starfa við Heilsugæsluna í Fjarðabyggð Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða lækni til starfa við Heilsu- gæslustöðina í Fjarðabyggð. Um er að ræða afleysingastöðu í eitt ár með möguleika á framlengingu á ráðningar- samningi. Staðan er laus nú þegar. Upplýsingar gefa: Þórarinn Baldursson yfirlæknir, sími 863 3391, Stefán Þórarinsson framkvæmdastjóri lækninga, sími 892 3095 og Emil Sigurjónsson forstöðumaður starfs- mannaþjónustu HSA, sími 895 2488. Netfang: emils@hsa.is. Raðauglýsingar 569 1100 Kennsla Upphaf vorannar 2010 Dagskóli Þriðjudagur 5. janúar Stundatöflur afhentar kl. 09:00-13:00 Nýnemakynning kl. 10:00 Föstudagur 8. janúar Kennsla hefst skv. stundaskrám Kvöldskóli Netinnritun á www.fb.is Fimmtudagur 7. janúar Innritun á staðnum frá kl. 17:00 til 19:00 Skólameistari. Tilkynningar Leyfi til veiða á sæbjúgum Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til veiða á sæbjúgum, sbr. reglugerð nr. 1051, 28. desember 2009, um veiðar á sæbjúgum. Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar, og skulu þeim fylgja upplýsingar um veiðar umsækjenda á sæbjúgum þrjú síðustu fiskveiðiár. Umsóknarfrestur er til 18. janúar 2010. Fiskistofa, 4. janúar 2010. Uppboð Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hörðuvöllum 1, Selfossi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Eyjasel 6, fnr. 219-9571, Svf. Árborg, þingl. eig. Sigrún Guðmunds- dóttir, gerðarbeiðendur Avant hf., Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., Sparisjóðurinn á Suðurlandi, Sveitarfélagið Árborg og Sýslu- maðurinn á Selfossi, fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Folaldahólar 3, Svf. Árborg, fnr. 227-7351, þingl. eig. Davíð Sigmars- son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sparisjóðurinn á Suðurlandi, Sveitarfélagið Árborg ogTryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Kálfhólar 5, fnr. 227-2776, Svf. Árborg, þingl. eig. Ásgeir Vilhjálmsson, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf., Gluggasmiðjan ehf. og Sveitar- félagið Árborg, fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Laxabakki 7, fnr. 228-1888, Svf. Árborg, þingl. eig. Sigvaldi Bjarnason og Íris Sigrid Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóðurinn á Suðurlandi, fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Lækjarbakki 9, Svf. Árborg, fnr. 227-2027, þingl. eig. Anna Margrethe Klein, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Kaupþing banki hf. og Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Oddabraut 13, fnr. 221-2581, Ölfus, þingl. eig. Guðmundur Rúnar Jóhannsson, gerðarbeiðandi Ingvar Helgason ehf., fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Vatnsholt 3, 166399, Flóahreppi, þingl. eig. Margrét Rögnvaldsdóttir, gerðarbeiðendur Fóðurblandan hf. og PON-Pétur O. Nikulásson ehf., fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Þrastarimi 23, fnr. 218-7727, Svf. Árborg, ehl. gþ., þingl. eig. Arnar Þór Sveinsson, gerðarbeiðendur Flügger ehf., Glitnir banki hf., Og fjar- skipti ehf., Selfossveitur bs. og SP Fjármögnun hf., fimmtudaginn 7. janúar 2010 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Selfossi, 30. desember 2009. Ólafur Helgi Kjartansson. MÍMIR 6010010419 I°  GIMLI 6010010419 III° Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Félagslíf Vantar þig starfskraft? atvinna Garðar Í dag er níræður mikill sómamaður og sannkallaður braut- ryðjandi, Sigurður Sigurðsson á Geirs- eyri við Patreksfjörð. Sigurður fæddist 3. janúar 1920 á Geirs- eyri við Patreksfjörð. Foreldrar hans voru Svandís Árnadóttir og Sigurður A. Guð- mundsson, skipstjóri, sem áttu jörðina Geirseyri og bjuggu þar. Þau Svandís og Sigurður eign- uðust 12 börn: Árni, Sigurður, Ásta Margrét, Þóroddur, Ingveldur Helga, Guðmundur, Guðríður Soffía, Anna María, Rögnvaldur, Ásgeir Hjálmar, Svandís, óskírð stúlka dó í fæðingu. Sigurður er kvæntur Ingveldi Hjartardóttur og eiga þau fjögur börn: Hjörtur, Ríkarður, Anna María Sigurður Sigurðsson og Sigurður Svanur. Á barnsaldri hóf Sig- urður að vinna, fyrst við búskapinn og strax á unglingsárum gerðist hann sjómaður, fyrst á v.b. Fylki og síðar á Vatneyrartogurunum Verði og Gylfa. Líklega nokkru eftir stríðslok 1945 gerðist Siggi starfsmaður Vegagerðar ríkisins og stjórnaði jarðýtu árum saman. Á þeim tímum voru jarðýtur ekki eins öflugar og nú á tímum, en ollu samt byltingu í vega- gerð og þar með samgöngum á land- inu. Ég minnist þess þegar Siggi birtist á Bíldudal eftir að hafa ýtt vegi yfir Hálfdán og hóf að ryðja veg út í Ket- ildali og að Selárdal. Við strákarnir horfðum fullir undrunar og aðdáunar á hvernig hann ruddi grjóti úr brött- um hlíðum fjallanna. Næstu árin var það aðalstarf Sigga að ryðja vegi um alla Barðastrandarsýslu. Auk Hálfdáns og Ketildala voru það vegir um Suðurfirði frá Bíldudal til Trostansfjarðar, vegurinn yfir Þingmannaheiði, Kleifaheiði og inn Barðaströnd, vegurinn yfir á Rauða- sand. Oftast var þetta klettaklifur, vandasamt og hættulegt, eins og þeg- ar hann ruddi veginn fyrir Hafnar- múlann, hátt uppi undir klettum í snarbrattri grjóturð. Þá mátti varla miklu muna, en Siggi var æðrulaus og lét sér aldrei bregða. Ég tel vafasamt, að aðrir hafi rutt eins marga kíló- metra og Siggi og er hann því sann- kallaður brautryðjandi. Siggi er ennþá vel ern og fylgist vel með því, sem fréttnæmt er. Hann gerir að gamni sínu á sinn hljóðláta en fyndna hátt og brosir góðlátlega. Ég óska Sigga innilega til ham- ingju með merkisafmælið og óska honum jafnframt góðrar heilsu og ennþá fleiri ævidaga. Jónas Ásmundsson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Jólamót Bridsfélags Reykjavíkur Jólamót BR var haldið með þátt- töku 58 para. Sigtryggur Sigurðsson og Gísli Steingrímsson sigruðu á mótinu með miklum yfirburðum. Lokastaðan var þessi. Sigtryggur Sigurðss. – Gísli Steingrss. 63,4% Páll Valdimarss. – Ragnar Magnúss. 58,8% Hermann Lárus. – Þröstur Ingimarss. 56,0% Jón Baldurss. – Þorlákur Jónsson 55,8% Sveinn R. Þorvaldss. – Guðl. Sveinss. 55,7% Bridsfélögin á Suðurnesjum Miðvikudaginn 16.desember var spilaður tvímenningur þar sem vanir og óvanir spilarar mynduðu pör sam- an og var þátttakan 12 pör eða 24 spil- ara sem er mjög gott og þar sáust margir spilarar sem ekki hafa oft sést og eru ávallt velkomnir aftur. Enn úrslit á þessu skemmtilega kvöldi urðu eftirfarandi: Kristján Pálss. – Ólafur Karvel Pálss. 65,4 % Grétar Sigurbjss. – Guðjón Óskarss. 57,5 % Kolbr. Guðveigsd. – Garðar Garðarss. 56,7 % Erla Árnadóttir – Sigríður Eyjólfsd. 56,3 % Oddur Hanness. – Sigur. Ingibjörnss. 55,8 % Aðalfundur var haldin hjá Brids- félaginu Muninn í Sandgerði þriðju- daginn 29 desember kl.19:15. Það er skemmst frá því að segja að starfsem- in hefur gengið vel og kom félagið í plúss eftir árið. Á þessum fundi kom tillaga um að gera Karl Sigurbergs- son að heiðursfélaga félagsins og var samhljóða samþykkt með lófataki. Stjórn var kjörin og hana skipa Garðar Garðarsson formaður, Dagur Ingimundarson gjaldkeri, Eyþór Jónsson ritari, og varamenn Gunn- laugur Sævarsson og Sigurjón Ingi- björnsson. Stjórnir Bridsfélagsins Munins og Bridsfélags Suðurnesja óska öllum félögum sínum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs og þakkar allar sam- verustundirnar á liðnu ári. Næsta spilakvöld á nýju ári verður spilað miðvikudaginn 13.janúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.