Morgunblaðið - 04.01.2010, Side 33
Myndir Friðriks Þórs um sér-
íslenskan veruleika eins og
Englar alheimsins og Bíódagar
gengu mjög vel og myndin Börn
náttúrunnar hefur öðlast sess í
íslenskri kvikmyndasögu eftir
að hún var tilnefnd til Óskars-
verðlauna en seinni alþjóðlegri
myndir eins og Fálkar, Niceland
og Cold Fever gengu ekki jafn-
vel. Þær höfðuðu hvorki nægi-
lega til íslenskra áhorfenda,
sem sniðgengu myndirnar, né
erlendra áhorfenda sem vilja
fremur sjá eitthvað sér-
kennilega íslenskt. Þetta er al-
gjör meinlokuklípa þar sem erf-
itt er að fjármagna íslenska
kvikmynd eins og kemur fram í
myndinni Mömmu Gógó og því
verður oft að sækja mest til er-
lendra fjárfesta og þá þarf að
höfða til breiðari markhóps.
Friðrik Þór spilar nú út öruggu
íslensku framlagi, tekur ekki
óþarfa áhættu og spennir bog-
ann ekki um of svo myndin ætti
að minnsta kosti að geta trekkt
gesti að kvikmyndahúsum hér-
lendis.
Íslenski kvikmynda-
heimurinn
Menning 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00
Forsala er hafin
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 15:00
Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas. Lau 6/2 kl. 15:00
Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 23/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Fim 14/1 kl. 19:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Tryggið ykkur sæti - miðarnir rjúka út!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lau 9/1 kl. 15:00 Sun 10/1 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00
Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Jesús litli (Litla svið)
Lau 9/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00 síðasta
sýn
Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00
Vinsælasti söngleikur ársins - sýningum lýkur í janúar
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Fös 8/1 kl. 22:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Lau 16/1 kl. 22:00 Lau 23/1 kl. 22:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Bláa gullið (Litla svið)
Sun 17/1 kl. 14:00 aukas Sun 24/1 kl. 14:00 aukas
Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Byrjaðu árið í Borgarleikhúsinu
Friðrik Þór er greinilega orð-inn meðvitaður um stöðusína sem kvikmyndahöf-undur og tilbúinn að rísa á
ný úr ösku ófrægðar og upp í hæstu
hæðir með nýjustu frásagn-
arkvikmynd sinni, Mömmu Gógó,
sem frumsýnd var á nýársdag. Síð-
ustu tvær frásagnarkvikmyndir hans,
Fálkar (2002) og Niceland (2004),
nutu ekki mikilla vinsælda en síðasta
heimildarmynd hans, Sólskinsdreng-
urinn (2009), sló aftur á móti í gegn á
heimsvísu.
Í gamansömu dramamyndinni
Mömmu Gógó endurvinnur Friðrik
markvisst einkenni höfundarverks
síns og fyrri verk og þá sérstaklega
Börn náttúrunnar (1991) en einnig
sækir hann í arf íslenskrar kvik-
myndasögu og nýtir ímyndir eldri
leikara sinna. Hann fléttar inn í frá-
sögnina svarthvítum myndbrotum af
Gunnari og Kristbjörgu (Gógó) á
yngri árum úr 79 af stöðinni (1962) en
í nýju myndinni eru þau eldri hjón.
Friðrik Þór leikur sér einnig að
mörkum lífs og listar með því að
spegla ævi sína og feril að einhverju
leyti í hlutskipti annarrar aðalpersón-
unnar, syni Gógóar (Hilmi Snæ) sem
er strögglandi kvikmyndagerðamað-
ur. Með þessum textatengslum vekur
höfundurinn áhuga og forvitni áhorf-
enda í nokkurs konar frásagnarspegli
(fr. mise en abyme) þar sem frásögn-
in verður aldrei alveg raunsæ vegna
þess að hún vísar í rammafrásögnum
til annarra frásagna sem endalaust
speglast og takast á svo úr verður af-
ar áhugaverð, samofin og flókin heild.
Það er því vart hægt að fjalla um
þessa mynd án þess að ræða um hana
út frá endurteknum stefum höfund-
arverks Friðriks Þórs. Mæðginin
sem sagan segir af berjast við sam-
félagsbákn hvort í sínu lagi. Sonurinn
er íslenskur kvikmyndagerðarmaður
með háleita listræna drauma og
brennandi ástríðu sem reynir að
komast af á ómögulegum markaði og
í fjandsamlegu viðskiptaumhverfi en
móðirin Gógó tekst á við ellina er hún
verður fangi Alzheimers-sjúkdóms-
ins og vistmaður á stofnun fyrir aldr-
aða. Friðrik Þór sýnir hér sem fyrr
samúð með hornreka aðalpersónum
og tekst einstaklega vel til að gæða
frásögnina mannlegri og grát-
broslegri hlýju.
Dulúð er áberandi í samskiptum
framliðinna og núlifandi en gamli og
nýi tíminn skáka einnig hvor öðrum í
darraðardansi kynslóðanna og átök-
um sveitar og borgar. Vegaminni
kemur fyrir þar sem ævi persóna er
vegferð og þær hverfa gjarnan á vit
minninga en einnig sækja þær í
heimahaga og náttúruna á ökutækj-
um frá ýmsum tímum og af ýmsum
stærðum og gerðum. Myndin er að-
gengilegri en til dæmis Börn náttúr-
unnar þar sem myndrænar senur og
ljóðræn frásögnin er meira meg-
instraums.
Friðrik Þór velur að vinna með
traustum samstarfsmönnum eins og
Ara, Hilmari og Árna Páli þannig að
allir þættir giftast vel. Persónusköp-
un og leikur eru framúrskarandi,
sjónræn umgjörð frábær og sagan
áhugaverð. Samfélagssýnin er
raunsæ og í henni blundar viðeigandi
ádeila á hamfarir góðærisins og til-
heyrandi kreppu.
Frásagnarspegill Friðriks Þórs
Stórgott „Persónusköpun og leikur eru framúrskarandi, sjónræn umgjörð
frábær og sagan áhugaverð,“ segir Hjördís Stefánsdóttir í niðurlaginu á
einkar lofsamlegum dómi um nýjustu mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar.
Mamma Gógó
bbbbm
Sýnd í Smárabíói, Háskólabíói, Laug-
arásbíói og Borgarbíói
Leikstjórn og handrit: Friðrik Þór Frið-
riksson. Aðalhlutverk: Kristbjörg Kjeld,
Hilmir Snær Guðnason, Gunnar Eyjólfs-
son, Margrét Vilhjálmsdóttir, Inga María
Valdimarsdóttir, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Pétur Einarsson. Kvikmynda-
taka: Ari Kristinsson. Tónlist: Hilmar
Örn Hilmarsson. Leikmynd: Árni Páll Jó-
hannsson. 90 mín. Ísland, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
SÍÐUSTU tónleikar ársins, Hátíð-
arhljómar, voru haldnir í Hall-
grímskirkju á gamlársdag. Það var
þá sem Listvinafélag Hallgríms-
kirkju bauð til slíkra tónleika í
sautjánda sinn. Þeir félagar, tromp-
etleikararnirÁsgeir H. Steingríms-
son og Eiríkur Örn Pálsson og
orgelleikarinn Hörður Áskelsson
kvöddu árið með viðeigandi lúðra-
þyt og orgelleik og fögnuðu þannig
um leið því nýja.
Fluttar voru tvær sónatínur eftir
Johann Pezel, hið fræga Adagio
eftir Giazotto og Albinoni og hin
þekkta Tokkata og fúga í d-moll
eftir J.S. Bach. Einnig var nýtt verk
eftir Áskel Másson, Giubilante,
flutt.
Morgunblaðið/Ómar
Andakt Gestir nutu helgra hljóma á þessum síðasta degi ársins og var glóð í geði að þeim loknum.
Árið kvatt
með helg-
um hljóm
Reffilegir Eiríkur Örn Pálsson, Hörður Áskelsson og Ásgeir H. Stein-
grímsson, klárir í slaginn, enda síst einhverjir aukvisar …