Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010 ARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ! EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI SEM SÉST HAFA Í LAAANGAN TÍMA! „AFÞREYING MEÐ HRÖÐUM HASAR, SJÓNRÆNUM NAUTNUM... SEM HALDA ATHYGLI ÁHORFANDANS.“ *** H.S.-MBL HÖRKU HASARMYND SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I KNOW WHAT YOU DID LAST SUMMER ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS! SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI Frá höfundum Aladdin og Litlu hafmeyjunnar kemur nýjasta meistaraverk Disney Stórkostleg teikni- mynd þar sem Laddi fer á kostum í hlut- verki ljósflugunnar Ray Valin mynd ársins af TIME MAGAZIN Tilnefnd til Golden Globe verðlauna sem best teiknaða myndin. Selma Björnsdóttir - Rúnar Freyr Gíslason Magnús Jónsson - Laddi – Egill Ólafsson AL / SELFOSSI BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 -10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L OLD DOGS kl. 8 L NINJA ASSASSIN kl. 10:20 16 / AKUREYRI BJARNFREÐARSON kl. 1:30 - 3:30 - 5:45 - 8 - 8:30 - 10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 1:30 - 4 L A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 6 7 SORORITY ROW kl. 10:40 16 / KEFLAVÍK BJARNFREÐARSON kl. 5:45 - 8 - 10:20 L PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L AVATAR kl. 8 - 11 10 SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI þess eiga lof skilið að þessu sinni fyrir hefðbundna en óvenju snarpa og oft meinfyndna ádeilu á einhverri undar- legustu stjórnsýslu og árferði í landi hinnar hnípnu þjóðar, sem er þó vel sjóuð þegar kemur að kapítula mis- viturra „landfeðra.“ Þeir voru hvergi bangnir við að að hafa forseta, ríkis- stjórn og hvítflibbakrimma sem álitu sig fjármálasnillinga og útrásarvík- inga, að aðhlátursfíflum og hin hnípna þjóð rétti örlítið úr kútnum um stund. Ekki seinna vænna, ein- hverjar mínútur til miðnættis á síð- asta degi ársins. Það var ekki aðeins skopast að stjórnarliðum og stjórnarandstæð- ingum, þingmönnum sem skripluðu á skötunni; „landsfeðrum“ og fjár- glæframönnum heldur nutu hin helgu vé; Alþingi, stjórnarráðið og Bessa- staðir þeirrar vafasömu upphefðar að vera leiksvið farsans. Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Það er lýðum ljóst að 2009 var ár sundrungar, mistaka og almennrar ringulreiðar á flestum stigum þjóð- lífsins. Við vitum líka það var lítill hópur sem dró okkur fram á hengi- flugið. Því er það einkar ánægjulegt að gefa honum á baukinn þó það græði ekki sárin sem árið skilur eftir sig. Skemmdarvargurinn fékk þó gula spjaldið, en hverjir skyldu hafa skemmt sér best? Listamennirnir að baki eiga flestir heiður skilið. Handritið var misjafnt en reis í óvæntar hæðir með hvössu gríni og orðheppni, leikstjórnin var snöfurmannleg og flestir leikaranna unnu sannarlega fyrir (s)kaupinu sínu. GRUGGSVEITIN góða og goð- sagnakennda Soundgarden hyggst koma saman á nýjan leik eftir að hafa ekki leikið saman í tólf ár. Þetta er haft eftir söngspírunni Chris Cornell. Sveitin lagði upp laupana árið 1997 en nú liggur fyrir tilkynning á vefsíðunni Soundgardenworld.com sem leiðir líkur að því að grugg- skrímslið sé að rakna úr roti. „Tólf ára hléi er lokið,“ segir Cornell. „Skólahald getur hafist á ný.“ Cornell hefur í gegnum tíðina sagt að Soundgarden myndi aldrei rífa upp hljóðfærin á nýjan leik nema að því tilskildu að allir með- limir tækju þátt. Slíkt samþykki liggur greinilega fyrir en hvað þetta mun þýða (túr, plata?) er enn óvíst. Hins vegar er á hreinu að Cornell kallinn þarf á því að halda að hrista upp í sínum ferli en síð- ustu sólóplötur hans hafa verið meira en lítið vafasamar svo ekki sé meira sagt. Soundgarden kemur saman aftur Kóngar Soundgarden, um það leyti er meistarastykkið Badmotorfinger kom út (1991), en það verk þykir einn af hornsteinum gruggsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.