Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 40
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 4. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heitast 0 °C | Kaldast 12 °C
Hægt vaxandi norð-
læg átt, bætir heldur í
vind og él austast á
landinu í dag. Frost 0
til 12 stig, mildast við sjóinn. » 10
Sæbjörn Valdimars-
son er ánægður með
skaupið og lofar
hörku handritshöf-
unda í garð skrúð-
krimmanna. »36
SJÓNVARP»
Vel heppnað
skaup
SAMFÉLAG»
Þrettán mestu aulahroll-
ar ársins. »34
Flugan gerði það
ekki endasleppt
frekar en fyrri dag-
inn og kíkti í kirkju,
á hljómleika og í
kvikmyndahús. »32
FLUGAN»
Flögrað
og flogið
TÓNLIST»
FM Belfast og Retro
Stefson á Nasa. »39
TÓNLIST»
Gruggsveitin Sound-
garden snýr aftur. »37
Menning
VEÐUR»
1. Undirskriftir gegn Icesave
2. Lýst eftir 14 ára dreng
3. Þrjár ungar systur myrtar
4. Skora á forseta að staðfesta ...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Gramophone,
stærsta og virtasta
blaðið á sviði klass-
ískrar tónlistar í
Evrópu valdi plötu
kammerkórsins
Carminu, Melodia,
sem eina af plötum
síðasta árs. Rýnir blaðsins, David
Fallows, segir alla plötuna vera stór-
sigur frá upphafi til enda.
Platan kom upprunalega út árið
2007 en fékk ekki dreifingu erlendis
fyrr en á síðasta ári. Platan hafnar í
23. sæti í ársuppgjöri blaðsins. Árni
Heimir Ingólfsson kórstjóri segist
eðlilega gleðjast innilega yfir þessari
viðurkenningu í samtali við Skapta
Hallgrímsson blaðamann. Umsagnir
sem þessar gefi góðan kraft og með-
byr sem nýtist á spánnýju ári. | 31
TÓNLIST
Kammerkórinn Carmina
lofaður af Gramophone
Landsliðsmað-
urinn Arnór Atla-
son átti virkilega
góðan leik með
danska hand-
boltaliðinu FCK
þegar liðið sigraði
Bjerringbro/
Silkeborg, 31:30, í úrslitaleik dönsku
bikarkeppninnar um helgina.
Arnór skoraði sigurmark leiksins
en hann skoraði 7 mörk í leiknum
sem háður var í Árósum að við-
stöddum rúmlega 4.000 áhorfendum.
Arnór er í íslenska landsliðs-
hópnum sem mætir til æfinga í dag
til undirbúnings fyrir Evrópumótið
en flautað verður til leiks í Austur-
ríki hinn 17. janúar og mætir Ísland
liði Serbíu í fyrstu umferð riðla-
keppninnar.
HANDKNATTLEIKUR
Arnór skoraði sigurmark
FCK í danska bikarnum
Kvikmynda-
gagnrýnandi blaðs-
ins, Hjördís Stef-
ánsdóttir, fer
fögrum orðum um
nýjustu mynd
Friðriks Þórs
Friðrikssonar,
Mamma Gógó, og gefur myndinni
fjórar og hálfa stjörnu af fimm
mögulegum. „Friðrik Þór er greini-
lega orðinn meðvitaður um stöðu
sína sem kvikmyndahöfundur og
tilbúinn að rísa á ný úr ösku ófrægð-
ar og upp í hæstu hæðir með nýjustu
frásagnarkvikmynd sinni, Mömmu
Gógó,“ segir Hjördís m.a. Þá líkir
hún myndinni við þrekvirki Friðriks
frá 1991, Börn náttúrunnar en
„myndrænar senur og ljóðræn frá-
sögnin er meira meginstraums.“ | 33
KVIKMYNDIR
Mamma Gógó Friðriks Þórs
þykir afar vel heppnuð
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
TVÖFALDUR skammtur af algengu astmapústi
hækkaði um áramót úr 1.000 krónum í 19.000
krónur, samkvæmt upplýsingum sem faðir drengs
með astma fékk í apóteki á síðustu dögum ársins.
Breytingar urðu á niðurgreiðslureglum Trygg-
ingastofnunar ríkisins vegna astmalyfja 1. janúar
en læknar geta sótt um lyfjaskírteini fyrir sjúk-
linga til að niðurgreiðslur vegna lyfjanna haldist.
Sigurður Hjörleifsson leysti út tvöfaldan
skammt af astmapústi fyrir fjögurra ára son sinn
laust fyrir áramót, en sá stutti hefur glímt við
astma frá fæðingu. „Við höfum hingað til borgað
1.000 krónur fyrir hylkin tvö en núna benti konan í
apótekinu mér á að ég væri heppinn að koma
svona snemma því eftir áramótin þyrfti ég að
greiða 19.000 krónur fyrir sama skammt. Þetta er
venjulegt astmapúst sem krökkum er gefið, Sere-
tide, en algengt er að það fari tveir svona staukar í
mánuði hjá þeim sem nota þetta reglulega.“
Ekki til samheitalyf
Aðalheiður Pálmadóttir, formaður Lyfja-
fræðingafélags Íslands segir breytingar á niður-
greiðslum vegna astmalyfja nú vera lið í aðgerðum
stjórnvalda þar sem fólki er beint að ódýrari lyfj-
um með sömu virkni. „Hins vegar er það erfitt
þegar kemur að astmalyfjunum því þar eru ekki til
samheitalyf. Um er að ræða samsetta lyfjameð-
ferð, þar sem bæði berkjuvíkkandi og bólgueyð-
andi lyf eru gefin saman í einu pústi. Í þessu tilfelli
erum við því að tala um mismunandi meðferðir –
annars vegar samsetta og hins vegar með tveimur
lyfjum sem eru ódýrari hvort fyrir sig.“
Hún segir Lyfjafræðingafélagið hafa gagnrýnt
að draga skuli úr því sem hún kallar „nútíma-
meðferð“ við astma. „Hins vegar eiga þeir, sem
hafa verið greindir með astma, að geta beðið lækn-
inn sinn um að sækja um lyfjaskírteini fyrir sig og
þá á greiðsluþátttakan vegna þessarra lyfja að
vera sú sama og áður.“ Það sé því undir lækninum
komið hvort viðkomandi þurfi að taka tvö lyf í
staðinn fyrir eitt í framhaldinu en Trygginga-
stofnun hafi tilgreint nokkuð nákvæmlega hvaða
læknisfræðilegu skilyrði þurfi að vera fyrir hendi
til að veita slíkt lyfjaskírteini.
Aðalheiður telur að kynningu á breytingunum
nú hafi verið ábótavant og því komi þær sjálfsagt
mörgum notendum lyfjanna á óvart. Hins vegar
gildi lyfseðlar, sem gefnir voru út fyrir áramót, í
þrjá mánuði með fullri niðurgreiðslu.
Reglur um astmalyf hertar
Verð á algengu astmapústi hækkar margfalt Hægt að sækja um lyfjaskírteini
sem tryggir fulla niðurgreiðslu Gamlir lyfseðlar gilda í þrjá mánuði frá útgáfu
Í HNOTSKURN
»Á árinu 2009 var reglum breyttvegna blóðfitulækkandi lyfja, maga-
lyfja, blóðþrýstingslyfja og beinþynning-
arlyfja.
»Aðalheiður bendir á að hægt er að fáupplýsingar um breytingar á
greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar í
næsta apóteki.
Morgunblaðið/Friðrik
Apótek Niðurgreiðslum lyfja hefur verið breytt.
HEFÐINNI samkvæmt hófust janúarútsölur um
helgina og var fjölmenni í verslunum. „Mér virð-
ist að þetta sé svipað og var fyrsta útsöludaginn í
fyrra en þá komu til okkar á bilinu 25 til 30 þús-
und manns,“ sagði Sigurjón Örn Þórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, í samtali við Morg-
unblaðið. Algengur afsláttur nú er 30 til 40%
sem eykst eftir því sem líður á útsölutímabilið
sem lýkur fyrstu helgi í febrúar. Þá er afsláttur
gjarnan um 75% og verður svo að vera enda
styttist þá í vorvörurnar. Að sögn Sigurjóns
gekk jólaverslun í Kringlunni vel og nokkru
fleiri komu í verslunarmiðstöðina fyrir nýliðin
jól en gerðist 2008. Magnsalan var þó minni en
veltan meiri sem skýrist af gengisbreytingum.
Örtröð á útsölum sem hófust um helgina
Morgunblaðið/Ómar
Kaupgleði og kjarakaup í Kringlunni