Morgunblaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 1
ÍSLENSKA handboltalandsliðið kom til Vínarborgar í gær og hóf strax
undirbúning fyrir stórleikinn gegn Króötum. Hann hefst klukkan 15 í
dag en Króatía og Ísland eru í tveimur efstu sætunum í milliriðli keppn-
innar. Létt var yfir íslensku leikmönnunum á æfingunni, eins og sjá má
á þeim Guðjóni Val Sigurðssyni og Vigni Svavarssyni. Allir í hópnum
eru heilir og tilbúnir í slaginn í dag. | Íþróttir
KOMNIR TIL VÍNAR OG MÆTA KRÓÖTUM Í DAG
Morgunblaðið/Kristinn
M Á N U D A G U R 2 5. J A N Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
19. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«ÞRÓAR SÉRSTAKA TÆKNI
UMHVERFIÐ SKOÐAÐ
MEÐ EINNI VÍÐMYND
«DÓMUR GÓÐIR ÍSLENDINGAR
Verið að taka
okkur öll í gegn
6
ÁN ALLRA AUKEFNA
FÆUBÓTAREFNI
ÍSLENSKTMEGRUNARFÆ Kemur í stað tveggja máltíða á
dag og inniheldur þau vítamín og
steinefni sem líkaminn þarfnast.
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
HEILDARKRÖFUR íslenskra líf-
eyrissjóða í þrotabú stóru bank-
anna þriggja, Kaupþings, Lands-
banka og Glitnis, nema um það bil
238 milljörðum króna. Kröfurnar
skiptast nokkuð ójafnt milli banka,
en samkvæmt kröfuskrá Lands-
bankans nema kröfur lífeyrissjóða
í bú bankans tæplega 100 milljörð-
um. Kröfur sem lífeyrissjóðir lýsa í
þrotabú Kaupþings nema samtals
65 milljörðum. Loks lýsa lífeyris-
sjóðir kröfum upp á samtals 73
milljarða í þrotabú Glitnis.
Lífeyrissjóður starfsmanna rík-
isins (LSR) og Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7 starfa undir ríkis-
ábyrgð. Heildarfjárhæð sem þeir
sjóðir lýsa í þrotabú bankanna
þriggja nema 41,7 milljörðum
króna. Haukur Hafsteinsson,
framkvæmdastjóri LSR, segir að
langstærstur hluti krafnanna sé
tilkominn vegna uppgjörs gjald-
miðlaskiptasamninga: „Þar er um
að ræða fjárhæðir sem við höfum
ekki lagt út. Miðað við okkar ýtr-
ustu kröfur verður ávinningur af
þessum samningum,“ segir Hauk-
ur í samtali við Morgunblaðið.
„Þá er hluti krafna sjóðanna á
hendur bönkunum tilkominn vegna
kaupa sjóðanna á skuldabréfum út-
gefnum af öðrum aðilum en bönk-
unum, eins og til dæmis Stofnlána-
deild landbúnaðarins, sem Lands-
banki Íslands tók yfir. Einnig er
um að ræða erlend skuldabréf sem
voru í vörslu sama banka. Af
tæknilegum ástæðum eru bank-
arnir rukkaðir um þetta, en við
væntum þess að fá þessi bréf
greidd upp að fullu,“ segir hann.
Haukur segir aðeins hluta
krafna LSR í þrotabú bankanna
tilkominn vegna skuldabréfa sem
bankarnir gáfu út. „Auk þess verð-
ur stærstur hluti þeirra bréfa not-
aður til skuldajöfnunar á móti
bönkunum, og lítið mun lenda á
skattborgurum,“ segir Haukur.
Krefjast 238 milljarða
Ýtrustu kröfur lífeyrissjóða í þrotabú stóru bankanna hlaupa á hundruðum
milljarða Framkvæmdastjóri LSR segir lítið munu lenda á skattborgurum
Allt bendir til þess að gjaldeyristekjur
af erlendum ferðamönnum hafi aukist um-
talsvert á síðasta ári, samkvæmt upplýs-
ingum Ólafar Ýrar Atladóttur ferðamála-
stjóra. Hún vitnar til áætlunar Hagstofu
Íslands og segir útlit fyrir að gjaldeyris-
tekjur verði um 155 milljarðar í stað 109
milljarða á árinu á undan. Að teknu tilliti
til gengis- og verðlagsáhrifa samsvarar
þessi breyting liðlega 20% raunaukningu.
Sagt er frá sóknarfærum í ferðaþjón-
ustu í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í
dag. Næstu daga verður fjallað um tæki-
færi í öðrum greinum. »12
Ferðaþjónustan skilaði
20% meiri gjaldeyri
Við blasir að aldrei mun nást sátt um
lyktir vegna Icesave-reikninga nema að
undangengnum dómi hlutlauss dómstóls
sem hefur lögsögu í málinu, segja þeir Jón
Steinar Gunnlaugsson og Sigurður Líndal
í grein í blaðinu í dag. Þeir hvetja fulltrúa
stjórnmálaflokka til að sammælast um þá
stefnu að tilkynna breskum og hollenskum
yfirvöldum að umbeðin ríkisábyrgð á
skuldbindingum Tryggingasjóðs inni-
stæðueigenda verði ekki veitt nema að
undangengnum slíkum dómi. »17
Vilja að lögð verði áhersla á að
fara með Icesave fyrir dómstóla
Sigurður
Líndal
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Á vefsíðu Times í Bretlandi í gær er sagt
frá harðri gagnrýni á Rajendra Pachauri,
formann loftslagsnefndar Sameinuðu
þjóðanna, sem m.a. er sakaður um að hafa
misnotað stöðu sína í gróðaskyni.
Stofnun hans, TERI, á Indlandi fékk á
sínum tíma styrk frá Carnegie-stofnuninni
í New York til að rannsaka hættuna á
bráðnun jökla í Himalaja. Ljóst er nú að
hættan var stórlega ýkt í skýrslu loftslags-
nefndarinnar. Upphaflega var það Global
Center, sjóður stofnaður í New York af
Kristjáni Guy Burgess, sem nú er aðstoð-
armaður utanríkisráðherra en vann þá að
sérverkefnum fyrir Ólaf Ragnar Grímsson
forseta, sem fékk styrkinn frá Carnegie en
afhenti hann TERI. » 14
Pachauri sakaður um
misnotkun á aðstöðu sinni
238
milljarðar eru ýtrustu
kröfur lífeyrissjóða
41,7
milljarðar eru ýtrustu kröf-
ur sjóða með ríkisábyrgð