Morgunblaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010
Sóknarfæri Íslands
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
L
ækkun gengis krónunnar hefur skapað
ferðaþjónustunni betri skilyrði, eins og
öðrum útflutningsgreinum. Fyrirtækin
hafa nýtt það og unnið ákveðinn varn-
arsigur með því að ná í heldur fleira ferðafólk en
árið á undan, þrátt fyrir minnkandi ferðalög
milli landa vegna heimskreppunnar.
Víða eru sóknarfæri í ferðaþjónustunni.
„Tækifærin núna liggja í því hvað krónan hefur
lækkað. Fólk áttar sig á því að það hefur nú
frekar efni á því að fara til Íslands. Það er að
vísu ekki ódýrt og hefur aldrei verið það,“ segir
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar.
Umtalsverð aukning hefur orðið á útgjöldum
erlendra gesta hér á landi, ekki síst í verslunum.
Erna segir það ekki koma á óvart og nefnir að
helmingi ódýrara sé fyrir gesti af evrusvæðinu
að borða á veitingastað hér en var þegar gengið
var sem hæst.
Byggja upp áfangastaði
Í sumar var mikið að gera í móttöku ferða-
fólks úti á landi og gisting víða uppseld á vinsæl-
ustu stöðunum. Íslendingar ferðuðust mikið um
landið í sumar og bættust í hóp erlenda ferða-
fólksins sem ávallt fer mikið um landið.
„Sóknarfærin liggja í því að byggja upp
áfangastaði og sjá til þess að þjónustan sem er
veitt sé þess virði að kaupa hana,“ segir Edward
H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamið-
stöðvar ferðamála. Hann segir að víða vanti
þjónustu sem standi undir nafni. Með því að
veita góða þjónustu séu tækifærin óþrjótandi.
„Gestirnir munu þá ferðast víðar um landið og
Vel bókað
Bjartsýni er ríkjandi í ferðaþjónustunni og
reiknað með aukningu í ár. „Það var á brattann
að sækja í fyrra. Þó var Ísland eitt fárra ríkja
Evrópu þar sem ekki varð samdráttur í ferða-
þjónustunni,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferða-
málastjóri.
Rannsóknir sýna að fólk sækir Ísland heim
vegna náttúrunnar en víðar eru tækifæri. Tölu-
verð uppbygging hefur verið í heilsu- og menn-
ingarferðaþjónustu eins og Bláa lónið og Jarð-
böðin í Mývatnssveit eru til vitnis um sem og
fjölbreytt setur og sýningar um allt land.
„Tækifærin liggja í því að bjóða gæða-
ferðaþjónustu fyrir þá markhópa sem telja sig
meðvitaða um umhverfið og vilja ævintýri og
upplifun. Ísland hefur áru skemmtilegheita og
upplifunar, við þurfum að hamra það járn
áfram,“ segir ferðamálastjóri.
Flugfélögin hafa aukið sætaframboð fyrir
þetta ár og gera ráð fyrir aukningu, bæði til Ís-
lands og yfir Atlantshafið. Helgi Már Björg-
vinsson hjá Icelandair segir að félagið geri ráð
fyrir tæplega 10% fjölgun ferðafólks til Íslands.
Bókunarstaðan er að hans sögn betri en á sama
tíma í fyrra, munar 20% í ferðum til Íslands.
Skilar sér til baka
Niðurskurður á ríkisútgjöldum bitnar á
ferðaþjónustunni, eins og öðru. Erna Hauks-
dóttir segir að fyrirtækin setji mikið fé í mark-
aðssetningu og ýmislegt sé verið að gera en gott
hefði verið að fá ríkið til að leggja meira til.
„Hver króna sem varið er til markaðsmála í
ferðaþjónustu skilar sér margföld til baka.“
Morgunblaðið/Kristinn
Mörg sóknarfæri eru í ferðaþjónustunni Byggja þarf upp nýja áfangastaði með góðri þjónustu Hagkvæmt að fjölga
ferðafólki utan háannar Beðið eftir tónlistar- og ráðstefnumiðstöðinni Hörpu Meira bókað en á sama tíma í fyrra
Ferðaþjónar á flugi
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
0
Heimildir: Útlendingaeftirlitið, Ferðamálastofa og Austfar
1979
Heildarfjöldi erlendra gesta 1979-2009
1989 1999 2004 2005 2006 2007 2008 2009
494
.0
0
0
50
2.0
0
0
4
85.0
0
0
4
22.280
374
.127
360.392
262.60
5
130.503
76.912
dvelja lengur á hverjum stað. Þegar þeir finna
áhugaverðan stað til að skoða þurfa þeir að
borða einhvers staðar og gista, þannig að þetta
helst allt í hendur,“ segir Edward.
Þarf gulrót yfir veturinn
Áhersla hefur lengi verið lögð á að lengja
ferðamannatímann. Upplýsingar Ferða-
málastofu sýna að sú viðleitni hefur ekki borið
árangur á liðnu ári. Fjölgunin er fyrst og fremst
í júlí og ágúst.
Aðstaða er því fyrir hendi til að taka við fleira
fólki vor og haust og yfir vetrarmánuðina og er
mikilvægt fyrir fyrirtækin að unnið sé að því.
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri ferðaskrif-
stofunnar Nordic Visitor, segir að fyrirtæki í
ferðaþjónustu eigi að líta á það sem tækifæri að
fá ferðafólk yfir veturinn. Það þurfi gulrót til að
fá fólkið á þeim tíma og veita þurfi umtals-
verðan afslátt. Nefnir hann að hótel úti á landi
gætu fengið fleiri gesti með því að veita góðan
afslátt en eigi möguleika á að fá í staðinn tekjur
af aukinni veitingasölu og afþreyingu.
Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðsmála hjá Icelandair, segir að
menn verði að vera meira skapandi til að fá
ferðafólk yfir veturinn. Nefnir hátíðirnar Food
& Fund og Iceland Airwaves sem góð dæmi um
það en báðar eru hluti af menningarferðaþjón-
ustu.
Slegið á strengi Hörpunnar
Nýting gistirýmis mætti vera mun betri í
Reykjavík. Stafar það meðal annars af því að
ráðstefnuhald hefur minnkað hér, eins og ann-
ars staðar í heiminum, vegna efnahagserfiðleik-
anna.
Þegar efnahagslíf heimsins nær sér á strik á
ný skapast aftur sóknarfæri á því sviði. Því til
viðbótar má nefna tónlistar- og ráðstefnu-
miðstöðina Hörpu við Reykjavíkurhöfn sem
mun stórbæta aðstöðuna. Stefnt hefur verið að
opnun hennar vorið 2011 en vegna óvissu um
framvindu verksins hefur lítið verið hægt að
vinna að markaðssetningu.
Ráðstefnugestir eru taldir góðir gestir sem
skilja mikið eftir sig í landinu og því felast mikil
sóknarfæri í Hörpu.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu hér á landi hafa unnið varnarsigur með fjölgun ferðamanna á síðasta ári. Þetta kemur fram í
fyrstu grein greinaflokks sem fjallar um sóknarfæri í atvinnulífinu og birtur verður í blaðinu á næstu dögum.
Annar hluti greinaflokks um sóknarfæri í
íslensku atvinnulífi fjallar um stöðu stórra
jafnt sem smærri verkefna í iðnaði, ný
tækifæri og möguleika á orkuöflun.
Á morgun