Morgunblaðið - 25.01.2010, Side 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FJÓRIR fyrrverandi, háttsettir
embættismenn í kommúnistaflokki
Kína reyna nú að fá stjórnvöld til að
láta lausan úr fangelsi andófsmann-
inn Liu Xiaobo, að sögn vefsíðu Gu-
ardian. Liu var í desember dæmdur í
11 ára fangelsi, sakaður um að hafa
reynt að grafa undan ríkisstjórninni.
Fjórmenningarnir hafa undirritað
opið bréf til leiðtoga Kína þar sem
aryfirmaður opinberu fréttastofunn-
ar Xinhua, og Dai Huang, áður hátt-
settur fréttamaður hjá stofunni.
Bréfritararnir eru allir á níræðis-
eða tíræðisaldri, aldurinn gæti verið
þeim nokkur vörn gagnvart ofsókn-
um. Þeir benda á að helsta sönnunar-
gagnið um undirróður Liu hafi verið
að hann hafi hvatt til þess að Kína
yrði gert að sambandslýðveldi. En
þeir segja að um sé að ræða „rétt
slagorð“ sem notað hafi verið
snemma á ferli flokksins.
Í HNOTSKURN
»Liu var einn höfundaCharter 08-yfirlýsing-
arinnar fyrir tveimur árum
þar sem krafist var pólitísks
frelsis í Kína. Um 300 manns
undirrittuðu hana, þ. á m.
landsþekktir menntamenn.
»Nýlega birtist blaðagreinvíða um heim eftir Vaclav
Havel, Dalai Lama og fleiri
þar sem hvatt var til þess að
Liu yrði látinn laus.
Gagnrýna Kínastjórn hart
Nokkrir fyrrum háttsettir embættismenn taka upp hanskann
fyrir fangelsaðan andófsmann og hylla tjáningarfrelsið
þeir eru hvattir til að láta endur-
skoða dóminn yfir Liu. Einn mann-
anna, He Fang, sem er heiðursfélagi
í akademíu félagsvísinda í Kína,
sagði að markmiðið með því væri að
„snúa við dóminum, úrskurða að Liu
væri ekki sekur og láta hann lausan.
Einnig að vernda stjórnarskrána og
tjáningarfrelsið.“ Sjálft bréfið skrif-
aði Hu Jiwei, fyrrverandi ritstjóri
hins þekkta málgagns kommúnista-
flokksins, Dagblaðs Alþýðunnar.
Hinir eru Li Pu, fyrrverandi aðstoð-
Barátta Kínverski andófsmaðurinn
Liu Xiaobo sem nú er í fangelsi.
MUNAÐARLAUST barn frá Haítí á leið úr flugvél í
Ottawa í Kanada í gær ásamt 23 öðrum börnum
sem verða ættleidd þar í landi. Vitað er nú með
vissu að minnst 150.000 manns fórust í jarðskjálft-
anum mikla í Port-au-Prince, ekki er vitað hve
margir dóu annars staðar á Haítí. Á laugardag
fannst enn fórnarlamb á lífi í rústunum, 25 ára
gamall karlmaður.
MUNAÐARLAUS EFTIR SKJÁLFTANN
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÓVEÐURSSKÝIN hrannast nú upp
yfir höfði formanns loftslagsnefndar
Sameinuðu þjóðanna (IPCC), Ind-
verjans Rajendra Pachauri, en
nefndin er sökuð um léleg vinnu-
brögð. Pachauri hefur m.a. neyðst til
að viðurkenna að dómsdagsspá í síð-
ustu skýrslu nefndarinnar árið 2007
um að líklega myndu allir jöklar í
Himalajafjöllum vera horfnir árið
2035 hafi ekki verið byggð á neinum
vísindalegum rannsóknum, að sögn
The Economist. Fleira hefur orðið
til að draga úr trúverðugleika nefnd-
arinnar. En nú er Pachauri einnig
grunaður um að hafa misnotað stöðu
sína til að græða fé.
The Economist segist hafa verið í
hópi margra fjölmiðla sem sögðu frá
fullyrðingunni ískyggilegu um jökl-
ana í Himalaja. „Í reynd er ástæðu-
laust að halda að þetta sé rétt. Það
eru góð tíðindi (að hluta til) fyrir ind-
verska bændur – en vond tíðindi fyr-
ir IPCC.“
Ljóst er að ef jöklar í Himalaja
bráðnuðu skyndilega vegna hlýn-
andi loftslags gæti það haft mjög
slæmar afleiðingar fyrir vatnsbú-
skap á Indlandi vegna þess að mik-
ilvægar ár fá vatn sitt að verulegu
leyti úr jöklunum. Pachauri stofnaði
á sínum tíma rannsóknastofnunina
The Energy and Resources Insti-
tute (TERI) í Nýju Delí en hún fékk
hálfa milljón dollara, liðlega 60 millj-
ónir króna, í styrk frá Carnegie-
stofnuninni í New York til að rann-
saka jöklana í Himalaja og afleið-
ingar bráðnunar.
Íslenski sjóðurinn Global Centre,
sem stofnaður var árið 2005 í New
York, fékk upprunalega styrkinn en
kom honum áleiðis til TERI, að sögn
vefsíðu Times í Bretlandi í gær.
TERI hafi einnig fengið mun stærri
styrk frá Evrópusambandinu vegna
sömu rannsókna.
Talað er um „Glaciergate“ Pac-
hauris á vefsíðunni með vísan til Wa-
tergate-málsins fræga í Bandaríkj-
unum. Gagnrýnendur Pachauris
gefa í skyn að ef til vill hafi viðvör-
unin um jöklana verið sett af ásettu
ráði í skýrslu IPCC til að ýta undir
að TERI fengi umrædda styrki.
Pachauri fær laun hjá TERI en neit-
ar að gefa upp hve há þau séu. Hann
vísaði því eindregið á bug á frétta-
mannafundi í Nýju Delí á laugardag
að til greina kæmi að hann segði af
sér formennsku í loftslagsnefndinni.
Loftslagsnefnd SÞ í
kröppum dansi
Economist segir trúverðugleikann hafa dvínað og formað-
urinn Pachauri er grunaður um gróðabrall og sjóðasukk
HUNDUR af tegundinni Shih Tzu á hundasýningunni miklu í Chiba í Japan
fær sér smáhvíld á púða enda dasaður að sjá. Eigandinn hefur greinilega
ákveðið að reyna að láta hvutta vinna hárgreiðsluverðlaunin á sýningunni.
Mér líður nú hálfundarlega
Hvers vegna fékk TERI styrkina?
Carnegie-stofnunin bandaríska rök-
studdi styrkinn með því að í „vel
undirbyggðri rannsókn“ IPCC komi
fram að vegna hlýnandi loftslags
muni jöklarnir í Himalaja hverfa að
mestu innan 40 ára.
Eru jöklar Himalaja að hverfa?
Jöklafræðingar benda nú á að þótt
róttækustu spár um hlýnandi lofts-
lag rætist séu jöklarnir svo hátt yfir
sjávarmáli, þar sem hitastig er lágt,
að það liðu sennilega nokkrar aldir
áður en þeir hyrfu vegna bráðnunar.
Hvernig er stærðin mæld?
Fram kemur í The Economist að
mælingar á stærð jöklanna séu
geysilega flóknar vegna samspils
milli monsúnregns og hita. Brýnt sé
að rannsaka líka samspil jöklanna
við grunnvatnsstöðu og fá niður-
stöður „sem hægt er að treysta“.
S&S
MIKIÐ hefur áunnist í baráttunni
gegn hefðbundnum limlestingum
múslímakvenna, afskurði á kynfær-
unum, víða í Vestur-Afríku, að sögn
Dagens Nyheter. Afskurður var
gerður að refsiverðu athæfi í Sene-
gal 1999 og mun að mestu horfinn í
landinu og samtökin Barnaheill hafa
nú fengið 40 borgir og bæi í Malí til
að binda enda á þessa gömlu hefð.
Talið er að um 80% kvenna í Malí
hafi sætt afskurði. Aðgerðin veldur
fórnarlambinu miklum kvölum,
blæðingum og oft sjúkdómum, kon-
urnar njóta síður kynlífs, eiga erfitt
með þvaglát og barnsfæðing verður
erfiðari en ella. Fyrirbærið er al-
gengt um nánast öll Mið-Austurlönd
og víða í norðanverðri Afríku.
Fyrir skömmu voru 45 mæður í
Níger dæmdar í sekt eða fangelsi
fyrir að hafa látið limlesta dætur sín-
ar. Í Máritaníu á vesturströnd Afr-
íku undirrituðu 34 ímamar og aðrir
lærðir kennimenn íslams yfirlýs-
ingu, svonefnda fatwa, fyrir fáeinum
vikum gegn afskurði. Cheikh Ould
Zein Ould Liman, sem er prófessor í
lögfræði í Máritaníu, bendir á að
hvergi í kóraninum séu ákvæði sem
mæli fyrir um afskurð. Því sé öðru
nær, kennisetningar íslams mæli
gegn öllu sem skaði heilsu fólks.
„Nú hafa læknar í Máritaníu ein-
um rómi samþykkt að þessi aðgerð
sé hættuleg heilsunni og þá er aug-
ljóst að íslam er á móti henni,“ segir
Ould Liman. kjon@mbl.is
Færri konur lim-
lestar í V-Afríku
Múslímaklerkar fordæma afskurð
Í HNOTSKURN
»Afskurður er miklu um-fangsmeiri og hrottalegri
aðgerð en umskurður karla.
»Við afskurð eru ytri kyn-færi stúlku, oft barn-
ungrar, fjarlægð og stundum
er saumað nær alveg fyrir op-
ið á leginu.
Reuters