Morgunblaðið - 25.01.2010, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.01.2010, Qupperneq 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010 ✝ Sigurður Elí Har-aldsson fæddist 16. nóvember 1928 og lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 14. jan- úar 2010. Foreldrar hans voru bændahjónin Járngerður Jóns- dóttir, f. 1893, d. 1974, og Haraldur Jónsson, f. 1891, d. 1974, sem bjuggu á Tjörnum undir Eyja- fjöllum. Hann var fjórði í röð níu systk- ina. Bergþóra, f. 1915, d. 1997, Sig- urður, f. 1919, d. 1998, Guðrún, f. 1923, d. 1964, Ólafur, f. 1930, d. 1998, Sigríður, f. 1931, Jónheiður, f. 1932, d. 1950, Sigurveig, f. 1934 og Grétar, f. 1937. Sigurður giftist 1953 Þorgerði Árnadóttur Blandon, f. 9. júní 1921. Hún er dóttir hjónanna Þor- bjargar Grímsdóttur Blandon, f. 1891, d. 1983, og Árna Erlends- sonar Blandon, f. 1891, d. 1981. Börn þeirra eru: 1. Þorbjörg hjúkr- unarfræðingur, f. 1945, gift Sig- urði Þorgrímssyni lækni, f. 1944. Börn þeirra eru: a. Þorgerður Elín bókmenntafræðingur, f. 1969. b. Kristín hjúkrunarfræðingur, f. 1970, gift Kára Hreinssyni lækni, f. 1966. Börn þeirra eru: Dagur, f. 2001, og Þórdís, f. 2003. c. Árni skólann og síðan í Verslunarskóla Íslands, þar sem hann útskrifaðist 1952. Hann starfaði í kjölfarið í tæpan áratug við iðnaðarfyr- irtækið SAVA sem sölu- og fram- kvæmdastjóri. Árið 1966 stofnaði hann fyrirtækið Elfur ehf. Rak hann verslanir í Reykjavik og um tíma í Vestmannaeyjum. Lengst af rak hann verslun við Laugaveginn með eiginkonu sinni og yngri dótt- ir. Þau hættu verslunarrekstri árið 1998. Samfara þessu átti hann og rak saumastofuna Skinfaxa með Guðlaugu Snorradóttur. Sigurði var alla tíð umhugað um velferð miðbæjarins og sérlega Laugaveg- ar sem verslunargötu og sat vegna þess m.a. í nefndum og ráðum borgarinnar. Hann sat lengi í stjórn Kaupmannasamtaka Íslands og var þar formaður í 4 ár, 1983- 1987. Naut hann þar samstarfs við skemmtilega og umburðarlynda menn. Hann var formaður karla- kórsins Fóstbræðra 1958-1960 og stuðlaði þá meðal annars að stofn- un Gamalla Fóstbræðra. Hann söng í kirkjukór Grensássóknar mörg ár á upphafsárum þess safn- aðar. Hann var framkvæmdastjóri orgelssjóðs Hallgrímskirkju 1988- 1992 og studdi þannig með ráðum og dáð að stóra Kleis-orgelið í Hall- grímskirkju varð að veruleika. Hann var ófeiminn að koma skoðunum sínum á framfæri bæði í ræðu og riti. Sigurður sat í full- trúaráði Sjálfstæðisflokksins í marga áratugi. Útför Sigurðar Elí fer fram frá Háteigskirkju í dag, 25. janúar, og hefst athöfnin kl. 13. Grímur læknir, f. 1977 kvæntur Stein- unni Þórðardóttur lækni, f. 1977. Börn þeirra eru Nína Þor- björg, f. 2005, og Þórður, f. 2009. 2. Haraldur læknir, f. 1954, kvæntur Guð- leifu Helgadóttur hjúkrunarfræðingi, f. 1956. Börn þeirra eru: a. Sigurður Elí viðskiptafræðingur, f. 1978, í sambúð með Kristínu Ögmunds- dóttur hagfræðingi, f. 1978. b. Kristín Þóra leikkona, f. 1982, gift Kára Allanssyni organista, f. 1982. Barn þeirra er Emil Björn, f. 2009. c. Hildur Karen verslunarskóla- nemi, f. 1990. 3. Arnheiður Erla skrifstofustjóri, f. 1957, gift Óskari Sæmundssyni rafeindavirkja, f. 1952. Börn þeirra eru: a. Ágústa Ósk söngkona/söngkennari, f. 1979. Unnusti hennar er Matthías Stefánsson tónlistarmaður, f. 1976. Börn hennar eru: Aron Elí, f. 1998, og Arnheiður Ósk, f. 2003. b. Sæ- mundur nemi í Kennaraháskóla Ís- lands, f. 1982. Börn hans eru: Kjartan Ísak, f. 2001, og Birna Lind, f. 2003. c. Sigurður Þór leik- listarnemi, f. 1988. Sigurður Elí ólst upp við sveitastörf á Tjörnum. Árið 1948 fór Sigurður í Samvinnu- Ég kveð nú með söknuði tengda- föður minn, Sigurð Elí Haraldsson, sem lést aðfaranótt 14. janúar sl. eftir erfið veikindi. Kynni okkar hófust fyrir meira en 40 árum og hafa alla tíð verið ánægjuleg og ekki borið skugga á. Sigurður kom til Reykjavíkur ungur maður og stundaði verslunar- nám. Starfsævi hans var síðan helg- uð verslun og viðskiptum. Hann starfaði upphaflega hjá verksmiðj- um SAVA þar sem hann kynntist eiginkonu sinni, Þorgerði, en hóf síð- an eigin atvinnurekstur. Lengst af var hann kaupmaður og rak versl- unina Elfur, hina vinsælu fatabúð með höfuðstöðvar á Laugavegi. Hjónin unnu bæði í versluninni. Sigurður sá um reksturinn. Hann naut sín vel sem kaupmaður. Hann var heiðarlegur, sanngjarn og traustur. Eiginkonan Þorgerður var í búðinni og seldi vöruna. Þótti hún einstaklega lipur og snjöll sölukona. Síðar kom dóttirin Arnheiður til starfa í versluninni og fleiri fjöl- skyldumeðlimir komu þar við sögu í skemmri tíma þannig að verslunin Elfur var sannkallað fjölskyldufyr- irtæki. Þegar ég minnist Sigurðar kemur ýmislegt upp í hugann. Hann var mikill framkvæmdamaður og dugn- aðarforkur og vann alla tíð mikið við byggingu eigna sinna, hvort sem var bygging íbúðarhúsnæðis eða endur- bygging verslunarhúsnæðis. Hann var ákaflega félagslyndur og mann- blendinn. Hafði hann mikinn áhuga á fólki og var fróður og ræðinn. Hann var oftast léttur í lund og sá spaugilegu hliðar tilverunnar. Sig- urður var pólitískur en mjög gagn- rýninn og sjálfstæður í skoðunum. Hann hafði mikla réttlætiskennd og virti ekki alltaf flokkslínur ef svo bar undir. Þrátt fyrir vaxandi heilsuleysi síðustu árin fylgdist hann vel með þjóðmálum og hafði á þeim sterkar skoðanir. Áhugamál Sigurðar voru fjöl- breytileg. Hann var tónlistarunn- andi og söngmaður góður og starf- aði með Fóstbræðrum um langt árabil. Hann var formaður Kaup- mannasamtakanna um tíma og sinnti því vel eins og öðru. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir, sér- staklega knattspyrnu og voru farnar ófáar ferðir með honum á völlinn. Þá hafði hann mikla ánægju af að ferðast og fræðast. Þrátt fyrir erilsamt starf var Sig- urður mikill fjölskyldumaður. Hann var stoltur af fjölskyldu sinni og um- hugað um velferð hennar. Það var aðdáunarvert að fylgjast með hvað hann sýndi barnabörnum sínum mikinn áhuga. Fengu þau að njóta athygli hans og velvildar. Hann gaf þeim gott veganesti og góðar minn- ingar sem mun vafalítið hjálpa þeim á lífsleiðinni og gera þau að betri einstaklingum. Sigurður fékk erfiðan sjúkdóm fyrir mörgum árum sem smám sam- an ágerðist og lagði hann að lokum að velli. Síðustu vikurnar voru erf- iðar og ljóst hvert stefndi. Allan þennan tíma heyrðist hann aldrei kvarta heldur tók hann örlögum sín- um með æðruleysi. Hann hélt áfram að hafa meiri áhuga á öðrum en sjálfum sér meðan hann gat og mað- ur skynjaði sterkt eins og alltaf áður hvað fólki þótti vænt um hann. Sigurðar er sárt saknað af eig- inkonu og samheldinni fjölskyldu en sorginni fylgja góðar minningar sem munu hjálpa þeim sem eftir lifa. Sigurður Þorgrímsson. Við dánarbeð Sigurðar var lítið myndaalbúm. Það var ljóst hvert stefndi, langa ferðin hans Sigurðar Elís tengdaföður míns var um það bil að hefjast. Myndirnar hjálpuðu að tengja saman yndislegar og góð- ar minningar frá tæplega 40 ára samveru okkar sem aldrei bar skugga á. Það er sannarlega ekki sjálfgefið, við veljum okkur maka, tengdaforeldrarnir fylgja bara með! En betri afa handa börnunum mín- um er ekki hægt að velja né biðja um. Vinnudagurinn hans Sigurðar var oft langur, hann rak eigið fyrirtæki og var virkur í félagsmálum. En aldrei hafði hann það mikið að gera að barnabörnin hans gleymdust. Vakinn og sofinn fylgdist hann með, hvort sem það voru íþróttir eða dans, söngur eða leiklist, blaðaskrif eða hvað annað sem gert var. Þar sem börnin voru, þar var afi. Ekkert að trana sér fram, heldur uppörvandi og jákvæður. Jafnvel þótt glíman við Parkin- son-sjúkdóminn hafi verið orðin erf- ið, þá var lífsviljinn og dugnaðurinn aðdáunarverður og hann hélt áfram að mæta í hjólastólnum sínum, öll- um til ómældrar gleði. Við hjónin vorum ung og óreynd þar sem við bjuggum í risíbúð fyrir ofan skrifstofuna hans Sigurðar. Vinalegt brakið í stiganum hljómar ljúflega í minningunni þegar afi var að koma að líta eftir nafna sínum, fylgjast með honum borða fyrsta grautinn, halda á honum eða bara horfa á hann. Tónninn að góðri og traustri samveru var gefinn. Sú var tíðin að Sigurður var léttur á fæti, hann og Þorgerður létu sig ekki muna um að koma í skammdeg- inu til okkar á Fáskrúðsfjörð og ófá- ar voru ferðir þeirra til okkar á námsárum erlendis. Alltaf var hann uppbyggjandi. Með litla segulband- inu sínu tók hann upp samtöl við börnin. Hann fékk þau til að láta móðan mása um heima og geima. Fyrir vikið eru til óborganlegar hljóðmyndir frá mismunandi tímum í lífi barnanna. Ekki voru tengdaforeldrar mínir síður duglegir að ferðast með barna- börnin hér innanlands, oft nokkur frændsystkini! Afi fræddi þau um landið og söguna með þeim hætti að börnin skildu og mundu. Þessir fróð- leiksmolar rötuðu gjarnan til for- eldranna í næstu ferð með ungviðið framhjá fjalli eða fossi, sem Sigurð- ur hafði gert ógleymanleg. Syrgja þau nú afa sinn sárt en orna sér við minningar og veganesti sem hann gaf þeim fyrir lífsleiðina alla. Síð- ustu ár hafa Sigurður og Þorgerður dvalið saman í öruggu skjóli hjá frá- bæru starfsfólki í Sóltúni þar sem þau hafa stutt hvort annað. Ég veit að söknuður hennar er mikill þegar hún sér nú á bak eiginmanni sínum, sem var góður og traustur ævifélagi. Ég bið góðan Guð að blessa minn- ingu Sigurðar Elís. Guðleif Helgadóttir. Mér þykir merkilegt að hugsa til þess að þegar ég fæddist var Sig- urður Elí Haraldsson, afi minn, nokkurn veginn á sama aldri og ég er núna. Mér fannst hann eiginlega orðinn nokkuð gamall en samt var hann rétt orðinn fertugur. Við urð- um fljótlega góðir vinir, hann las stundum fyrir mig sögurnar um Hjalta litla og Sálminn um blómið fyrir svefninn og spilaði stundum Töfraflautu Mozarts af heljarmiklu hljómplötusetti og útskýrði fyrir mér söguþráðinn og hlutverkin á meðan við hlustuðum. Stundum sat ég hjá honum þegar hann var við vinnu á skrifstofunni sinni og þá fékk ég svokallað vinnu- dót og sat ábúðarfull með honum og þóttist fylla út póstkröfubeiðnir og tollafgreiðsluskjöl. Allt flokkaðist þetta undir það sem afi kallaði bardús. Bardús er ekki beinlínis vinna og það er heldur ekki leikur. Þegar maður bardúsar nýtir maður tímann á meðvitaðan hátt, í bardúsinu renna vinna og leikur einhvern veginn saman. Við vorum semsagt alltaf að bardúsa eitthvað saman. Við vorum hins veg- ar ekki alltaf sammála, mér fannst hann til dæmis fulldómharður í garð barnabóka sem fjölluðu um ungar stúlkur á heimavistarskólum en þeim hafði ég mikið dálæti á. Og mér þótti hann stundum syngja helst til hátt í sálmasöngnum þegar ég fór með honum og ömmu í Grens- áskirkju, þá hafði ég stundum áhyggjur af því að fólk færi að horfa á okkur. Með tímanum áttaði ég mig hins vegar á því að þetta var auðvit- að gott, því ég gat þanið raddböndin í skjóli hans. Stundum er nefnilega gott að geta staðið í skjóli hinna sterku og afi var einmitt þannig, hann var sterkur og ákveðinn. Heiðarleiki og réttlætis- kennd einkenndu ekki aðeins orð hans heldur einnig verk hans og framgöngu. Hann hjálpaði þeim sem voru hjálparþurfi án málalenginga, hann var maður framkvæmda og kaus því að láta verkin tala. Og hann átti auðvelt með að hrífa fólk með sér, ég man til dæmis eftir því að hafa eytt dágóðum tíma í það að hengja upp veggspjöld fyrir orgel- sjóð Hallgrímskirkju, sem ég hafði engan sérstakan áhuga á, en afi var hins vegar framkvæmdastjóri þess sjóðs. Ekki man ég hvernig hann fékk mig í þetta verkefni með sér, líklega hef ég bara litið á það sem hvert annað bardús. Ef afi tók að sér að skaffa orgel þá gekk hann í málið af einbeitni og ástríðu, hann var ein- faldlega þannig maður. Þegar ég hugsa um afa þessa dag- ana sé ég hann oftast fyrir mér standandi einan í hálfbyggða húsinu sínu við Laugaveginn. Hann hafði ákveðið að stækka það, í þessu húsi ætlaði hann bæði að vinna og búa. Á þessum tíma vorum við systurnar á unglingsaldri og komum stundum við hjá honum í bæjarferðum okkar. Alltaf tók hann okkur fagnandi þó að við höfum eflaust verið að trufla hann við vinnuna. Ég man eftir því að hafa stundum efast um að honum tækist nokkurn tímann að ljúka við þetta hús, en húsið reis og stendur enn. Svona ætla ég að muna eftir afa, í miðju bardúsi með glettið blik í brúnu augunum. Ég er honum óend- anlega þakklát fyrir vináttuna og umhyggjuna og kveð hann nú með miklum söknuði. Þorgerður E. Sigurðardóttir. Í dag mun ég ásamt fólkinu hans afa kveðja hann. Ég mun kveðja hann með miklum trega í hjarta. Það eru óteljandi ástæður fyrir þeim trega sem í hjarta mínu er. Ég mun sakna hlýja brossins og góðlátlegu spurninganna sem hann spurði mig alltaf um leið og ég kom inn um dyrnar. Þær voru ætíð um börnin mín, mig sjálfa og fólkið í kringum mig. Ég hafði það alltaf á tilfinning- unni að það mikilvægasta í lífi afa væri það að fólkinu hans liði vel og ef það var raunin þá leið honum vel og sofnaði vært á kvöldin. Hann er dæmi um mann sem hugsaði alltaf fyrst um aðra áður en hann leiddi hugann að sjálfum sér. Ég vissi alltaf að ef ég kom til afa með hvers kyns umræðuefni þá myndi hann leggja allt til hliðar og gefa mér 100% athygli á meðan við ræddum saman. Einnig gat ég alltaf verið viss um það að í kjölfarið fengi ég eitt af hans yndislegu viskubrot- um, sem sögð voru af þeim mesta heiðarleika sem afi átti og sá heið- arleiki var mikill, því sannari mann en hann var vart hægt að finna. Ég held að þessi eiginleiki sé einn sá dýrmætasti sem hann hefur smitað fólkið sitt af. Mottó afa var, bæði sem einstaklings og kaupmanns, að ef heiðarleikinn fylgir máli þá vegn- ar manni vel og mikið er ég sammála honum. Hann var fyrirmynd í sínu lífi og mjög gott eintak af fyrir- mynd. Mér finnst ég vera mikil forrétt- indakona að hafa verið eins tengd afa mínum og raunin var. Mér finn- ast það einnig forréttindi að hafa fæðst af því fólki sem ég fæddist af. Afi og amma voru ótrúleg hjón, því- lík virðing og samheldni er ekki auð- fundin. Þau treystu hvort öðru fyrir öllu og stóðu saman í hvaða raun sem var. Þau glöddust saman og úðuðu kærleika á alla sem í kringum þau voru og eru þau líklega ástæða þess að ég á þann draum að verða amma, annan draum á ég líka og hann er sá að eiga hjónaband sem er eins traust og flott og þeirra var. Að skrifa minningargrein er eitt það erfiðasta sem ég hef gert. Það er svo margt sem ég myndi vilja segja en það er óumræðilega erfitt að koma því í orð. Afi vissi hvar hann hafði mig, hann vissi að ég bar virðingu fyrir honum og hans skoð- unum, hann vissi að ég elskaði hann og að mér fannst gott að vera í kringum hann. Setning sem lifði í gegnum öll árin okkar saman var: „Afi og Ágústa eru vinir!“ Elsku afi minn nú kveð ég þig að sinni. Ég kveð með trega, söknuði og miklu þakklæti. Takk fyrir hver þú varst í mínu lífi og barnanna minna. Ég hlakka til að sjá þig á himnum, viltu taka frá stað fyrir mig sem er nálægt þér, ég vil vera þar. Ég elska þig. Þín Ágústa Ósk. Í dag kveðjum við elsku afa okk- ar. Þegar við sitjum hér saman bræðurnir og rifjum upp árin með afa þá er það okkur efst í huga hve kærleiksríkur hann var, hversu mik- ið hann gaf af sér og sýndi okkur og öllu sem við tókum okkur fyrir hendur mikinn áhuga. Það var alveg sama hvað við vorum að gera, hvort við vorum að keppa í golfi, fótbolta, syngja á tónleikum, veiða eða bara berjast áfram í skólanum þá var afi alltaf mættur til að hvetja, styðja og vera til staðar. Það var eitt sem gaf manni alltaf von þegar illa gekk í golfinu, þegar maður sá afa koma röltandi þvert yfir allan golfvöllinn með snickers og djús í poka. Afi var líka svo óskaplega vitur og skynsamur. Alltaf var hægt að leita til hans þegar eitthvað bjátaði á og alltaf gat hann gefið okkur góð ráð. Eitt er okkur báðum samt minnis- stæðast og það eru hin margrómuðu ferðalög sem afi og amma tóku okk- ur með í. Við erum sammála um að þetta sé með því allra skemmtileg- asta sem við gerðum þegar við vor- um litlir. Það var ekki endilega það að það væri endalaust verið að leika við okkur eða hafa fyrir okkur, held- ur var nærvera þeirra og kærleikur svo mikill að okkur leið sjaldan bet- ur. Líf okkar með ömmu og afa hefur verið yndislegt og því kveðjum við afa með gríðarlegum söknuði, miklu þakklæti og virðingu. Það eru okkur mikil forréttindi að hafa fæðst inn í hans fjölskyldu, hafa fengið tæki- færi á að kynnast honum svona vel og fá að eiga hann sem fyrirmynd því að betri fyrirmynd er vart hægt að finna. Við elskum þig afi! Sæmundur og Sigurður Þór. Tilfinningarnar hafa verið blendn- ar síðustu daga, söknuðurinn svo sár en á sama tíma þakklæti til skap- arans fyrir að hafa gefið okkur ynd- islegan og kærleiksríkan afa. Minningarnar um dýrmætar sam- verustundir lifa, öll skemmtilegu ferðalögin sem við fórum í með frændsystkinum okkar, ótrúlegt að afi og amma skuli hafa nennt að ferðast með okkur vítt og breitt um landið. Önnur ljúf minning er þegar við fylgdumst með afa úr eldhús- glugganum sópa snjónum af bíl- skúrsþakinu til að gefa fuglunum að borða, það gerði hann alltaf á meðan hann hafði heilsu til, afi hugsaði vel um alla. Eitt sinn spurði Hildur Karen afa hvað væri eftirminnileg- ast þegar hann liti til baka, svarið var að hann hefði verið mikill ham- ingjumaður í sambandi við fjöl- skyldu sína og störf. Þessi orð lýsa hans karakter mjög vel, hann setti fjölskylduna alltaf í fyrsta sæti og það sýndi hann í verki. Afi sýndi öllu sem við systkinin tókum okkur fyrir hendur áhuga. Hvort sem það var íþróttakappleikur, leikrit eða kór- söngur, þar var afi mættur. Elsku hjartans afi! Rosalega söknum við þess að geta ekki talað við þig og það er tómlegt að hugsa Sigurður Elí Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.