Morgunblaðið - 25.01.2010, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 25.01.2010, Qupperneq 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ELSKA MÁNUDAGA ÖFUGA SÁLFRÆÐIN ER EKKI AÐ VIRKA HÆTTU AÐ GLOTTA HVERNIG VITUM VIÐ HVENÆR DAGURINN BYRJAR AÐ RENNA? VIÐ RÁÐUMST INN Í DAGRENNINGU! AF HVERJU ERTU SVONA LEIÐUR, GULLI? ÚT AF KÆRUSTUNNI MINNI! HÚN TRAÐKAR BARA Á MÉR ÉG REYNI AÐ HJÁLPA TIL OG HALDA HÚSINU HREINU, EN HÚN FER MEÐ MIG EINS OG... DYRAMOTTU? JÁ, NÁKVÆMLEGA! EINS OG DYRAMOTTU! BANK! BANK! ER ÞETTA ÞAÐ SEM ÞÚ KALLAR RÓMANTÍSKA HELGAR- FERÐ? ER ÞETTA ALLT MÉR AÐ KENNA? ÞETTA ER ALVEG EINS OG SÍÐASTA FERÐ SEM VIÐ FÓRUM Í! ÉG HEF NÓG ANNAÐ AÐ KVARTA YFIR! ER ÞAÐ?!? ÉG LÍKA! ER ALLT Í LAGI HÉRNA? JÁ, AUÐVITAÐ ALLT Í LAGI ÞÚ GETUR ALLTAF KVARTAÐ YFIR HENNI! ALLT Í LAGI. ÞÚ GETUR KOMIÐ MEÐ MÉR Í VINNUNA EN UM LEIÐ OG ÉG FER AÐ ELTAST VIÐ VULTURE ÞÁ FERÐ ÞÚ Í ÖRUGGT SKJÓL TAXI!! ÉG GET EKKI LEYFT ÞÉR AÐ FARA ÁN MÍN Icesave ÞETTA er orðið yfir- gengilegt rugl hjá for- ystumönnum þjóð- arinnar. Jóhanna og Steingrímur segja að ekki hafi borist svar frá Bretum og Hollend- ingum. Svar við hverju? Er það venjan í þeirra lífi, að fólk svari spurn- ingum áður en spurt er? Þau segja, að ekki hafi verið farið fram á við þessar þjóðir að ræða nýja samninga. Og þetta er staðfest af Hollendingum að sé rétt. Lesandi Morgunblaðsins. Um hreinlæti til orðs og gerða ÞAR sem fastan er nú á næstu grös- um, flögrar að okkur sitthvað sem henni tengist, meðal annars heiti þeirra matvæla sem okkur þykir þá gott og tilhlýðilegt að neyta, svo sem þeirra sem heita hrútspungar. Á það drap einn af þeim sem sendi Velvak- anda línu af því tilefni fyrir nokkrum dögum, línu sem rifjaði upp fyrir mér broslega minningu. Í minni fæðingarsveit var mikillar vandfýsi gætt bæði í orðum og at- höfnum, ekki síst þegar börn voru nærstödd. Allt sem kallaðist bölv eða klám var stranglega bannað eða milduð orð notuð í stað hinna grófu og dónalegu svo sem bönvaður eða bévaður. Pungur var algert bannorð meðal barna, svo sem heiti þeim tengdra líkams- hluta manna og dýra. Neysla hrútspunga kom ekki til greina, þótt okkur væri ljóst að hún tíðkaðist meðal lakar siðaðs fólks. Þeg- ar leið á æsku mína fluttist í hreppinn kona sem var vön þeirri neyslu og taldi pungana vera hinn besta þorra- mat. Að öðru leyti var þetta hin besta kona. Eftir framhalds- skólanám settist ég að í Reykjavík þar sem almenningur var vanur sömu neysluháttum og þessi kona. Þá kom ég snemma á föstunni í matvörubúð sem ég verslaði jafnan við og var afgreiðslufólkinu vel kunn- ugur. Ein afgreiðslustúlkan hvíslaði því að mér undir fjögur augu að fyrr um daginn hefði komið inn í búðina vel klæddur og kurteis maður og spurt sig lágværum rómi hvort þau hefðu til sölu í þessari búð súrsuð kynfæri. Sagðist hún hafa átt erfitt með að stilla sig um að skella upp úr, en svaraði þó manninum á sama hátt: Jú þau eru til í kjötborðinu. Torfi Ólafsson, Melahaga 4, Reykjavík. Ást er… … að vilja bindast einhverjum traustum böndum. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út- skurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Handavinna/smíði/ útskurður kl. 9, félagsv. kl. 13.30, myndlist kl. 16. Þorrablót 22. jan. kl. 12. Bólstaðarhlíð 43 | Þorrablót 29. jan., matur, Þorvaldur Halldórsson leikur, karlakvarttettinn Sparitónar, happ- drætti og fjöldasöngur. Skráning og greiðsla f. 27. jan. í s. 535 2760. Dalbraut 18-20 | Myndl./postulín kl. 9, leikf. kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, bænast. kl. 9.30, leikf. kl. 11 Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, æf. hjá Blásarasv. FEB kl. 19.30. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30, gler-/postulín kl. 9.30, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræf. kl. 16.45, trésk.kl. 18 og skap.skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- lín kl. 9, ganga kl. 10, handav. og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30 Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikf. kl. 8, kvennaleikf. kl. 9.45/ 10.30/11.15, bókband Kirkjuhvoli kl. 10, gönguh. frá Jónshúsi kl. 11. Félagsstarf Gerðubergi | Handavinna og tréútsk.. kl. 9, leikfimi kl. 10.30, spilasalur opinn frá hád., World Class kl. 13, kóræfing kl. 14.30. Grensáskirkja | Miðvetrarsamvera 27. jan. kl. 12.10, helgistund, matur verð kr. 1.500. Skrán. í s. 528 4410 f. hád. á morgun. Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13 í Setr-inu, kaffi. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, út- skurður kl. 10, bænastund kl. 11.45, myndlist kl. 14.30. Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10, Gaflarakórinn kl. 10.30, trésk. kl. 13, boccia og félagsv.kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30, 10.30, vinnust. kl. 9, brids kl. 13. Hæðargarður 31 | Hringborð kl. 8.50, Stefánsg. og listasm. kl. 9, félagsv.kl. 13.30, skapandi skrif kl. 16, tölvulb. kl. 13. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egils- höll kl. 10. Sundleikf. í Grafarvogs- sundl. á morgun kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hring- borðið, spjall kvenna kl. 10.30, handv. /bókastofa kl. 11.30, prjónakl. kl. 13, boccia kl. 13.30, söngstund kl. 15. Norðurbrún 1 | Boccia kl. 10, handa- vinna kl. 9, djákni kl. 14. Vesturgata 7 | Boccia kl. 11, leikfimi kl. 11.30, kóræf. kl. 14, tölvuk. kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bókband kl. 9, postulín kl. 9.30, morgunst. kl. 10, boccia kl. 12.30, framh.s., handa- v.og spil kl. 13, stóladans kl. 13.15. Konur í Ráðhúsinu á Akureyrigerðu vel við karlana á bónda- dag og buðu þeim í betra kaffi um morguninn. En boðinu fylgdu leið- beiningar fyrir morgunverk þeirra: „Það er „skylda bænda“ „að fagna þorra eða „bjóða honum í garð með því að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gengur í garð. Eiga þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa. Síðan eiga þeir að halda öðrum bændum úr byggð- arlaginu veislu fyrsta þorradag. Þetta heitir „að fagna þorra“ skv. Þjóðsögum Jóns Árnasonar.“ Svo skikkuðu konurnar Davíð Hjálmar Haraldsson til að yrkja stöku: Strax mér hleypur kapp í kinn og kann mér varla læti; ég brölta skal um bæinn minn með brók á öðrum fæti. Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á Sandi, sá þetta í anda: Mikil sorg að missa af því, mikla vakti kæti. Davíð, út um borg og bý brókina dró um stræti. Jón Arnljótsson orti við utanför forsetans til Indlands: Forsetinn er farinn burt, frúna hvergi sjáum. Á Bessastaði Bretadurt, bráðlega við fáum. Vísnahorn pebl@mbl.is Af bóndadegi og skálmum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.