Morgunblaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 25. DAGUR ÁRSINS 2010 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heitast 15°C | Kaldast 7°C Suðvestan 10-15 m/s síðdegis en 15-23 m/s norðvestantil. Skúrir S- og V-lands en léttir til á NA-landi. »10 „Það er mjög gaman að fá að búa til styttu af manni sem allir þekkja,“ segir Halla Gunnarsdóttir um Tómas. »31 MYNDLIST» Maður sem allir þekkja LJÓSMYNDUN» Besta ljósmyndin var af jólabarni. »33 Tónlist Ólafar Arn- alds er hugljúf sem fyrr og hittir beint í hjartastað, segir m.a. í dómi um tón- leika hennar. »36 TÓNLIST» Hugljúft sem fyrr FÓLK» Bíó, tónleikar og leikhús hjá Flugunni. »32 KVIKMYNDIR» Clooney er stjarna Up in the Air. »35 Menning VEÐUR» 1. Lifði á Coca-Cola 2. Geir ekki sáttur 3. Strákarnir á leið til Vínar 4. 18 atkvæðum munaði … í 3. sætið »MEST LESIÐ Á mbl.is  Píanóleikarinn Jónas Ingimund- arson fékk Selfoss- sprotann svo- nefnda, en tilkynnt var um úthlutun hans á þorrablóti Selfossbúa um helgina. Viðurkenninguna fékk Jónas fyrir framlag sitt til menningarmála í bænum. Jónas bjó á Selfossi um 1970 og var þá driffjöður í tónlistarlífinu á staðnum, kenndi tónlist, stjórnaði kórum og fleira. Þá fengu aðstand- endur Skálafélagsins einnig þessa eftirsóttu viðurkenningu. Þorvarður Hjaltason veitti henni viðtöku fyrir hönd félagsins, en á þess vegum hef- ur Tryggvaskáli við Ölfusárbrú, sem var byggður 1891 og er elsta hús staðarins, verið endurbyggður. MENNINGARVERÐLAUN Jónas Ingimundarson fékk Selfosssprotann  Þrír standa eftir í síðari umferð kosningar um Strandamann árs- ins 2009 sem stend- ur yfir á vefsetrinu strandir.is. Þeir sem eftir standa eru Friðgeir Höskuldsson skipstjóri og áhöfnin á Grímsey ST en þeir hafa verið brautryðjendur í krækl- ingarækt á Ströndum og Ingibjörg Valgeirsdóttir úr Trékyllisvík sem stóð fyrir sýningunni Stefnumót á Ströndum síðasta sumar. Sá þriðji sem valið stendur um er Sigurður Atlason á Hólmavík sem hefur látið að sér kveða í ýmsum menningar- málum, meðal annars í tengslum við Galdrasafnið á Hólmavík. STRANDAMAÐUR ÁRSINS Skipstjóri, ferðamálafröm- uður og galdramaður  Tónlistarmað- urinn Pétur Ben heldur í tónleika- ferð um Evrópu í febrúar. Hann mun koma víða við og flytja ný lög eftir sig sem munu rata á plötu síðar á árinu. Fyrsta breið- skífa Péturs, Wine For My Weak- ness, kom út fyrir þremur árum og er því kominn tími á nýja. Þá mun Pétur einnig vinna þessa dagana að breiðskífu í samstarfi við kollega sinn Eberg. Pétur hefur tón- leikaferðalag sitt í Þýskalandi, hann leikur í Leipzig 17. febrúar og verð- ur kominn til Hollands hinn 20. en þann dag mun hann halda tónleika í Amsterdam. Ferðinni lýkur með tónleikum 4. mars í Tübingen Sud- haus. TÓNLIST Pétur Ben leikur ný lög af væntanlegri plötu „ERT þú löggan?“ spurðu strákarnir sem hittu ljósmyndara Morgunblaðsins í fjörunni vestur á Granda í gær. Þeir vissu upp á sig skömmina og töldu því líklegt að þarna væri laganna vörður mættur. En hvað sem því líður, þá eru fjöruferð- ir alltaf heillandi. Það á ekki síst við á góðum dögum eins og í gær, þegar milt var í veðri og vorblíða í lofti þótt janúar sé enn ekki úti. Allur er þó varinn góður enn um sinn. Stiklað á steinum á Grandanum í Reykjavík Fjörlegir fjörustrákar Morgunblaðið/Golli HUGMYNDIRNAR að verkunum sæki ég í íslenska og sænska nátt- úru, þá eru það aðallega áhrif veð- ursins á litina í landslaginu sem heilla mig, að sjá hvernig litatónar náttúrunnar breytast með veðrinu og birtunni. Fyrir mér er til dæmis náttúran í rigningu og eftir rign- ingu tveir ólíkir heimar,“ segir list- málarinn Hadda Fjóla Reykdal en henni hefur verið boðið að sýna í borgarlistasafninu Liljevalchs í Stokkhólmi, á árlegri vorsýningu safnsins, Vårsalongen. 131 lista- maður tekur þátt í sýningunni en 2.014 listamenn sóttu um að sýna á henni. Hadda er að vonum ánægð með að hafa komist í gegnum þá síu. Vorsýningin hefst 29. janúar nk. og stendur til 28. mars. | 37 2.014 sóttu um, 131 komst inn Hadda Fjóla Við tvö verka sinna. Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „ÞETTA er ekki sæmandi,“ segir Emil Als, augnlæknir á Blönduósi. Hann fékk fyrir helgina jólakort frá vinafólki sínu sem búsett er í Bandaríkjunum. Kortin voru póstlögð í Michi- ganríki hinn 14. desember og voru því meira en mánuð að berast hingað til lands. „Þetta var alls ekki til neins baga fyrir mig en vissulega saknaði ég þess um hátíðarnar að fá ekki kveðju frá góðum vinum sem lengi hafa sent fjölskyldunni jólakort,“ segir Emil. Kvarta yfir seinagangi Að sögn Önnu Katrínar Halldórsdóttir, framkvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs Íslandspósts, gerðu póstyfirvöld í Bandaríkjunum nýlega samninga við SAS, sem nú annast flutning á öllum pósti sem fer frá Bandaríkjunum til Norð- urlanda. Það þýðir að póstur til Íslands er fyrst sendur til Kaupmannahafnar og þaðan hingað til lands, í stað þess að fara hingað án millilendingar eins og áður var raunin. „Þetta kerfi var fyrir jól ekki komið í gagnið auk þess sem SAS hafði í mörg horn að líta, m.a. vegna loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Því myndaðist þarna tappi í sendingum og því voru póstsendingar frá Bandaríkjunum að berast hing- að fyrstu til þriðju viku janúar. Nú ætti að vera losnað um þessar stíflur,“ segir Anna Katrín. Hún segir ábyrgðina í þessu máli liggja hjá Bandaríkjamönnum sem breyti ekki því að Íslandspóstur muni kvarta yfir seinaganginum. Kortin komu seint  Fékk jólakort í janúar  Saknaði vinarkveðju  Seina- gangur hjá SAS  Ábyrgðin er hjá Bandaríkjamönnum Morgunblaðið/Golli Loksins Emil Als fékk jólakortin fyrir helgina. Í HNOTSKURN » Jólakort sem voru póstlögð í Bandaríkj-unum 14. desember skiluðu sér til viðtak- anda hérlendis í síðustu viku. » Íslandspóstur kvartar formlega yfir seina-ganginum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.