Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Gylfi Magn-ússon,efnahags- og viðskiptaráð- herra, sagði á Al- þingi í fyrradag, í svari við fyr- irspurn Magnúsar Orra Schram al- þingismanns, að ekki ætti að „framselja til bankakerfisins réttinn til að refsa mönnum fyrir að hafa brotið lög“. Undir þetta geta væntanlega allir tekið og þess vegna er þetta snjallt mælskubragð þegar verja þarf afstöðuleysi eða jafnvel óbeinan stuðning við það að þeir sem hafi „gengið freklega fram af þjóðinni með hegðun sinni á undanförnum árum“ geti „endurreist sín við- skiptaveldi“, svo áfram sé vitn- að til orða efnahags- og við- skiptaráðherra. Sú afstaða sem efnahags- og viðskiptaráðherra lýsti á þingi er svipuð þeirri sem forsætis- ráðherra lýsti á blaðamanna- fundi á dögunum. Fleiri ráð- herrar og stjórnarþingmenn hafa tekið sömu afstöðu. Nú vill svo til að ríkis- stjórnin lætur í almennum orð- um sem hún hafi afstöðu til þess hvernig atvinnulífið hér á landi skuli endurreist og vill ekki að menn geti áfram „geng- ið freklega fram af þjóðinni“. Vegna þessarar almennu af- stöðu settu bankarnir sér verk- lagsreglur og í verklagsreglum Arion banka segir til að mynda: „Áframhaldandi þátttaka eig- enda og stjórnenda við rekstur fyrirtækjanna er háð því að þeir þyki mikilvægir fyrir framtíð fyrirtækjanna og að þeir njóti trausts.“ Sé þetta ekki merkingarlaust hjal hlýt- ur að felast í þessu að bankinn geri ekki aðeins þá kröfu til manna að þeir hafi haldið sig innan ramma laganna. Bankinn ætlast væntanlega til að þeir hafi með hegð- un sinni áunnið sér traust í við- skiptum, eða hafi í það minnsta ekki glatað því. Vitaskuld er um huglægt mat að ræða, en þó hlýtur slóði rekstrar- og skuldavanda til að mynda að draga úr trausti. Grunur um aðild að markaðs- misnotkun og rannsókn vegna slíkrar háttsemi ætti líka að duga til að viðkomandi njóti ekki sérstaks trausts. Hafi menn nýlega hlotið dóm vegna brota á hlutafélagalögum og séu enn í banni við að sitja í stjórnum fyrirtækja ætti það einnig að duga til að traust bankans sé ekki fyrir hendi. Í því tilviki er raunar ekki um huglægt mat að ræða, því að þar hafa dómstólar beinlínis fjallað um mál og bankar þurfa því ekki að taka að sér dómara- hlutverk, eins og viðskipta- og efnahagsráðherra hefur áhyggjur af. Arion banki hefur gert sér- stakt samkomulag vegna Haga við Jóhannes Jónsson, föður og nánasta viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem eftir dóm er enn í þeirri stöðu að mega ekki sitja í stjórnum hlutafélaga. Getur verið að það sé samdóma álit ráðherranna og bankans að þessir menn séu ótengdir og þess vegna geti annar þeirra notið sérstaks trausts þó að hinn njóti þess ekki að mati löggjafans? Er það virkilega svo að ráðherrar og þingmenn Samfylking- arinnar ætli að standa fyrir því að endurreisa atvinnulífið á þessum grunni? Njóta menn trausts þó að þeir megi ekki sitja í stjórnum hlutafélaga? } Dómskerfið, bankarnir og traustið Tómas Már Sig-urðsson, for- maður Við- skiptaráðs Íslands, lýsti þungum áhyggj- um af þróun skatt- kerfisins hér á landi á Við- skiptaþingi í gær. Hann benti á að á síðastliðnum áratug hefði það verið orðið mjög samkeppnishæft en hefði nú verið umturnað á skömmum tíma. „Aukið flækjustig, meiri kostnaður, hærri jaðar- skattar, minni hvati til verð- mætasköpunar, lakara fjár- festingarumhverfi, hærri vaxtakostnaður og aukin hætta á skattaundanskotum eru allt fylgifiskar þeirra breytinga sem stjórnvöld hafa ráðist í,“ seg- ir Tómas. Þessar skatt- breytingar munu hafa beinar afleiðingar. Könnun Viðskiptaráðs leiðir í ljós að forsvarsmenn helm- ings fyrirtækja telja að skatt- breytingarnar muni leiða til fækkunar starfsfólks fyrir- tækis síns. Út af fyrir sig þurfti ekki könnun til að sjá að hærri skattar yrðu til að draga úr virkni atvinnulífsins, en könnunin er mikilvæg áminning til stjórnvalda um að þau eru á rangri leið. Könnun Viðskipta- ráðs er áminning um að stjórnvöld eru á rangri leið. } Hærri skattar, færra starfsfólk S tundum lætur vel meinandi fólk of mikið fyrir sér fara. Þá breiðir það úr sér og er ákaflega upptekið af því að koma reglu á umhverfi sitt. Þetta fólk veit nákvæmlega hvern- ig hlutirnir eiga að vera og veit fátt verra en óreiðu. Vel meinandi fólk vill umfram allt forða öðrum frá villu síns vegar og stundar forvarnir af miklum móð. Það er tilbúið að leggja mikið á sig til að gera umhverfið skikk- anlegt og ef það þarf að ganga á mannréttindi annarra til að koma hlutunum í lag þá gerir það slíkt án þess að hika. Þetta er eins konar vel meinandi mannfyrirlitning. Í síðustu viku mætti lögreglan með þrjá fíkniefnahunda í Tækniskólann í Reykjavík til að leita að fíkniefnum á nemendum skól- ans. Um kvöldið kom fram í fréttum Stöðvar 2 að skólayfirvöld hefðu óskað eftir leitinni. Fram að þessu hafði sennilega ekki hvarflað að nokkrum borgara þessa lands að í Tækniskólanum grasseraði umfangs- mikill eiturlyfjavandi sem kallaði á innrás lögreglu. Í fréttatíma Stöðvar 2 mætti mjúkmáll talsmaður skól- ans og upplýsti að þarna væri um að ræða samvinnu skólayfirvalda við lögregluna og með þessu væri verið að vinna að forvörnum við skólann. Í þessu sérkennilega forvarnarátaki vel meinandi skólayfirvalda voru allir nemendur skólans skyndilega orðnir að hugsanlegum fíkniefnaneytendum, lögbrjótum og glæpamönnum. Ekki skemmtilegur stimpill að bera, þótt það hafi ein- ungis verið eina dagstund. Menn hljóta að spyrja sig hvað skóla- yfirvöld Tækniskólans hafi verið að hugsa og af hverju þeim hafi þótt í svo góðu lagi að ganga á rétt nemenda og stimpla þá alla sem hugsanlega afbrotamenn. En af fréttinni og orðum talsmanns skólans varð ekki annað ráðið en allt hefði þetta verið ákveðið af vel meinandi fullorðnu fólki sem vildi hafa vit fyrir öðrum og forða þeim frá að leiðast á glapstigu. Þess vegna var lögregla kölluð til og látin sýna nemendum að hafðar væru á þeim gætur. Nú hefur umboðsmaður Alþingis óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lög- reglunni um það hvernig staðið hafi verið að leit að fíkniefnum í Tækniskólanum. Ekki er hægt að skilja þetta öðruvísi en svo að umboðsmanni þyki sem þarna hafi verið staðið nokkuð einkennilega að málum. Það ber að fagna því að í emb- ætti umboðsmanns Alþingis sé hugsandi maður sem er ekki tilbúinn að ganga braut rétttrúnaðar þar sem ein- staklingar eru hiklaust sviptir persónufrelsi vegna óljósra heildarhagsmuna. Vafalaust finnst mörgum að innrás eins og sú sem gerð var í Tækniskólann hafi verið ósköp saklaus vegna þess að tilgangurinn hafi verið góður og þeir sem stóðu fyrir þessum gjörningi séu vel meinandi. Því miður er það þannig að vel meinandi fólk getur verið til skaða og var það sannarlega í þessu tilfelli. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Vel meinandi mannfyrirlitning STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon ESB-viðræðunum ýtt úr vör í apríl? FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is F átt ætti að koma í veg fyrir að framkvæmda- stjórn Evrópu- sambandsins samþykki á fundi sínum 24. febr- úar að leggja til við aðildarríki sam- bandsins að hafnar verði formlegar viðræður um aðildarumsókn Íslands að ESB. Skv. heimildum Reuters-frétta- stofunnar í Brussel í fyrradag mun framkvæmdastjórnin senda frá sér álit á umsókninni í næstu viku. Þetta þýðir í raun að embættismenn ESB eru búnir að fara yfir öll svör Íslands við ítarlegum spurningalista fram- kvæmdastjórnarinnar. Í álitinu verð- ur fjallað um stöðu mála á Íslandi, hversu vel það er í stakk búið til að gerast aðildarríki og hvort það full- nægi skilyrðum aðildar. Fram- kvæmdastjórnin hefur ekki það hlut- verk að ákveða að hefja viðræður heldur er það í valdi aðildarríkjanna. Álitið verður þvínæst tekið fyrir á fundum í svokallaðri stækkunarnefnd ráðsins, þar sem fulltrúar aðildarríkj- anna eiga sæti. „Síðan væntum við þess að það verði tekið fyrir á fundi leiðtoganna 25. og 26. mars næstkomandi ef allt gengur eftir,“ segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands og formaður íslensku samn- inganefndarinnar. Efnislegar viðræður í haust Samþykki leiðtogafundurinn að hefja formlegar aðildarviðræður við Ísland í lok mars er reiknað með að innan nokkurra vikna muni utanrík- isráðherra halda á fund með starfs- bróður sínum, utanríkisráðherra Spánar, sem gegnir um þessar mund- ir formennsku í ráðherraráðinu. Þá verður viðræðunum formlega ýtt úr vör og er talið víst að gangi þetta allt eftir verði aðildarviðræðurnar komn- ar á fulla ferð í vor og fram eftir sumri. „Þá förum við í svokallaða rýnivinnu þar sem okkar löggjöf og löggjöf ESB eru bornar saman, skil- greint hvað ber á milli o.s.frv. og sú vinna mun taka einhverja mánuði,“ segir Stefán Haukur. Það er því ekki fyrr en fer að líða vel á haustið sem efnislegar viðræður hefjast. Vinna samninganefndar Íslands og tíu samningahópa sem fjalla um ein- staka málaflokka fyrir aðildarviðræð- urnar er komin vel af stað, að sögn hans. Samningahóparnir hafa hver um sig haldið einn til þrjá fundi. Aðal- samninganefndin hefur fundað þrisv- ar sinnum og kemur næst saman 25. febrúar, daginn eftir fund fram- kvæmdastjórnar ESB. „Við erum núna fyrst og fremst að undirbúa okkur og leggja vinnuna sem fram- undan er niður fyrir okkur auk þess sem aðalsamninganefndin hefur fengið upplýsingar frá formönnum undirhópanna.“ Vinna við það sem öllu skiptir á þessu ferðalagi, þ.e. við mótun samn- ingsmarkmiða, er aðeins að litlu leyti hafin. Samninganefndin hefur álit meirihluta utanríkismálanefndar sem vegvísi þegar farið verður að útfæra samningsmarkmiðin. Mun vænt- anlega ekki reyna á þessi stóru mál á borð við sjávarútvegs-, auðlinda- og landbúnaðarmálin í viðræðunum við ESB fyrr en í haust. Reuters Gefa grænt ljós Talið er víst að José Manuel Barroso og félagar í fram- kvæmdastjórn ESB muni 24. febrúar mæla með aðildarviðræðum við Ísland. Búist er við að leiðtogafundur ESB ákveði í lok mars að hefja aðildarviðræður við Ísland. Við- ræðurnar fari á fulla ferð í vor en ekki muni þó reyna á stóru hags- munamálin fyrr en í haust. 16. júlí 2009: Alþingi samþykkir að sækja um aðild að ESB. 23. júlí 2009: Utanríkisráðherra afhendir formanni ráðherraráðs ESB umsókn um aðild að ESB. 27. júlí 2009: Ráðherraráðið vísar umsókninni til framkvæmda- stjórnar. 9. september 2009: Íslensk stjórnvöld fá langan spurn- ingalista frá framkvæmdastjórn ESB. 21. október 2009: Svörum við spurningum framkvæmdastjórn- arinnar skilað til Brussel. 4. nóvember 2009: Samn- inganefnd skipuð. 9. desember 2009: Tíu samn- ingahópar skipaðir. Janúar 2010: Sendiherra ESB tekur til tekur starfa á Íslandi. 24. febrúar 2010: Framkvæmda- stjórn ESB mælir væntanlega með aðildarviðræðum við Ísland. SKREF FYRIR SKREF ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.