Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010 Í dag erum við sorgmæddir. Í dag eru hjörtun eitthvað svo þung. Í dag kveðjum við góðan vin okkar, Bödda. Við vitum að þyngslin og sorgin hverfa ekki á einum degi, en gerum okkur vonir um að þetta verði auð- veldara þegar fram líða stundir. Við strákarnir tókum okkur margt fyrir hendur, bæði í leik og starfi. Betri fé- laga en Bödda var ekki hægt að hugsa sér enda var hann einstaklega dugleg- ur og hjartahlýr strákur. Eitt var þó meira einkennandi fyrir hann en ann- að; Böddi var vinur vina sinna. Við gætum rifjað upp óteljandi sögur af okkur strákunum, en ætlum að bíða með það þangað til við vinirnir hitt- umst á ný, þá munu hlátrasköllin óma vítt og breitt um himnaríki og engl- arnir taka undir. Nú er Böddi hins vegar horfinn á braut nýrra ævintýra og það eina sem við getum gert er að ylja okkur við minningarnar um góð- an strák. Fjölskyldu Bödda sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur, það er mikið á ykkur lagt. Megið þið finna styrk í þeirri trú og vitneskju að Bödda líður núna vel í ástríkum faðmi æðri máttarvalda. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Elsku Böddi, takk fyrir að hafa ver- ið vinur okkar. Helgi Elfarsson, Atli Viðar Jóhannsson, Elías Valdimar Jónsson, Hafsteinn Rósinberg og Heimir Rósinkranz. Við Böðvar kynntumst fyrst í 6. bekk í grunnskóla. Að koma inn í bekk sem samanstóð af svona mörgum töff- urum, þar sem Böddi var fremstur í flokki, hefði hugsanlega getað orðið mjög erfitt. Ég hafði hægt um mig fyrstu vikurnar, en svo kynntist ég Bödda almennilega og lífið varð auð- veldara. Við urðum bestu vinir og nú þurfti ég ekki lengur að hafa áhyggjur af því að vera strítt í frímínútum, Böddi sá um að þeir dagar væru liðn- ir. Við, ásamt stórum hópi af strákum, héngum saman alla daga. Ég ætla ekki að halda því fram að við höfum alltaf verið að tefla eða þylja bænir, en prakkarastrikin sem við gerðum lifa rosalega sterkt í minningunni núna. Það þurfti ekki mikið til að láta Bödda engjast um af hlátri. Mest hlógum við saman þegar við gerðum símaat í ókunnugu fólki, þá lá Böddi gjörsam- lega í gólfinu, þennan hlátur man ég eins og það hefði gerst í gær. Eitt sumarið, í kringum fimmtán ára aldurinn, unnum við Böddi saman í málmsteypu Þorgríms Jónssonar, hvorki meira né minna. Í sannleika sagt þá hefði ég hætt eftir fyrsta dag- inn ef Bödda hefði ekki notið við. Þetta sumar er eitt það minnisstæð- asta sem ég hef upplifað. Þarna fannst okkur við svakalega fullorðnir, komn- ir í tölu alvöruvinnumanna. Við vorum fljótt minntir á að við værum hálf- gerðir vandræðapjakkar því við þurft- um ansi oft að fara upp til stjórans þar sem við vorum skammmaðir og lesnar lífsreglurnar, það veitti víst ekki af. Við höfðum nefnilega svo gaman af því að stríða samstarfsfélögunum, skipta um skó hjá þeim, færa bílana þeirra og fleira í þeim dúr. Það var í aðstæðum sem þessum sem ég man best eftir Bödda, honum fannst ynd- islegt að stríða og var hann með mik- inn húmor sem smitaði menn eins og mig sem hreifst mjög af uppátækjum hans. Eftir tíunda bekk í grunnskóla breyttust hlutirnir aðeins. Við fórum hvor í sinn framhaldsskólann og hitt- umst ekki jafn oft. En það skipti ekki öllu máli því við héldum sambandi allt til loka og eignuðumst fjöldamargar skemmtilegar minningar. Það var frá- bært að horfa saman á Evrópumótið í handbolta nú fyrir stuttu. Við Böddi reyndum nefnilega alltaf að ná nokkr- um leikjum saman þegar íslenska handboltalandsliðið var að spila. Er við horfðum á mótið nú sá ég að Böddi hafði ekki breyst mikið síðan á ung- lingsárunum, allavega ekki hvað varð- ar keppnisskap. Við kýldum í borðið, öskruðum og fögnuðum saman, rétt eins og í gamla daga. Við vorum alltaf til staðar hvor fyrir annan, ég veit að Böddi hefði vaðið eld og brennistein fyrir mig. Það er maðurinn sem hann hafði að geyma, traustasti vinur sem nokkur getur hugsað sér. Því undir litla töffaranum í 6. bekk leyndist drengur með ótrúlega stórt og fallegt hjarta. Það er erfiður biti að kyngja að við komum ekki til með að gera fleiri prakkarastrik á fullorðinsárum, en það er huggun í minningum sem við eigum saman, þær verða aldrei teknar af okkur. Ég votta fjölskyldu Böðvars mína dýpstu samúð. Hvíldu í friði elsku vinur minn. Þinn vinur, Pétur Óskar Sigurðsson. Jæja Böddi þá er víst komið að kveðjustund, allt of snemma að mínu mati. Ég hélt að við værum ekki bún- ir að syngja okkar síðasta saman í þessu lífi en svona er þetta nú samt og ég verð bara og við allir að sætta okkur við það og hugsa bara um minningarnar sem við eigum, þær gætu fyllt nokkrar bækur. Húmorinn þinn var óborganlegur. Ég man þeg- ar ég sá þig fyrst í Jordan-gallanum þínum sem þú fórst aldrei úr í 2. bekk og allt sem við tókum upp á frá þeim degi, bæði gáfulegt og minna gáfu- legt ef svo má segja. Það mun lifa endalaust. Ég mun sakna þín kæri vinur. Alexander Örn. Það er ótrúlegt að maður sitji hér og skrifi um þig á þennan hátt. Þegar þetta er ritað er vika frá fráfalli þínu en á einhvern hátt er þetta allt saman svo óraunverulegt. Þess væri óskandi að þetta væri allt saman vondur draumur, að á hverri stundu vakni maður upp og allt sé í lagi. Svo er víst ekki. Það er komið að alltof snemmbúinni kveðjustund. Maður getur þó huggað sig við þann aragrúa minninga sem maður býr að um alla framtíð. Við hittumst fyrst í Lækjarskóla þegar við byrjuðum í fyrsta bekk, þú svo feiminn eins og þú varst alla tíð. Það tók smátíma að kynnast þér sök- um þess en þegar þú hleyptir manni að þér kom í ljós hve fallega persónu þú hafðir að geyma. Við áttum ótal- margar góðar stundir saman og margar þeirra tengdar tónlist. Það er mér alltaf minnisstætt þegar við vor- um að ströggla í gegnum Metallica- lög á rafmagnsgítarinn þinn uppi á háalofti á Austurgötunni. Við ætluð- um sko að verða rokkstjörnur. Þú hafðir einnig kímnigáfu í heims- klassa. Alltaf svo fljótur að átta þig á því þegar aðstæður buðu upp á gott grín. Við félagar þínir höfum undan- farna daga rifjað upp margar skemmtilegar uppákomur sem þú varst arkitektinn að. Þú varst sannarlega vinur í raun. Ávallt reiðubúinn að hjálpa vinum þínum þegar á þurfti að halda. Í dag óskar maður einskis heitar en að maður hefði á einhvern hátt getað hjálpað þér með þín vandamál. Það voru forréttindi að þekkja þig og þín mun verða sárt saknað um ókomna tíð kæri vinur. Minning þín lifir í hjörtum okkar sem eftir stönd- um. Hörður Stefánsson. Það er gott að eiga ljúfar minn- ingar um Böðvar sem nú er sofnaður svefninum langa. Ég kynntist honum fyrir átta árum þegar ég fór að vinna með Betu minni í versluninni Úr og gull. Þar eignaðist ég góða vinkonu og Böðvar og Ásta fylgdu með. Án þess að segja það upphátt, þá fannst mér ég eiga svona pínulítið í þeim báðum, það var ekki annað hægt, svo yndisleg sem þau voru. Framkoma Böðvars í minn garð var þannig að hann lét mér alltaf líða vel þegar hann kom í búðina. Brosið hans sem kom svo fallega fram í augun, ná- kvæmnin hans, kímnigáfan og þannig mætti lengi telja. Elsku Böðvar, það var bara svo mikil hlýja sem þú gafst mér og ég get ekki annað en orðið betri manneskja á eftir. Elsku Beta, Ásta Sigga, Oddur og Ásta. Ég hugsa fallega til ykkar allra. Kveðja, Helga. ✝ Einar Ingi Sig-urðsson fæddist 22. ágúst 1926 á Ísa- firði. Hann lést á hjartadeild Landspít- alans við Hringbraut sunnudaginn 7. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar Einars voru Jóna Guðrún Ís- aksdóttir húsfreyja, f. 1894, d. 1968, frá Tungu í Dalamynni, Nauteyrarhreppi, N-Ísafjarðarsýslu og Sigurður Ásgeirsson húsgagnasmiður, f. 1892, d. 1967, frá Galtahrygg, Reykjafjarð- arhreppi, N-Ísafjarðarsýslu. Þau fluttu til Reykjavíkur 1956 og bjuggu þar síðan. Systkini Einars voru: Guðrún, f. 1921, d. 1996, El- ínborg, f. 1923, d. 2005, Ásgeir, f. 1924, d. 1970, Ísak Jón, f. 1928, d. 2007. Einar kvæntist Katrínu Sigur- jónsdóttur f. 22. desember 1936. Einar og Katrín gengu í hjónaband 12. september 1959. Þau bjuggu lengst af á Gilsárstekk 1, Reykja- vík. Börn þeirra eru: Sigurjón, f. 1960 í Reykjavík, ókvæntur. Krist- ín, f. 1966 í Reykjavík, maki Örn Erlingsson, f. 1964, börn þeirra eru: Mjöll, f. 1988, d. 1988, Aron, f. 1990, og Karen, f. 1992. Einar gekk í barnaskólann og síð- ar í gagnfræðaskól- ann á Ísafirði. Hann flutti til Reykjavíkur 19 ára gamall og stundaði nám í leik- listarskóla Lárusar Pálssonar 1946-1947 og lék í u.þ.b. 10 ár á fjölunum í Iðnó. Ein- ar starfaði hjá Fisk- mati ríkisins 1946- 1962. Í ágúst 1962 hóf hann störf hjá Borgarlækni við heilbrigðiseft- irlit en fór síðan til náms í Svíþjóð og útskrifaðist sem heilbrigð- isfulltrúi árið 1965 frá Statens Institut för folkhälsen í Stokk- hólmi. Hann starfaði síðan hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur út árið 1971 en 1. janúar árið eftir tók hann við stöðu framkvæmda- stjóra Heilbrigðiseftirlits Kópa- vogs og starfaði þar til ársins 1993. Auk þessa sinnti hann mörgum nefndarstörfum á vegum Kópa- vogsbæjar. Útför Einars fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag, 18. febrúar, og hefst athöfnin kl. 13. Faðir okkar, Einar Ingi Sigurðs- son, hefur kvatt þennan heim og langar okkur að minnast hans með nokkrum orðum. Hann lifði lengst allra af systkinahópnum og var því búinn að fylgja þeim öllum til graf- ar. Einnig sá hann á eftir fjórum systkinabörnum sínum og fyrsta barnabarni. Allar þessar stundir voru honum erfiðar. Stór hluti af uppvaxtarárum hans var á bryggjunni heima eins og hann sagði okkur frá og voru þeir ófáir sporðarnir sem bornir voru heim að Silfurgötu 8. Einnig voru stundaðar kúffiskveiðar á rif- inu og smokkfiskveiðar í fjörunni, allt var þetta hluti af hans daglega lífi í uppeldinu. Trillukarlarnir fengu síðan fiskinn sem hann og vinir hans veiddu til að nota í beitu. Lífsbaráttan var þannig að allir urðu að taka þátt, það var ann- aðhvort að duga eða drepast. Þetta mótaði óhjákvæmilega systkina- hópinn og skýrir kraftinn sem í þeim bjó, styrkinn sem þau höfðu yfir að ráða og ákveðnina sem þau sýndu svo oft. Þetta fólk var stór- brotið og mikilmannlegt. Pabbi flutti til Reykjavíkur þeg- ar hann var 19 ára og var hann alls ekkert á þeim buxunum að hætta veiðimennsku. Það var hans líf og yndi og fór hann í margar veiðiár. Hann fór oft að veiða í Hólsá í V- Landeyjum en þar kynntist hann Katrínu eiginkonu sinni. Það var þá sem hann veiddi stærsta sjó- birtinginn, heimasætuna frá Grímsstöðum. Þau náðu þeim merka áfanga að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmæli á síðasta ári. Pabbi var að eðlisfari glaðlyndur og hrifnæmur. Húmorinn var aldr- ei langt undan og það var ávallt þessi gleði og dillandi hlátur á góð- um stundum, ekki síst þegar syst- urnar komu í heimsókn og voru að rifja upp prakkarastrikin frá því í gamladaga. Lífsviljinn var alltaf mikill og sterkur og sýndi hann það best eftir þær aðgerðir sem hann gekk í gegnum síðustu ár. Hann var hreinskilinn og sagði sína meiningu hvar sem hann taldi það nauðsynlegt svo mörgum þótti nóg um, stóð oft fastur á sínu og var nákvæmur með eindæmum í því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði gaman af því að lesa sögur og ljóð, var vel ritfær og hafði gaman af því að skjóta fram vísum. Einnig hafði hann gaman af söng og yndi af tónlist og var í kvartett á yngri árum samhliða leiklistinni. Oftar en ekki fengum við að sjá ýmis leikspor og karakt- era í gegnum tíðina og var það ógleymanlegt. Pabbi átti ávallt mjög góðar stundir í bústaðnum fyrir austan. Hann hafði gaman af því að skoða fjallasýnina, fylgjast með ánni lið- ast framhjá og hlusta á fuglasöng- inn. Hann sat oft við gluggann þar sem ekkert fór framhjá honum, gjarnan með krossgátu til að ráða. Pabbi fór oft á dag út á pallinn sem hann dásamaði í hvert sinn, og þegar svo bar við hlustaði hann á brimölduna í kyrrlátu umhverfinu. Pabba leið alltaf vel fyrir austan í bústaðnum og hans bestu stundir á síðustu árum voru þar. Við vitum að hann verður áfram með okkur þar og tiplar með okkur á pallinum. Elsku pabbi, við kveðjum þig með söknuði og við erum þakklát fyrir allar góðu stundirnar og góðu minningarnar sem þú gafst okkur. Sigurjón Einarsson, Kristín Einarsdóttir. Elsku besti afi okkar. Við eigum eftir að sakna þín óendanlega mik- ið. Þú gladdir okkur allan þann tíma sem þú varst með okkur. Fyr- ir okkur ertu ekki farinn þar sem þú ert ennþá hjá okkur í anda og hjarta. Við minnumst þess mest þegar þú varst sá hressasti í hópn- um og tókst danssporin góðu og lékst fyrir okkur Hringjarann frá Notre Dame. Það var svo gaman að koma í heimsókn til ykkar, við hlógum svo mikið saman og spil- uðum Ólsen Ólsen endalaust. Gott var að vera nálægt þér og alltaf stutt í grín og glens. Þegar það var matarboð hjá ykkur ömmu gátum við alltaf laumað því sem við gátum ekki klárað á diskinn þinn og það þótti þér ekki slæmt. Við höldum minningu þinni á lofti og hugsum hlýtt til þín þegar við för- um upp í bústað. Þar áttir þú góðar stundir með okkur enda þegar þú lást á spítalanum núna síðustu daga vildirðu fá fötin þín strax og fara austur. Við vonum nú að þér líði vel og við vitum að þú fylgist með okkur í leik og starfi. Elsku afi, þú varst alltaf svo gjafmildur og viljum við þakka þér fyrir það sem þú gafst okkur og gerðir fyrir okkur. Kveðjum með söknuði. Aron Arnarson, Karen Arnardóttir. Einar Ingi Sigurðsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN JÓN JÓHANNSSON, Skipalóni 20, Hafnarfirði, áður Hellubraut 7, lést á deild 11E Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 14. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Friðbjörg Kristjana Ragnarsdóttir, Jóhann Þór Jóhannsson, Rúna Baldvinsdóttir, Ragnar Steinþór Jóhannsson, Friðjón Viðar Jóhannsson, Edda Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Rúnar Páll Brynjúlfsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVEINBJÖRG H. ARNMUNDSDÓTTIR, Skógarseli 43, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni þriðjudagsins 16. febrúar. Útförin verður frá Hallgrímskirkju mánudaginn 1. mars kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sveinusjóð - sem stofnaður var til uppbyggingar sumarbúðastarfi KFUM og KFUK í Ölveri, kennitala 420369-6119, reikningsnúmer 0701-05-302000. Einnig er tekið við minningargjöfum í þjónustumiðstöð KFUM og KFUK við Holtaveg eða í síma 588 8899. Inga Þóra Geirlaugsdóttir, Jón Dalbú Hróbjartsson, Kári Geirlaugsson, Anna J. Guðmundsdóttir, Hörður Geirlaugsson, Sigrún Gísladóttir, Þuríður Erna Geirlaugsdóttir, Laufey G. Geirlaugsdóttir, Sigurbjörn Þorkelsson, Geirlaug B. Geirlaugsdóttir, Kristján Harðarson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.