Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 20
20 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010 Í GREIN hér í blaðinu 27. janúar síð- astliðinn fjallar Stein- ar Matthíasson, kenn- ari við frumgreinasvið HR, um stöðu tækni- fræðinnar við skólann í ljósi þeirrar umræðu sem sums staðar heyrist að nám í tæknifræði sitji á ein- hvern hátt á hakanum vegna uppbyggingar verkfræðináms við skólann og beinir eftirfarandi spurningu til undirritaðs: „Er aðaláherslan við deildina nú að byggja upp verk- fræðinámið, mun þá tækni- fræðinámið lognast út af eða renna á einhvern hátt inn í verk- fræðina?“ Spurningunni er auðsvarað. Samhliða mikilli uppbyggingu verkfræðináms við tækni- og verkfræðideild HR síðastliðin ár hefur verið unnið ötullega að því að styrkja og endurbæta nám okkar í tæknifræði, sem stendur á traust- um grunni frá Tækniháskóla Íslands og áður Tækniskóla Íslands. Engin áform eru um að leggja niður nám í tæknifræði eða sameina það á ein- hvern hátt verk- fræðinámi. Þvert á móti munum við halda áfram á þeirri braut að efla núverandi náms- brautir í tæknifræði og byggja upp nýjar. Útskrifuðum tæknifræðingum fjölgar Aðsókn í nám í tæknifræði hefur verið góð undanfarin misseri og hefur útskrifuðum tæknifræðingum fjölgað talsvert eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Áberandi er aukinn fjöldi útskrifaðra tækni- fræðinga frá sameiningu Tæknihá- skóla Íslands og Háskólans í Reykjavík árið 2005 og gert er ráð fyrir svipuðum fjölda útskrifaðra á næstu árum. Það sama má segja um námsbrautir í iðnfræði sem einnig voru til staðar við Tæknihá- skóla Íslands fyrir sameininguna, en iðnfræði er stutt hagnýtt tækni- nám fyrir iðnaðarmenn sem kennt er í fjarnámi. Aðsókn í iðnfræði hefur aldrei verið meiri en eftir sameiningu skólanna og á síðustu árum hefur HR útskrifað margfalt fleiri iðnfræðinga en árin þar á undan eins og sjá má á meðfylgj- andi mynd. Mismunandi áherslur Nám í tæknifræði og verkfræði er náskylt en áherslur mismunandi. Atvinnulífið sækist eftir báðum þessum stéttum og tækni- og verkfræðideild HR leggur metnað sinn í að sinna námsbrautum á báðum þessum sviðum út frá mis- munandi forsendum og mark- miðum þannig að sérstaða þeirra sé tryggð. Í tæknifræðinni er lögð meiri áhersla á hagnýta þekkingu og nemandi öðlast starfsréttindi sem tæknifræðingur að loknu þriggja og hálfs árs BSc-námi. Í verkfræði er meiri áhersla lögð á fræðilegan grunn og réttindi til að nota starfsheitið verkfræðingur fást að loknu fimm ára námi, sem skiptist í þriggja ára BSc-nám og tveggja ára MSc-nám. Það er tví- mælalaus styrkur tækni- og verk- fræðideildar HR að bjóða upp á tækninám á öllum stigum háskóla- náms, frá diplómanámi í iðnfræði til BSc-náms í tæknifræði og verk- fræði og MSc-náms í verkfræði. Einnig er í undirbúningi að hefja doktorsnám við deildina á næstu misserum, en umsókn þar að lút- andi er nú til meðferðar hjá menntamálaráðuneytinu. Verkleg kennsla aldrei blómlegri Það er trú okkar við tækni- og verkfræðideild HR að tæknimenn verði best menntaðir með sterkri fræðilegri undirstöðu í tengslum við hagnýt verkefni þar sem nem- endur fái að takast á við öll stig verkefnis frá greiningu og hönnun að smíði og rekstri. Sérstakt átaksverkefni um uppbyggingu tækjakosts og aðstöðu til verk- legrar kennslu hófst við deildina fyrir þremur árum og verkleg kennsla við deildina hefur aldrei verið blómlegri en núna. Mörg skemmtileg nemendaverkefni hafa litið dagsins ljós við deildina á síð- ustu misserum og hafa tæknifræðinemar oftar en ekki átt stóra hlutdeild í þeim. Nemendum fjölgar Nám í tæknifræði hér á landi hefur aldrei verið öflugra en ein- mitt núna. Nemendur eru fleiri en nokkru sinni fyrr, gæði náms- ins mikil og áhersla á hagnýt verkefni samhliða fræðilegu námi hefur aukist á undanförnum ár- um. Það sama á við um aðrar námsbrautir tækni- og verk- fræðideildar í iðnfræði og verk- fræði. Ég hvet alla áhugasama um nám í tæknifræði og annað tækninám að kynna sér starfsemi tækni- og verkfræðideildar HR á www.hr.is. Nám í tæknifræði aldrei öflugra Eftir Gunnar Guðna Tómasson »Nám í tæknifræði hér á landi hefur aldrei verið öflugra en einmitt núna. Nem- endur eru fleiri en nokkru sinni fyrr og gæði námsins mikil. Gunnar Guðni Tómasson Höfundur er forseti tækni- og verk- fræðideildar Háskólans í Reykjavík. ÆTLI það sé til- viljun að þegar at- vinnuleysi er í há- marki og þörf á auknum tekjum í þjóðfélaginu skuli koma fram aðilar og „viðra hugmyndina“ að opna spilavíti á Ís- landi. Rökfærslunni er beitt á undarlegan hátt, þetta er í raun greiði við spilafíkla og ríkið; með því að fá þessa spilamennsku upp á yfirborðið fást af henni tekjur, eftirlit verður betra, svo ekki sé talað um hversu auðvelt verður að nálgast spilafíkla og veita þeim meðferð við það eitt að leyfa spila- víti. Það er reyndar nokkuð athyglis- vert að velta fyrir sér hvernig á að nálgast spilafíkla og veita þeim meðferð, en þar sem þessir ágætu aðilar hafa væntanlega fundið góða lausn á því hljóta menn að vera tilbúnir að bjóða upp á sam- bærilega þjónustu í öllum Vínbúð- um landsins, þ.e. að finna alkóhól- ista og veita þeim meðferð! Það er til mikils að vinna fyrir hið opinbera að koma fjár- hættuspili upp á yfirborðið, hægt verður að hafa strangt eftirlit, afla skatttekna og skapa störf eru helstu rökin auk þess sem þetta sé hvort sem er að mestu fyrir er- lenda ferðamenn. Öll þau rök sem notuð eru til að styðja við málstað þeirra sem vilja spilavíti eru nákvæmlega þau sömu og færð eru fyrir því að rétt sé að lögleiða vændi og eiturlyf. Ég er ekki að ætla þeim sem styðja við rekstur á spilavíti á Ís- landi að þeir ætli sér að leyfa með sömu rökum vændi og eiturlyf, en gallinn er sá að ef menn telja þessi sömu rök ásætt- anleg fyrir spilavíti, þá hljóta þau að telj- ast það þegar kemur að vændi og eit- urlyfjum. Má ekki vænta þess að næst verði stigið fram og sagt að rétt sé að lögleiða vændi, enda stundi fólk kyn- líf og hafi keypt vændi lengi, betra sé að færa vændi upp á yfirborðið og hafa með því eftirlit, að hluti tekna renni í ríkissjóð og svo væri þetta svo miklu betra fyrir vændiskonur því þær væru öruggari og fengju stuðning. Svo má nú alltaf skella því fram að þetta væri aðallega hugsað fyr- ir erlenda ferðamenn, þó svo Ís- lendingum væri ekki bannað að nýta sér þessa „þjónustu“. Fyrir ekki svo löngu var boðið upp á „Dirty weekend“ í Reykja- vík, nú þegar byggja á upp nýtt Ísland og leitast er við að end- urvekja traust á Íslandi og Íslend- ingum, á þá að bjóða upp á „Dirty weekend with cash“? Spilavíti Eftir Guðmund Ár- mann Pétursson Guðmundur Ármann Pétursson » Öll þau rök sem not- uð eru til að styðja við málstað þeirra sem vilja spilavíti eru ná- kvæmlega þau sömu og færð eru fyrir því að rétt sé að lögleiða vændi og eiturlyf. Höfundur er rekstrarfræðingur. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.