Morgunblaðið - 19.03.2010, Side 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir brúðkaupið sjálft tekur rómantísk brúðkaups-
nóttin við. Misjafnt er hvar fólk ákveður að eyða
henni og fara sumir á hótel meðan aðrir stinga af í
sumarbústað. Það kostar jú sitt að stinga af á hótel
og fyrir vinahóp sem haft hefur spurnir af því að
brúðhjónin ætli að gista heima getur verið tilvalin
gjafahugmynd að gefa þeim nótt á hóteli. Það er
jafnvel hægt að koma því þannig fyrir að gjöfin komi
á óvart. Í slíku tilfelli getur verið sniðugt að hafa
tilbúinn lítinn pakka fyrir brúðhjónin með tann-
burstum, tannkremi og svo kannski nuddolíu og öðr-
um rómantískum fylgihlutum.
Rómantískt Misjafnt er hvar fólk kýs
að eyða brúðkaupsnóttinni.
Óvænt brúðkaupsnótt
H
eiðbjört Tíbrá Kjart-
ansdóttir og Viðar Guð-
mundsson verða gefin
saman þann 26. júní
næstkomandi. Hátt í
130 manns verður boðið til veislu
en verðandi brúðhjón og fjölskylda
munu leggja hönd á plóg við að
undirbúa veisluna og gera hana
eins hagkvæma og mögulegt er.
Þau Heiðbjört og Viðar hafa verið
saman í 10 ár og tóku sameiginlega
ákvörðun um það að nú væri tími
til kominn að láta pússa sig saman.
Látlaus og einfaldur
„Mig langaði ekki í hefðbundið
snið af kjól, hlýralausan og gólf-
síðan sem virðist vera dálítið línan í
brúðarkjólum. Mig langaði frekar
að gera kjól sem færi mér vel og
þar sem það er kostnaðarsamt að
láta sérsauma á sig þá datt mér í
hug að ég gæti nú kannski bara al-
veg gert þetta sjálf og fengið
ömmu í lið með mér. Hún er lærð-
ur hattahönnuður og hefur saumað
æði margt í gegnum tíðina þannig
að hún veit alveg hvernig á að fara
að þessu. Fyrst reyndi ég að teikna
kjólinn upp sjálf en þegar ég var
komin með hugmynd að því hvern-
ig ég vildi hafa hann þá fann ég
snið sem við útfærum síðan í sam-
einingu. Kjóllinn er ekki alveg gólf-
síður og verður með hálsmáli og
breiðum hlírum. Hann er frekar
látlaus og einfaldur úr polyester-
efni með hrásilkiáferð,“ segir Heið-
björt.
Draumurinn rætist
Heiðbjört segir saumaskapinn
ganga ágætlega og hún læri mikið
af þessu enda sé hún í raun í læri
hjá ömmu sinni á góðu sauma-
námskeiði. Hún segir verkið ganga
hraðar en hún hafi átt von á og er
toppstykkið og pilsið tilbúið að
mestu þó heilmikill frágangur sé
eftir. Heiðbjört hefur alltaf saumað
eitthvað en þó ekki kjóla og er
brúðarkjóllinn því frumraun hennar
á því sviði. „Ég held að þetta sé
draumurinn, að sauma sinn eigin
brúðarkjól. Það getur vel verið að
kjóllinn verði bara ættargripur og
það verður líka gaman að eiga
þessa minningu um að hafa saumað
hann með ömmu. Þannig verður
kjóllinn mjög persónulegur og ég
hlakka alltaf til á föstudagskvöldum
þegar við amma hittumst og saum-
um saman,“ segir Heiðbjört.
maria@mbl.is
Í læri hjá ömmu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Saumastöllur Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir saumar brúðarkjólinn í góðu samstarfi við ömmu sína, Ingrid
Guðmundsson en Heiðbjört mun giftast Viðari Guðmundssyni þann 26. júní næstkomandi.
Spáð í sauminn Vanda þarf til verka við saumaskapinn, mæla og sníða.
Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir fékk ömmu sína Ingrid Guðmundsson til að
sauma með sér brúðarkjólinn. Þær stöllur sitja við saumavélina á hverjum
föstudegi og miðar saumaskapnum vel áfram.
Heiðbjört segir sauma-
skapinn ganga ágætlega
og hún læri mikið af
þessu enda sé hún í raun
í læri hjá ömmu sinni á
góðu saumanámskeiði.
Saumastofa Á hverjum föstudegi setjast þær stöllur niður við sauma-
vélina og gengur saumaskapurinn vonum framar hjá þeim.
Saumaskapurinn gengur vel og stefna þær Heiðbjört og Ingrid á að sauma
líka kjól á heimasætuna, Söndru Írenu Viðarsdóttur 2 ára. Heiðbjört keypti
rúmlega af efni í brúðarkjólinn og yrði því kjóllinn á þá stuttu saumaður úr
sama efni.
Tveir eins Heiðbjört keypti mjög ríflega af efninu í brúðkaupskjól-
inn sinn og ætlar sér að sauma eins kjól á dótturina
Mæðgur í stíl
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Full búð
af nýjum
vörum
Stærðir 40-60