Morgunblaðið - 19.03.2010, Page 28
Með veitingum Á Reykjavíkurvegi er veislusalur sem tekur um 160 manns í sæti og þar er líka veisluþjónusta.
Þ
að eru sífellt færri sem
kjósa að hafa brúðkaups-
veislu í heimahúsi enda
óneitanlega þægilegt að
sleppa við allt umstangið
sem fylgir mannmargri veislu.
Flestir salir hafa líka allt til alls og
bjóða jafnvel upp á veisluþjónustu
og þrif með. Það getur borgað sig
að panta sali snemma, sérstaklega
ef brúðhjónin vilja geta valið um
hvaða sal þau leigja. Þannig segir
Stefán Ingi Guðmundsson veitinga-
maður að Glersalurinn í Kópavogi
sé vel bókaður í sumar. „Það er
heldur betur búið að bóka okkur í
sumar enda er reynsla okkar mjög
einföld, þegar fólk er búið að koma
og skoða salinn er varla aftur snú-
ið. Hins vegar er ofsalega misjafnt
hvað fólk bókar salinn með miklum
fyrirvara fyrir brúðkaup, allt frá
þremur mánuðum og upp í rúmlega
ár.“
Svalir allan hringinn
Stefán Ingi staðhæfir að Glersal-
urinn sé með fallegri sölum á land-
inu og þess vegna sé hann vinsæll.
„Það sem gerir salinn einstakan eru
gríðarlega fallegar svalir sem eru
allan hringinn í kringum salinn.
Salurinn er á þriðju hæð og byggð-
ur ofan á húsið með stórum svölum
allan hringinn. Það er fátt eins fal-
legt og að standa úti yfir sumartím-
ann enda útsýni til Garðabæjar og
Reykjavíkur. Í brúðkaupsveislum á
fallegum sumardögum höfum við
fordrykkinn mikið úti á svölunum,“
segir Stefán og bætir við að sal-
urinn taki allt að 140 manns í sitj-
andi veislur en það er algengast að
brúðkaup séu sitjandi veislur.
„Kokteilboð og standandi veislur
hafa tilhneigingu til að vera styttri
veislur sem hentar yfirleitt ekki
nema í kvöldbrúðkaupum. Salurinn
er líka skemmtilegur að því leyti að
það eru í raun tveir inngangar, ann-
ars vegar inngangurinn að fata-
herberginu og þá er gengið fram
hjá salernunum eða þá að gengið er
beint inn í salinn. Í brúðkaups-
veislum stöndum við frammi og tök-
um yfirhafnirnar af fólki og vísum
því inn barmegin því þeim megin á
það líka greiðari aðgang beint út á
svalirnar.“
Mikið bókað í sumar
Á Reykjavíkurvegi er fallegur
veislusalur sem tekur 160 manns í
sitjandi veislu en Oddsteinn Gísla-
son matreiðslumeistari segir bók-
anir í sumar vera framar vonum.
„Fólk er mjög duglegt að bóka
snemma fyrir brúðkaup og ég hef
meira að segja þegar fengið fyrir-
spurn um brúðkaup í desember á
næsta ári. Að jafnaði bókar fólk sal-
inn fyrir brúðkaup með um 3-4
mánaða fyrirvara en yfirleitt byrjar
það að skoða um áramótin og bókar
út frá því. Hins vegar eru ein-
hverjir dagar eftir í sumar, laugar-
dagarnir fara fyrst en samt kom
það mér á óvart að við bókum svo-
lítið á föstudögum líka,“ segir Odd-
steinn og bætir við að þau bjóði upp
á alla þjónustu ásamt því að
skreyta salinn ef eftir því er óskað.
„Við bjóðum líka upp á veisluþjón-
ustu en það er ýmis gangur á því
hvort fólk pantar sal með veislu-
þjónustu eða ekki en fólk virðist
vera spennt fyrir því að láta sjá um
sem mest þannig að það er mikið
um að við leigjum salinn út með
veitingum.“
Ekkert tappagjald
Á sjöundu hæð í miðjum Hafnar-
firði er veislusalurinn Turninn sem
tekur um 108 manns í sæti. Þó tek-
ur hann um 96 manns í sæti í brúð-
kaupum enda þarf þá að vera gott
pláss fyrir háborðið. Sigurður Skúli
Bárðarson segir útsýnið úr salnum
vera einstakt enda á sjöundu hæð
með útsýni allan hringinn. „Það eru
svalir bæði til norðurs og suðurs og
því hægt að dást að öllum Suð-
urnesjafjallgarðinum, Keili í suður-
átt og Snæfellsjökli í norðurátt. Það
sem er líka svo skemmtilegt við sal-
inn er að hann er ekki of stór fyrir
fimmtíu en ekki of lítill fyrir hundr-
að.
Lofthæðin er svo skemmtileg í
salnum og hann heldur vel utan um
gestina en ef verið er að halda
standandi veislu hentar hann fyrir
200 manns. Hér er hljóðkerfi og all-
ur borðbúnaður og aðstaða í eldhúsi
fyrir uppvask en við seljum engar
veitingar. Fólk getur því komið
með sínar eigin veitingar, þar á
meðal áfengi og við tökum ekkert
tappagjald heldur leigjum salinn út
á föstu verði,“ segir Sigurður og
bætir við að einungis séu örfáir
dagar eftir fyrir brúðkaupin í sum-
ar. „Það verður að panta svona sali
með löngum fyrirvara og þessi sal-
ur er mjög vinsæll. Samt höfum við
hvergi auglýst hann utan þess að
vera með hann inni á Salir.is. Hann
bara auglýsir sig sjálfur.“
svanhvit@mbl.is
Glersalurinn Það eru fallegar svalir hringinn í kringum Glersalinn sem er einkar vinsæll.
Turninn í Hafnarfirði Það er skemmtileg lofthæð í Turninum í Hafnar-
firði en þar geta um 96 gestir verið í sæti í brúðkaupsveislu.
Hin full-
komna
staðsetning
Það eru til ótal fallegir salir úti um allt og því auðvelt að
finna sal sem hentar hverju brúðkaupi fyrir sig. Hins veg-
ar þarf oft að bóka þá með góðum fyrirvara og eins er
gott að kanna hvort veisluþjónusta fylgir með eða ekki.
Fólk er duglegt að bóka
snemma fyrir brúðkaup
og ég hef þegar fengið
fyrirspurn um brúðkaup í
desember á næsta ári.
28 | MORGUNBLAÐIÐ
®
Smáralind
sími 528 8800
Fisléttar ferðatöskur.
Mjúkar og harðar 3 stærðir.
Líttu á www.drangey.is
Frábær brúðargjöf!