Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 6

Skólablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 6
- 68 - GATAN var þröng og dimm. Hráblautir, ryðgaðir húsgaflarnir stóðu andfætis hver öðrum og það virtist sem tannlausir skolt- arnir huldir úfnu þakskeggi reyndu að ná hver til annars, minnast. - Skakkur ljosa- staur hof brotna krónu í mót himni, en daufa skímu bar af vaðandi skarmána. Gatan var liflaus. Regnið buldi á gáróttu malbikinu. Gulnaður, skorpinn appelsínu- börkur barst með flaumnum 1 göturæsinu. Husin við götuna voru dimm og hljóð, að einu undanteknu. Þar bjarmaði af daufu kolbogaljósi ut um gluggaboru hálf hulda ofinni tjásu. Hus þetta var tvílyft með áföstum eldiviðarskur, byggt af timbri. Það glampaði á nuinn hun utidyrahurðar- innar 1 tunglskímunni. Þetta var forláta eikarhurð, málmslegin í* bak og fyrir, en til hornanna örlaði á uppreisnargjörnum flísum, sem belgdu sig allar út eins og til að syna umheiminum fram a tilveru sína. Á miðri hurðinni gat utfluraðan skjöld gjörðan af góðmálmi. Á skildi þessum mátti greina mannsnafn innan um allar rosirnar: Börkur Þorgrímsson, veð- brefasali. Ef einhver hefði átt leið um götuna a þessu augnabliki, hefði hann heyrt óljóð- rænt kurr að innan. Inni fyrir sat hus- ráðandi við borð, hann hóstaði. Beinaber og skorpinn líkaminn hristist, svo að larfarnir ætluðu í* sundur á saumum. Gráleitt hárið þyrlaðist um fölbláan skall- ann, hátt ennið var skarphrukkað. Kolgra kinnbeinin voru alsett tjásulegum,smáum skeggbroddum. Hátt hrútsnefið, blátt og þrútið, tifaði. Klepróttur kjafturinn huldi að mestu gulnaðar tannkörtur, og hæru- skotið hökuskeggið lafði í* nábýli við inn- fallna bringuna. Slöttungslegir njórafætur voru vafðir utan um visnar stóllappir og mátti vart á milli sjá, hvort var brúnleit- ara, stólviðurinn eða ber skankabjórinn, sem helzt minnti á kálfskrof. Traustbyggt eikarskrifborð var merk- ast húsgagn 1 kytrunni. Á því* voru niu skúffur, fjórar hvoru megin og ein 1 mið- ið. Þrem mátti læsa og sá á, að um þær var mest gengið. Á borðshorninu var gljáandi blómsturvasi, sem innihelt þrjar visnaðar rósir. Guggin pyttla stóð á miðri borðplötunni. Á skrautlegum mið- anum mátti sjá, að einhvern tíma hefði hún átt betri daga. I* dimmasta horni her- bergisins gat að líta járnbenta kistu. Hun var lukt aftur og skreytt vönduðum, stór- skornum hengilás. Miðja vegu frá kistu- miðbiki til enda hvoru megin voru stað- settar digrar keðjur, sem enduðu strekkt- ar í* dökkbryndum talnalásum. Undir kist- unni var forkunnarfagur, persneskur dregill, en annars staðar 1 herberginu voru flysjaðar gólffjalirnar berar. Á veggn um andspænis kistunni hókk mynd af gap- andi náhveli 1 glysramma. Annað var það ekki, er til veggprýða gæti talizt. Nokkuð bil var á milli þröskuldar og hvítmálaðrar hornhurðarinnar. Hægra megin hurðarinnar var gólfið næsta óslit- ið á bletti. Þar lá mitt í* rykinu fer- hyrnd, gulnuð mynd af tveim manneskj- um. - Unga stúlkan var með hvítt slör, en pilturinn með blóm í* barmi. - Jafn- vel í* öllu rykinu ljómaði af myndinni. Smáskorinn gluggi var yfir miðju i skrifborðinu. Regnið buldi á fjórskiptri glerrúðunni úti fyrir. Vatnið pí*pti inn um gegndræpan gluggapóstinn og mátti á veggfoðrinu undir gluggakistunni glögg- lega sjá hver örlög þess urðu. Glugginn var nylega málaður. Sá fjórðungur, sem opna mátti, var fast herptur aftur með óskrámuðum krókhengslum. I* slöguðu loftinu hekk ber ljósgjafinn. Andrúmsloftið inni í* herberginu var afar þungt, en hinn hóstandi maður varð þess ekki var. Hann var samdauna öðr- um þeim heimsins óhreinindum, sem gat inni 1 þessu herbergi. Spaklega þokaði hann sinaberri krumlunni inn um mussu- hálsmálið og naði taki á lykli hangandi í hálsfesti. Af öllu latæði mannsins mátti sjá, að hann hugðist opna miðskúffu skrif- borðsins. Hóstandi og beljandi lagðist hann á hnen, setti lykilinn í* skráargat'ið og sneri. Það mátti glögglega sjá, að hann leitaði einhvers serstaks í* skúffunni. Hann fann það, sem hann leitaði að : úr brefabunka dro hann snjáða blaðaúrklippu. Hann bar úrklippuna upp í* mót ljósinu til þess að geta lesið feitletraða fyrirsögn- ina. . . - . . . margir dálkar þar niður undan fjölluðu um sama efni, en hann

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.