Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 31

Skólablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 31
- 93 - ÞEGAR holskefla jolabokanna var aÖ skella á eyÖilega ströndu íslenzks boka- markaðar, rak 2. tbl. SKÓLABLAÐSINS á fjörur. Varð reki þessi á miðjum Ýli hins 1964. árs eftir burð frelsara vors. r nafni Guðs föður,----- Blaðarkir og ritsverta eru verðmæti. Er nu hlutur minn að freista að fella dóm yfir meðferð ritstjórnar SKÓLA- BLAÐSINS á þeim þrem tugum síðna, er tölubl. telur. Fyrst fastra þátta og í senn upphaf blaðsins er grein ritstjóra ("EDITOR DICIT"). Fjallar hún að þessu sinni um vandamál unga fólksins. Greinin er rituð i lettum og fjörugum anda, og er hun á köflum hreinn skemmtilestur. Stillinn er víða nokkuð laus í reipum, og þykist eg verða var við fljótfærni her og þar. Nokkrar orðmyndir koma fyrir, er litla samleið eiga með stÍL og anda greinar- innar ( inn (hinn), eigi (ekki), millum (milli) ) ; orðaröðin "ráð gott" er og stílsprengja. Þykir mér af ymsu ljost, að höf. hefir að nokkru kastað höndum til verksins. Slíkt verður eigi fyrirgefið. Þrátt fyrir annmarka þessa er greinin hin ágætasta, enda er' höf. einna fremstur þeirra, er við penna fast her í skola. Kjaftasögur fá að vanda rúm sitt ( "QUID NOVI? " ). Eru þær allsæmileg- ar. Hefir þátturinn farið vel af stað og er á köflum andstyggilegur með ágætum. Markús örn Antonsson, Inspector Scholae, ritar merka, en stutta grein um fólagsmál ( "BLEKSLETTUR" ). Tæpir höf. á ýmissi nýbreytni og tillögum, og er tími til, að þeim verði ýtarleg skil gerð. l.tbl. SKÓLABLAÐSINS dæmir Þráinn Bertelsson, fyrrum ritstjóri, ("RITDÖM- UR"). Fjölyrði eg það mál eigi, enda er það utan verkahrings míns. Fyrsta ljóð tölubl. yrkir Atli Magnús- son ("HEIMKÓMAN"). Er það að formi og anda hefðbundið. Mer þykir sem það boði helzt til fátt, en viðkunnanlegan bla; ber það. Hætti er vel fylgt. Eitt er þó lýti á og það ljótt. Er það hljóðvilla ( stuðlað hv- við k- ). Slúk glöp eru langt neðan viarðingar Atla, er viður- kenndur er sem skolaskald. Nýliði, Vilmundur Gylfason, kveður ser hljóðs og er töluvert niðri fyrir ( "TILKYNNING" ). Boðskapur kvæðisins er gamalkunnur, og er það því” litiís virði. Hitt ber að lofa, að höf. tekst að halda ákveðinni hrynjandi út kvæðið. Það gleymist oft. Mál kvæðisins og still : rúma tæplega orðið "bara". Til lýta er og orðaröðin "yðar sigur". Tvö ljóð birtir S. P. nokkur ("DRAUM- UR í TVÍRITI" ^og "SÖLNUÐ LAUF" ). Bæði eru þau leleg og hið siðara þó miklu verst. Sýna ljóðin þó framför, a. m. k. ef miðað er við ljóð sama höf. í l.tbl. SKÓLABLAÐSINS i vetur. jón skáld örn birtir tvö stutt ljóð og virðir að vettugi hefðir íslenzkrar brag- listar. Fyrra ljóðið ( "NOCTURNE", það er aldrei að það er nafnið 1 ! ! ) þykir mér næsta gott. Er mynd sú, er jón dregur upp, hugþekk og hrífandi, og ligg- ur táknsæi hennar í augum upj)i. Þróun myndarinnar er stígandi, og lykur hún ljóðinu á eðlilegan og áhrifaríkan hátt. "Öldur þúsund vatna" og "draumur í þús- und ár" verka á lesandann Ojg leiða upp- haf og endi ljóðsins saman a kynlegan hátt. 2. og 3. visuorð l.erindis eru sterk og gefa, ásamt 3. og 4. vísuorði niðurlags-erindis, ljóðinu serkennilega hrynjandi. Hið súðara ljóðið ("SKUGG- AR", þar var það þó íslenzka I ! ) er lak- ara, enda illa sett við hlið svo góðu kvæði sem NOCTURNE-unni (!!!!). Virðist mór niðurlag þess vera í senn fall þess, dauði. Tvær stökur birtast aftast í blaðinu. Eru þær hið fyrirlitlegasta ní*ð, og er V-A verður aruiarra og innilegri atlota. Á því* leikur eigi vafi, að höf. er bölv-

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.