Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1965, Síða 13

Skólablaðið - 01.04.1965, Síða 13
- 155 - - Það er ekki til, þegar menn vilja ekki komast fyrir rætur þess og útrýma þvú. Ég sa, að Gunnar og Sigga litu annað slagið og höfðu hugann auðsjaanlega ekki við umræðuefnið. - Jæja, við tökum þetta af dagskrá. Malið angrar fólk og maður kemst hvort sem er fyrr en varir í rökþrot með þetta eins og flest axrnað. Gunnar sötraði kaffi og £t vínarbrauð með. - Ég talaði við Siggu á meðan. - Þegar hann hafði lokið við að drekka leit hann glaðlega á Siggu, síðan á mig og spurði : - Ætlarðu ekki að kynna stúlkuna betur fyrir mer en með nafninu einu? - JÚ, það get eg, sagjði eg. Þetta er kaupmannsdúttir heðan ur bænum, myndar- leg eins og þú serð. HÚn var 1 sveit fyrir norðan í sumar. Annars á að vera óþarfi að kynna fólk undir kringumstæðum sem þessum. Stundum tala tilfinningarnar áhrifaríkari orðum en tungur. - Já, það er satt, sagði hann. Þau horfðust í augu. - Eða viltu að eg haldi áfram? - Nei, nei, það kemur svo sem ekki við mma hagsmuni. Um leið var útidyrahurðinni hrundið upp á ný og hranalega. Storm- og hríðar- strokan stóð inn i salinn. Kertaljósin flögruðu á skörunum, en dóu súðan. Það varð almyrkt i kaffihúsinu. Fólk stóð upp frá borðum, og talaðist eitthvað við um þetta táðarfar og sumir bölvuðu. Ég sneri mer við 1 sætinu og ryndi fram 1 salinn. óljóst greindi óg fólk á hreyfingu. Éftir drykklanga stund kastaði eitt kertanna á ný daufri skímu á borð og veggi. Ég sneri mér við 1 sætinu og ætlaði að segja eitthvað við sessunaut- ana, en hætti skyndilega við það. Það, sem eg sá, voru þung faðmlög og lang- ur koss. Ég stóð hljóðlega upp frá borðinu og gekk fram salinn, leit við frammi við útidyrnar, en í horninu hafði engin breyt- ing orðið. Ég gekk út 1 hrúðina. Þetta var i desember - kvöld i desember............ Maí’ 1956. Sexbattungur eftir Atla Heimi. I. LISTMÁLARINN Samúel stóð við gluggann á vinnustofu sinni og horfði út yfir bæinn. Þetta var rótt eftir nón, sólbjartan vordag. íbúð Samúels var á efstu hæð i þriggja hæða fjölbýlishúsi við eina af helztu umferðargötum bæjarins. Niðri á strætinu hlykkjaðist áfram endalaus straumur bíla sem flautuðu í gríð og erg, og biðu óþolinmóðir eftir að komast leiðar sinnar. Hávær bifhjól þutu fram og aftur og yfirgnæfðu algerlega köll blaðasalanna. Frá skipasmúðastöðinni barst ægilegur havaði sem skóf innan hlustir hans. Og kliðurinn af masi þúsunda radda virtist honum helzt líkjast voldugum brimgný. Alltaf spillti þessi andskotans hávaði vinnu- friði hans. Hann hafði ekkert getað unnið alla síðustu viku. - Samúel andvarpaði mæðulega, um leið og hann gekk frá glugganum. n. Samúel la í ruminu og hafði tvívafið sænginni um höfuð sór. Hann var að hugsa : - HÓr var honum ómögulegt að vinna. Þessi eilííi hávaði ! ó, hve heitt hann þráði kyrrð og ró. Hann minntist og þess, að hann hafði reynt að mála með bómull i eyrunum. En það var sama. Ekkert gekk. Helzt yrði hann að komast í burt. Bara eitthvað burt ! - Samúel hrökk upp úr þessum hugleiðingum við það, að kona hans bankaði í bakið a honum og sagði kvöldmatinn vera framreiddan. III. Hann stóð upp, gekk að matborðinu. Vinna var úti í skipasmíðastöðinni og flautið í bílunum var strjálla. En ennþá voru æpandi og gólandi börn að leik bak við húsið. Konan fór að gefa krökkunum þeirra að borða. Þau áttu tvö börn, fimm

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.