Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1965, Page 21

Skólablaðið - 01.04.1965, Page 21
- 163 - LENGI biðum við menntskælingar fyrsta skolablaðs ársins 1965, enda kom það vonum seinna. Blaðsiður þess voru allmargar, en efnið ekki að sama skapi merkilegt. Ætlunin er að ræða hér örlítið það, sem fyrir augu bar á þessum fjöl- mörgu síðum. Ritstjori fylgir afkvæmi sínu úr hlaði með hinum hefðbundna pistli "Editor dicit". Dalkur sa ber undirtitilinn "Botnleysa", sem er réttnefni. Botnleysa þessi er nokk- uð skemmtileg aflestrar og allsæmilega skrifuð, en þvú er ekki að neita, að sést hefur betri "Editor dicit". H. S. yrkir kvæðiskorn undir titlinum "Dþden". Satt að segja þa býr úslenzk tunga yfir slíkri orðgnott og fegurð, að engin astæða er til að leita til annarra og mun ofegurri tungumala, og mér þykir hlalegt, að menntskælingar skuli þurfa orðasöfn við lestur eigin malgagns. Ýmsir merkismenn og kvenskörungar svara spurningu múnaðarins, og koma þar i ljos ýmsar skoðanir, sem ekki verða ræddar hér, en svörin eru öll nokkuð vel rituð, bæði í bundnu máli og obundnu. Sigyn birtir okkur sínar skoðanir á fallvelti lífsgleðinnar, sennilega af eigin reynslu. Kvæðið er nokkuð myrkt en annars ekki sem verst. Sjaldan hefur verið meir kastað höndum til "Quid novi" sem nú. E>6 leynast í þvi" aeistar, en þeir duga ekki til að varpa Ijpma á þvælu þá, sem þessir slúður- dalkar eru. Vísa ég sáðan til fyrri ummæla erlend tungumal í íslenzku skolablaði. I. M. ritar frásögn af gamalli konu, sem gerir kraftaverk og deyr. Hugsunin er falleg, en ég felli mig ekki vel við þetta eintalsform eða öllu heldur viðtalsform. Ef til vill má vænta fleiri og betri verka úöfundar seinna. _ Ritstjori bregður sér \ föt gagnrýnanda a leiksýningu Herranætur. Fellir hann, að rnmu aliti, nokkuð sanngjarnan dém, og hirði ég ekki að ræða hann nánar. Hissa er ég á Jóhannesi Björnssyni að setja nafn sitt undir þvílíkan þvætting, sem ritstjóri leyfir sér að 'birta. Furðu- legri samsetning hefur ekki fyrir augu mér borið. Ef þetta er framtíð forms og anda í íslenzkum kveðskap, bið ég guð að hjálpa íslandi og íslendingum. Enn fáum við að heyra "sáldarhistoríú", en ég held að flestir séu orðnir lang- þreyttir á slíkum bókmenntaframlögum. Heldur er frásögnin laklega unnin og leiðinleg aflestrar. Sigmundur Sigfússon lætur frá sér fara langhund einn mikinn, Greinin er skipulega upp sett og nafnið skemmtilega valið. Annars er hun vart lesandi, nema fyrir lögspaka. Ritdóm gerist ekki þörf að ræða. Sigurður Ingolfsson ritar sögu, sem hann gefur nafnið "sturlun". Hugmyndin er allgóð, en slælega unnið úr henni og framsetning hennar mjög léleg. - Ég báð framhaldsins í ofvæni. - "Dansleikur" jóns Bjarnasonar er ein bezta grein blaðsins. Líkingar hans eru valdar af raunsæi og hugkvæmni og greinin vel unnin. "Apologíú" fjandans mun Þorsteinn Helgason hafa þýtt úr dönsku. Þvá mið- ur hef eg ekki haft tækifæri til að lesa greinina á frummálinu, svo að ekki er ég fær um að dæma ágæti jpyðingarinnar. Þorsteinn hefur agætt mal a þessari þýð- ingu sinni, enda má telja hann allreynd- an þýðanda. Greinarmerkjasetning er nokkuð gölluð, en jDað mun ekki vera hans heldur ritstjora. Vilmundur Gylfason slettir bleki ótt og óðagotslega. Nokkuð þykir mér hann fara óvarlega með tölur, og í heild er greinin innantom og smáborgaralega skrifuð. RÚnar Ármann virðist þjást af mikil- mennslubrjálæði, en hvað sem um það er að segja, þá virðist mér kvæði hans Frh. á bls. 180.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.