Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1965, Qupperneq 22

Skólablaðið - 01.04.1965, Qupperneq 22
- 164 - í PORTI LiFSINS HÚS loftskeytamálastjórans, fyrrum sendiráðsbustaöur Noregs, var í einu feg- ursta hverfi bæjarins. Það stóð eitt sór 1 smekklegri fjarlægð frá öðrum husum, umlukið verðlaunuðum garði. Gamlar konur leiddust stundum arm 1 arm að hliðinu á góðviðrisdögum og dáðust að því sem þær fengu séð inn um hliðgrind- ina, en hún var vanalega læst með stór- um skellibrandi og keðju. Það kvöld, sem her um ræðir, var þó allt með öðr- um brag. Hið háleita hvíta steinhús var uppljómað, þótt rauð sól skini á vestur- lofti og næstum dagljóst væri úti. Vængjahurðirnar 1 anddyrinu voru opnar og breiddu faðminn móti væntanlegum gestum hússins. Við gluggann á efstu hæð stóð dóttir loftskeytamálastjóra og borðaði súkkulaði. Hún var hálfringluð eftir allt sem á hafði gengið siðustu daga. HÚn hafði nýlokið stúdentsprófi, og á púða á svarta leður- legubekknum lá hvíta húfan, sem hún vissi að fór henni afar vel. Það höfðu allir sagj;, sem sátu fjölskylduboðið kvöldið áður, Þar höfðu komið saman nokkrir vandamenn ásamt tengdaliði for- eldra hennar, sem færðu henni blóm og baðu henni vej.farnaðar. Samt varð hún fe_gnust að sja þau fara, þvi auðvitað var hun ung 1 anda og ekki fyrir að umgang- ast raðsett folk. En þetta var sjálfsagt venja og ekkert við slúku að segja. I* kvöld átti hún von á öðrum og við- kunnanlegri gjestum, Faðir hennar hafði látið henni húsið eftir og bekkjarsystkin- unum, þar sem hann hafði sjálfur brugð- ið ser til RÓmar um morguninn, þeirra erinda að sitja þing Alþjóðlegu Loft- skeytamálastofnunarinnar. Nú sá hún bif- reið stanza niðri á veginum. Þetta var nýmálmskínandi Ramblerbifreið, eign herra N. Læks, sem var helzti hluthafi 1 skipafelagi. Sonur hans, Svavar Læks, ste út úr bílnum, læsti bifreiðinni vand- lega og gekk inn um opið garðshliðið. Hann var fremur lágvaxinn og grann- holda, skarpleitur og ofurlítið siginn 1 öxlum. Hann var samkvæmisklæddur með stúdentshúfu á höfði og reykti síjg- arettur af sterkustu tegund. Þessi piltur hafði hlotið verðlaun fyrir námsafrek á sviði stærðfræði og sórstakle^a verið getið við skólaslitin vegna frabærrar ástundunarsemi. Því* bar hann höfuðið hátt, og þegar hann kom auga á Sólveigu eða Sollu uppi við gluggann veifaði hann. HÚn tók á móti honum við dyrnar. "Kvöldið, gatt^inn" sagði hun. Þegar komið var inn 1 hinn mikla for- sal, þar sem ambassador Noregs skálaði fyrrum 1 dýrum vínum við orðufolk, bað hún hann að fá sér sæti og bauð sígar- ettur. Nei takk, hann var að, Á aðalveggnum blasti við feiknastór mynd af ítalanum Marconi, föður loft- skeytanna, vinstra augað aftur, hitt órætt. Hvaða svipur var þetta? Dramb, tóm- læti eða voru það ef til vill vonbrigði yfir einhverju, sem enginn gat vitað. HÚn bað hann að bíða meðan hún skryppi fram litla stund og tæki nokkrar kampavínsflöskur út úr kælinum. Um leið og hún opnaði eldhúsdyrnar skauzt út feitur, gulur köttur. Hann steðjaði þvert yfir gólfið með hátignarlegu yfir- bragði og helt upp stigann. I" efsta þrep- inu stanzaði hann og brýndi klærnar 1 eldmóði á flosábreiðunni. Solveig leit afsakandi til Svavars Læks sem yppti öxlum og brosti vinsamlegast. Meðan ungfrúin sinnti húsmóðurstörf- um fór gesti þessa kvölds að dráfa að. Hver bifreiðin á fætur annarri renndi upp að hliðinu. Ýmist einkabifreið eða leiguvagn. Stúlkurnar flykktust inn 1 eld-

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.