Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1965, Qupperneq 27

Skólablaðið - 01.04.1965, Qupperneq 27
- 169 - upp úr fólki, þegar það hefur drukkiÖ frá ser allt ráð. En Ketill sagði ekkert. Hann muldraði aðeins eitthvað niður í bringu sána, sem enginn skildi. öðru hverju hikstaði hann hátt og þá var hleg- ið. Allar umræðurnar um Marconi leiddu loks til þess að farið var að tala um snillinga og stórmenni. Á hverri öld fæðast jafnan nokkrir slákir. Enginn veit hvaðan þeirra má vænta heldur koma þeir oft frá ólíklegustu stöðum. "Hver veit nema her í okkar hópi se einn slákur, " sagði Svavar Læks. "Hver veit nema það se einmitt einhver Marc- oni her staddur. " "já, hver veit, " sagði sá nytrulofaði. Stulkan, sem svo mjög ann Einari Bene- diktssyni, hafði sezt hjá Páli á ný, og þau höfðu enn tekið upp samræður um ljóðlist. Hun færði sig nær honum og lezt tína kusk af erminni hans. "Kannski þú verðir eins og Einar Ben. , " sagði hún, "-mikið skáld. " "Oooo-, ætli það, " sagði Páll og beið eftir að heyra meira. í þessu heyrðist söngur og þau SÓl- veig og herrarnir, sem voru svo hjálp- legir, gengu 1 stofuna. Þrúr piltanna báru á milli sm myndina miklu af Marc- oni með hátíðlegum tilburðum. "Yið erum komnir með nýjan gest í* samkvæmið, " sagði sá þeirra sem stærstur var og helt undir myndina að framan. "Her kemur meistarinn 1 sam- kvæmið. " Hlátursalda fór um stofuna, vein og guðsáköll. "Upp með meistarann, " æpti Svavar Læks, og undirtektirnar letu ekki á sér standa. "Upp með meistarann, " æptu gestirnir. "Upp með meistarann ! " Þar sem 1 ljos kom við athugun, að ekki var hægt með neinu móti að koma myndinni upp á krók eða nagla, var loks horfið að þvú ráði að færa hana upp á bak legubekksins. Regn af gipsmolum hrundi ofan á þá, er þar sátu, þegar bílætinu var komið fyrir höfði þeirra, svo allir forðuðu sér 1 skyndingu, nema Ketill. "Og skál nú, " sagði Svavar Læks. Dansinn hélt áfram með fullum krafti. Þetta var gott boð. Við ofninn sat kött- urinn Gulur og velti vöngum yfir sjálf- um sér. Hann var eitthvað svo skemmti- lega skrýtinn innan um sig. Hagyrðing- urinn Björn hafði nefnilega verið svo hugsunarsamur að gefa honum akaviti a skál. "Hvað ætlar þú að lesa, " spurði vina Einars Ben. Pál, meðan þau voru að dansa. "Sennilega listasögu, " hvíslaði hann inn 1 eyrað á henni, " - i París. " "Hamingjan sanna, það er naumast, " sagði hún. "Og hvenær ferðu? " Páll hvislaði aftur, ný plata var sett á grammófóninn, og skipta varð um spor. "Hugsa sér, " sagði ungfrúin hrifin. t legubekknum sat Ketill og hengdi haus. Hann var sofnaður. öðru hverju andvarpaði hann og muldraði upp úr svefninum. Á erminni hans var stort gat, sem hann hafði brennt með vindli. Vesalings Ketill. í gylltum ramma yfir höfði honum gnæfði Marconi, faðir loft- skeytanna. En hvað hann vildi sagt hafa gat enginn vitað. Atli Magnússon BLEKSLETTUR frh. af bls. 162. Af fjórtán árgöngum Faunu á íþaka ekkert vel fragengið eintak, þ. e. ekkert innbundið, og það sem til er, er meira eða minna skemmt. öllum hlýtur að renna til rifja, hversu slóðaskapurinn varðandi varð- veizlu útgefinna rita innan skólans hefur átt mikil ítök í Iþökunefnd á s. 1. 15 ár- um, þvú ekki ^etur gildi þeirrar varð- veizlu leikið a tveim tungum. Ármann Sveinsson Lélegur nemandi reynir að snúa sig út úr setningu í enskum stíl : Framburður fljótsins hefur skapað grynningar í botni fjarðarins - The pronunciation of the stream has minimized the space between the sur- face of the sea and the bottom of the ocean in the end of the bay.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.