Skólablaðið - 01.04.1965, Page 30
- 172 -
Við skyldum ekki gleyma að Þjoð-
verjar hafa gefið heiminum fleira en
skelfingu tveggja heimsstyrjalda -
fremur en skyldum við gleyma tveim-
ur heimsstyrjöldum. Meðal þeirra
hafa líka risið hinir beztu menn
þjóðanna, oftar en ekki upp á kant
við stjórnarvöldin og kannski þá líka
siðgæði þjóðarinnar þá stundina eins
og það var tulkað x munni valdhaf-
anna. Sumir litlir vinir hins hreina
kyns se^ja að mikilmennin hafi skap-
azt ítrassi við öll lögmál þjóðar-
sálarinnar, þrátt fyrir að þeir voru
Þjóðverjar en ekki vegna þess. Það
ræðum við ekki hór,
t dag stendur til að minnast Der
Blaue Reiter. Það er nafn áfélagi
nokkurra listamanna sem komu sam-
an x Miinchen upp úr sáðustu alda -
mótum, tveir ur Russlandi, þriðji
fra Sviss, fjórði var austurriskur,
nokkrir Þjóðverjar; rákust þarna
saman 1 borg Hitlers og Thomasar
Mann og datt x hug að stofna með ser
kompanf um áhugamálin. Ekki til að
breiða ut kenningu eða stefnu eins
og dadáistar gerðu seinna, og eng-
inn skóli myndaðist kringum þá.
Wir suchen in dieser kleinen Aus-
stellung nicht eine prázise und
spezielle Form zu propagieren :
Við ætlum ekki að breiða ut eitt
þröngskorið og sérstakt form a
þessari litlu sýningu, sagði
Kandinsky 1 opnunarræðu fyrstu
sýningar þeirra fólaga. Allir inn-
byrtu þeir eitthvað af listastefnum
samtímans til persónulegra áhrifa:
fauvisma, kubisma,expressionisma
- og höfðu sjálfir i sinum hópi
skráðan upphafsmann hreinnar ó-
hlutstæðrar ( abstrakt-) listar :
Kandinsky. - . , . nicht eine spezielle
Form: og samt hafði Der Blaue
Reiter áhrif sem naðu langt ut fyrir
heimalandið og lengur en félag
þeirra stóð.
Þeir gáfu ut ársrit með nafni Bláa
reiðmannsins, þar skrifuðu þeir
greinar um myndlist, og er fram-
lag Kandinskys einkum mikils vert