Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1965, Side 31

Skólablaðið - 01.04.1965, Side 31
- 173 - og endurprentað síðan ; Schönberg og lærisvein- ar hans, Berg og Webern, rituðu um tónlist. Wassily Kandinsky fæddist i Moskvu og til met- orða 1 myndlistarlíífi austur þar um og eftir byltinguna unz hert var a ríkiseftirlitinu og hann fluttist ur landinu. Kandinsky erfði margt úr bændalistinni rússnesku; þróunarsaga hans er a margan hatt saga listar þessa tímabils : fra hlutstæðri list til óhlutstæðrar. Síiellt naði hann meiri fullkomnun og töfrar mynda hans eru ein- stakir og nalgast hið dularfulla. Paul Klee hefur verið lifandi afl 1 myndlist fram a okkar dag, um hann hafa verið ritaðar þykkar bækur. Orðlengjum það ekki mjög nema að eitt sinn nefndi hann myndir sínar kuhle Romantik ohne Pathos : tempraða draumhygð án við- kvæmni. Kannski mætti líka kalla þær leyndar- dóm dagsbirtunnar. Sumar eru eins og spurul takn : Til hvers er eg her? Ein mynd heitir Misviðri: tvær slettur, rauð og svört á gulum fleti - og ein ör. Hvert bendir þessi ör ? "Uppruni örvar, " sagði Klee, "er hugsunin : Hvernig get eg aukið seilingarvidd mma þangað? Yfir þessa á? Þetta vatn ? Þetta fjall ? " - Mynd heitir Yilla R: hús, brún fjöll eins og trumbuslög aftan við, sól, grænt tungl, gunnfani. Framan við húsið er á, rauð á, og þar stendur bókstafurinn R. Hvað þýðir R ? Allt sem spannar bilið milli Rausch og Ruhe og er þar að auki þáttur 1 táknakerfi sem menn bjuggu til að tjá hugsanir sínar. Þjóðverjarnir Franz Marc og August Macke stóðu nær hinum ómengaða þýzka expression- isma eins og hann birtist í norðurhluta landsins: Die Brucke ( Schmidt - Rottluff, Nolde ), og báðir gengu i skóla fransks fauvisma og rúmskynjunar kúbismans. Fleiri ættu skilið nótur : Austurríkismaðurinn Alfred Kubin sem málaði og teiknaði i stöðugum flótta frá vitfirringunni ; Alexei Jawlensky, landi Kandinskys ; Gabriele Múnter. . . En nú var komið stríð í* Þýzkalandi. Macke fell 1914, Marc við Verdun 1916. Kandinsky og Klee flýðu Þýzkaland nasismans 1933. Franz Mare: Rádýr { skogi um nótt, 1915. Fátt segir af myndlistarafrekum Þjóðverja á seinni arum. Þorsteinn Helgason 'V') <*■ $idt> Paul Klee : GótSur brandari, 1913.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.