Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1965, Side 32

Skólablaðið - 01.04.1965, Side 32
Óskar Sverrisson 6. -X : , .. 1 t ' * % i—\ereilm | ) nchiird ■ í vetur hefur blaö Raunvisindadeildar Framtíðarinnar, De rerum natura, komið út 1 tveimur tölublöðum. Heildarblað- síðutal þessara tveggja blaða er 142 síð- ur, en fjögur fyrstu skólablöðin í vetur taka samanlagt yfir jafnmargar blaðsíður. Útgafustarfsemi Raunvisindadeildar hefur aldrei verið meiri frá því’ blaðið hóf göngu sma fyrir fimm árum. Aldrei hafa fleiri nemendur auk ritstjórnar ritað 1 blaðið sem í vetur, og ber að fagna því", að nem- endur sýna blaði þessu áhuga með ritsmíð- um sinum í það. Fyrra blaðið 1 vetur var jolaglaðningur Raunvísindadeildar, og hafði það að geyma ýmsar greinar um náttúrufræði, auk mpög athyglisverðrar greinar ritstjóra um lag- hitafræði. - Vildi eg ráðleggja nemendum að lesa þessa fróðlegu grein um efni, sem sjaldan sést á prenti. Benda mætti nem- endum á fleiri góðar greinar 1 blaðinu, svo sem grein S. S. um blóðflokka og sjúkdóma, og grein L. B. um jarðskjálfta, sem þó, að lytalausu, hefðu mátt vera styttri. Heildar-frágangur blaðsins er allgóður, og á ritstjorn þakkir skilið fyrir ágætt blað. Síðara blaðið birtist nemendum síðasta kennsludag fyrir páska. í blaðinu getur að líta greinar um ólíkiistu efni, en þó einkum um eðlisfræði. Sakna óg greina um stjörnufræði. Ritstjórn blaðsins hefur í vetur tekið upp ýmis nýmæli, sem mjög eru til bóta. Nemendum er þörf kynning blaða og bóka vásindalegs efnis, en i vetur hefur verið bætt nokkuð úr þeirri þörf. Petur H. Blöndal, ritstjóri, ritar skýra og ýtarlega grein um rafreikna. Greinin er nemendum kærkomin á þeim tímum, er rafreiknar ryðja sér mjög til rúms, og er nemendum ráðlagt að lesa þessa einkar fróðlegu og viðamiklu grein. - jón Er- lendsson ritar allskemmtilega um eitt furðuverka náttúrunnar, urðarmána. Gerir Jon goða grein fyrir uppruna og einkennum þessara ljósfyrirbrigða. Er greinin lipur- legja skrifuð, en orðalag hefði á köflum . matt vera skýrara. Haraldur Briem, form. Raunvísinda- deildar, ritar sérstæða grein um orkulög- mál Einsteins. Greinarhöfundur hefði mátt skyra hugtakið konstans skriðþunga öllu betur, en að öðru leyti er greinin vel sam- in og framsetning skyr. Væri fengur að fleiri slikum greinum um helztu lögmál eðlisfræðinnar. Guðmundur V. Magnusson ritar mjög gagnlega og snjalla grein um sögu stærð- fræðinnar. Gerir Guðm. grein fyrir helztu þróunarstigum stærðfræðinnar, og koma þar við sögu ýmsir kunnir vísindamenn. Tilgreinir höfundur skerf hvers þeirra til þrounarinnar. - Stærðfræðideildarnemend- ur fagna greininni, sem er harla anægju- leg aflestrar. Karl Karlsson ritar um myndun, notkun og mikilvægi neonljósaskilta. Grein þessi er afar forvitnileg, og er enginn svikinn af lestri hennar. Höfundur hefði 1 greinar- lok mátt geta helztu heimilda sinna, en það hefur honum laðst. Tveir piltar úr fjórða bekk rita 1 blað- ið, og veita þeir yngri nemendum þar gott fordæmi. Eru ritsmíðar piltanna sæmileg- ar þott þær mættu vera öllu betur hnitmið- aðar. Jon Jónsson ritar glögga grein um transistora. Er greininni vel tekið, þvi notkun transistora í útvarpstækni fer ört vaxandi. Höfundur hefði mátt gera efninu öllu betri skil, og er greinin í stytzta lagi. Ingimundur Gíslason ritar skilmerki- lega um framleiðslu áfengis. Höfundur greinir frá helztu aðferðum til framleiðsl- unnar, flokkum og tegundum áfengis. Til- gangur greinar er að eigin sögn höfundar einungis sá að kynna mönnum framleiðsl- una, en eigi hvatning til framkvæmdar hennar. Auk framan^reindra ritstmiða eru fleiri greinar 1 blaðinu, en um þær hirði ég eigi að dæma. Heildardómur blaðsins verður: Ritstjórn hefur farizt starf sitt vel úr hendi. - Frágangur blaðsins er til fyrir- myndar og ritstjóra til sóma. Efni blaðs- ins er svo fjölskrúðugt, að nokkurt yndi mega allir af hljóta, þeir, er það lesa. Faar meiri hattar prentvillur eru i blað- inu og er prentun þess sæmileg. Ritstjórn seu loks færðar þakkir fyrir vandað og umfangsmikið rit.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.