SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Síða 12

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Síða 12
12 6. febrúar 2011 Þriðjudagur Gerður Kristný tók leigubíl heim úr leik- húsinu. Bílstjórinn var að hlusta á Gettu betur og sagði mér hinn kátasti að rétt áður en ég steig upp í bílinn hefðu unglingarnir verið spurðir að því hvers dóttir ég væri. Þessari hefði ég nú getað rúllað upp. Miðvikudagur Árni Torfason Ef aul- inn sem er að bora í blokkinni vekur dótt- ur mína þá mun skinka berast í póst- kassann hjá viðkom- andi næstu 6 mánuði. Fimmtudagur Bragi Valdimar Skúlason Frumsýn- ing á Ballinu á Bessastöðum í kvöld! Nú hefði verið tilvalið að setja á sig fálkaorðuna sína – ef „einhver“ hefði verið búinn að skammast til að sæma mig einni! Hlín Jóhannesdóttir Brim, The Go- od Heart + Gauragangur = 31 Eddu tilnefning (!) Fésbók vikunnar flett Ó lafur Stefánsson er vissulega einn fremsti íþróttamaður sem Íslendingar hafa eignast en að mínu mati eru Vil- hjálmur Einarsson og Gunnar Huseby þeir bestu. Ég er yfirleitt á móti því að kjósa ein- hvern mestan og bestan allra tíma; það er tvíeggjað og ekki mikil vísindi á bak við það en mitt mat byggist á því að Vil- hjálmur og Gunnar eru þeir íþróttamenn sem ég hef dáðst mest að. Vilhjálmur vann silfurverðlaun á Ól- ympíuleikunum 1956, náði að setja heimsmet í þrístökki sem stóð að vísu ekki lengi, og Gunnar varð tvívegis Evr- ópumeistari í kúluvarpi, í bæði skiptin með fáheyrðum glæsibrag. Hann var bestur í Evrópu í um það bil áratug. Þetta voru stórkostleg afrek og í raun ótrúleg hjá þeim báðum á þessum tíma, þegar ekki var búið eins vel að íþróttamönnum okkar og í dag. Ólafur er frábær íþróttamaður og einn besti handboltamaður heims, það fer ekkert á milli mála; frábær liðsmaður og frábær persóna. Ég tel hann í hópi með knattspyrnumönnunum Ásgeiri Sig- urvinssyni og Albert Guðmundssyni; þeir eru allir konungar í sínum greinum, skammt á eftir Vilhjálmi og Gunnari, eins og frjálsíþróttamaðurinn Örn Clau- sen sem líka er óhjákvæmilegt að nefna. Það er ekki til nein vísindaleg skýring á því hvers vegna íslenskir íþróttamenn voru jafn góðir um miðja síðustu öld og raun ber vitni. Sumir halda því fram að viðurværi Íslendinga á styrjaldarárunum hafi verið miklu betra en annarra þjóða en ég er á móti þeirri skýringu. Ég held þetta hafi frekar tengst lýðveldisstofn- unni; hún var mikill hvati og blés ís- lensku þjóðinni í brjóst; menn tvíefldust, vildu sýna sig og sanna og höfðu enga minnimáttarkennd gagnvart öðrum þjóðum sem hefur oft verið raunin síðan. Ég hef oft sagt að íþróttamennirnir í kringum 1950 hafi gert meira til þess að efla þjóðernisvitund Íslendinga en nokkrir stjórnmálamenn. Íþróttamenn- irnir sem ég nefndi, ásamt Friðrik Ólafs- syni skákmeistara, höfðu mikil áhrif. Þegar við vorum nýlega orðin sjálfstæð og minnimáttarkennd að drepa ýmislegt í dróma komu þessir menn fram og unnu mikil afrek. MÓTI Bjarni Felixson fyrrv. íþrótta- fréttamaður Ó lafur er að mínu mati besti íþróttamaður sem komið hefur fram á Íslandi. Verð- launasafnið talar sínu máli; hann hefur orðið landsmeistari í þremur löndum, unnið meistaradeild Evrópu með tveimur liðum og síðan til silf- urverðlauna á Ólympíuleikum og brons- verðlaun í Evrópukeppni landsliða. Ólafur hefur leikið með fremstu liðum heims og er enn í toppformi, 37 ára gam- all sem segir mjög mikið um líkamstást- and hans. Þá hefur hann aldrei misst neitt úr að ráði vegna meiðsla sem mér finnst mjög merkilegt og eiginlega ótrú- legt; ég man ekki eftir því að neinn íþróttamaður hafi gert það. Ég er viss um að íslenska landsliðið hefði aldrei unnið til þeirra verðlauna sem það hefur náð í ef Ólafur hefði ekki verið með. Liðið hefur ekki bara notið hans sem handboltamanns heldur and- legs leiðtoga og fyrirliða, sem stýrir hópnum fyrir utan völlinn. Þjálf- arateymið á að sjálfsögðu stóran þátt í þessum frábæra árangri en Ólafur á ekki síður stóran þátt í því sem hefur gerst á síðustu árum. Í þættinum [Strákunum okkar] voru allir sammála um að Ólafur væri besti handboltamaður sem Ísland hefði eign- ast; það var óumdeilanlegt. Við höfum átt marga frábæra handboltamenn og frábæra íþróttamenn í öðrum greinum, verðlaunahafa á Ólympíuleikum sem gera tilkall til þess að vera nefndir bestu íþróttamenn Íslands. Upp í hugann kemur Vilhjálmur Einarsson, sem fimm sinnum varð íþróttamaður ársins, en Ólafur hefur verið kjörinn fjórum sinn- um og ég er viss um að það er erfiðara að ná kjöri þegar keppt er í flokkaíþrótt en einstaklingsíþrótt. Það er erfiðara að skara fram úr. Ásgeir Sigurvinsson, sá frábæri knatt- spyrnumaður, náði frábærum árangri í Þýskalandi og var mikið goð, á síðustu árum hefur Eiður Smári staðið sig mjög vel, Vala Flosadóttir og Bjarni Frið- riksson unnu til verðlauna á Ólympíu- leikum og svo mætti áfram telja, en mér finnst Ólafur skör ofar en aðrir. Ferill hans er ótrúlega langur og glæsilegur, ekki síst vegna þess hve vel hann er kominn á sig líkamlega og hugsar vel um sig. MEÐ Páll Ólafsson fyrrverandi landsliðsmaður Er Ólafur besti íþrótta- maður Íslendinga? Páll Ólafsson, lengi landsliðsmaður í handknattleik, hélt því fram í þættinum Strákarnir okkar á RÚV í fyrrakvöld að Ólafur Stefánsson væri besti íþróttamaður Íslands frá upphafi. ’ Landsliðið hefði ekki náð svona góðum ár- angri án Ólafs. Hann er að mínu mati skör ofar en aðrir íþróttamenn. ’ Ólafur er vissulega einn sá fremsti en að mínu mati eru Vil- hjálmur Einarsson og Gunnar Huseby þeir bestu.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.