SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 17

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 17
6. febrúar 2011 17 „Aðkoman var vægast sagt hrikaleg,“ segir Þráinn Bj. Farestveit sem var meðal fyrstu vegfarenda sem komu á slysstað í Þrengsl- unum ásamt félaga sínum Jóni Páli Hallgríms- syni. „Bíll Valgerðar var mikið skemmdur og hún illa klemmd inni í honum. Vélarsalurinn var allur kominn inn í bílinn. Mín fyrstu við- brögð voru þau að hún myndi sennilega ekki lifa þetta af,“ segir Þráinn. Hann segir Valgerði hafa umlað sársauka- fullum hljóðum. Hún var með meðvitund en afar illa áttuð. Þráinn sá strax að hún átti erf- itt með andardrátt. „Hún var klemmd milli stýrisendans, sem var brotinn, og sætisins og munnurinn var fullur af gleri. Ég braut mér leið inn í bílinn að aftan. Sennilega gegnum rúðu, ekki var hægt að opna neinar hurðir. Ég byrjaði á því að hreinsa glerið úr vitum hennar áður en mér tókst að brjóta sætisbakið og sveigja það aðeins aftur á bak og þar af leið- andi gefa henni örlítið meira rými til að anda. Stýrisendinn þrýsti á brjóstið á henni. Það er erfitt að meta hversu mikið má hreyfa við fólki við aðstæður sem þessar, einkum þegar maður hefur ekki hugmynd um hversu alvar- legir áverkarnir eru, en það var alveg ljóst í mínum huga að ég varð að gera eitthvað til að létta henni biðina eftir sjúkraliðinu.“ Kuldatrekkur og fok var á staðnum og Þrá- inn segir þá Jón Pál hafa kostað kapps um að hlúa að Valgerði, draga úr kælingunni eins og mögulegt var. „Ég man ekki hvenær fyrsti sjúkrabíllinn kom á vettvang en mér fannst við hafa beðið heila eilífð. Við þessar að- stæður líður tíminn afskaplega hægt. Ég beið inni í bílnum hjá Valgerði þangað til læknir skipti við mig.“ Þeir Jón Páll fylgdust grannt með björgunar- aðgerðunum og yfirgáfu ekki slysstaðinn fyrr en þyrlan var komin í loftið með Valgerði inn- anborðs. Það tók rúman klukkutíma að klippa bílinn og losa hana úr flakinu. Þau Valgerður hafa hist síðan og að dómi Þráins er hún gæfusöm stúlka. „Það er með ólíkindum að hún hafi lifað þetta hrikalega slys af og geti gengið óstudd í dag.“ Þetta er ekki í eina skiptið sem Þráinn hef- ur komið að alvarlegu slysi en fyrir tveimur ár- um tókst honum af harðfylgi að draga mann út úr brennandi bíl í Reykjavík. Allt fór vel í það skipti líka. „Það er auðvitað ótrúlegt að hafa lent í þessu í tvígang en ég hef ekkert velt því frekar fyrir mér. Það eina sem ég hugsaði um í bæði þessi skipti var að hjálpa fólkinu eftir fremsta megni. Við svona aðstæður hefur maður ekki svo mikinn tíma til að velta hlutunum fyrir sér. Það verður bara að taka af skarið.“ Hlynur Höskuldsson, slökkviliðsmaður og bráðatæknir, tók þátt í björgunaraðgerðinni. Hann segir að sér hafi ekkert litist á blikuna þegar hann kom á slysstað. „Þegar Yaris fær Ford 350 framan á sig er ekki ástæða til bjartsýni. Þegar ég kom á vett- vang hugsaði ég með mér: Ef þetta er ekki banaslys þá er þetta alla vega mjög slæmt. Það kom líka á daginn.“ Hann segir engu líkara en bílnum hafi verið vafið utan um Valgerði. „Ef ég man rétt sáum við bara höfuðið og annan handlegginn. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að hún var mikið slösuð og eftir því sem okkur tókst að klippa bílinn utan af henni komu stöðugt fleiri áverkar í ljós. Því var óskað eftir þyrlunni. Það var skítakuldi á staðnum og við vissum að hafa þyrfti hraðar hendur.“ Hann segir Valgerði hafa svarað spurn- ingum bráðatækna og hlýtt leiðbeiningum. „Hún stóð sig alveg ótrúlega vel.“ Hlynur segir aðgerðina á vettvangi hafa ver- ið óvenju flókna. Spurður hvort hún sé með því eftirminnilegra sem hann hafi lent í svarar hann játandi. „Ekki nokkur spurning. Þú heyrir hversu vel ég man þetta núna, fjórum árum síðar. Bæði var klippiaðgerðin sem slík mjög flókin og síðan voru beinbrotin svo mörg. Það er ótrúlegt en um leið ánægjulegt hvað stúlk- an hefur náð góðum bata.“ Aðkoman vægast sagt hrikaleg Valgerður ásamt Þráni Bj. Farestveit og Jóni Páli Hallgrímssyni sem veittu henni ómet- anlega aðstoð á slysstað. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessir menn björguðu lífi mínu.“ Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Valgerður mætt á Þjóðhátíð í Eyjum, rúmum fjórum mánuðum eftir slysið. Eyjamenn missa ekki af Þjóðhátíð! Valgerði var vandlega pakkað inn í gifsumbúðir eftir slysið. Hún lá í tvo mánuði á Landspítalanum. Stór stund. Valgerður stígur í fótinn á Landspítalanum. ’ Bíll Valgerðar var mikið tjónaður og hún illa klemmd inni í honum. Vél- arsalurinn var allur kominn inn í bílinn. Mín fyrstu viðbrögð voru þau að hún myndi senni- lega ekki lifa þetta af. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.