SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 31
6. febrúar 2011 31
S
vavar Knútur fæddist 21. janúar 1976, sonur Sigfríðar
Ásbjörnsdóttur kennara og Kristins Jónssonar, sem
var sjómaður, bóndi og uppfinningamaður. Svavar á
tvo bræður, þá Jón Gunnar og Vilmund Torfa og er sá
í miðið. Fjölskyldan flutti töluvert á æskuárum Svavars en
lengst af bjó hún á Skálá í Skagafirði þar sem foreldrar hans
stunduðu búskap; á Flateyri við Önundarfjörð og á Stokks-
eyri. Að loknum grunnskóla fór Svavar í Menntaskólann við
Hamrahlíð og þaðan í heimspeki og mannfræði við Háskóla
Íslands. Í framhaldinu stundaði hann meistaranám í um-
hverfis- og auðlindafræði, en lauk ekki prófi, auk þess sem
hann lauk miðstigi frá Söngskólanum í Reykjavík. Svavar
hefur haft fingurna á hljóðfærum frá því hann man eftir sér
en „var alltaf mjög feiminn við að láta tónlistina verða að ein-
hverju“. Hann ákvað svo að láta slag standa fyrir um þremur
árum. Svavar Knútur á dótturina Dagbjörtu Lilju og sam-
býliskona hans er Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur.
ben@mbl.is
Þriggja, fjögurra ára glókollur, á ljósmynda-
stofu að undirlagi foreldra sinna.
Ég og Nóni bróðir (Jón Gunnar) skemmtum okkur í
vetrarríkinu á Stokkseyri, líklega um 1979.
Við eldri bræðurnir tveir og krakkarnir sem voru í sveit hjá okkur á Skálá í Skagafirði.
Bóndabærinn er í baksýn en þar voru foreldrar mínir með hefðbundinn búskap.
Ég hvísla leyndarmáli í eyra pabba í Móhúsum á Stokkseyri hjá Þórhildi
ömmu og Páli afa. Nóni hefur meiri áhuga á ljósmyndaranum.
Með vinum mínum Renaud og Rósu í París, en myndin var líklega tekin
þegar ég var á fyrsta tónleikaferðalaginu mínu um Frakkland.
Við Nóni bróðir ásamt mömmu sem heldur um mig og pabba við eldhúsborðið á Skálá, senni-
lega í kring um 1983. Með okkur á myndinni er vinnumaðurinn Kristján Þórisson.
Feiminn
í fyrstu
Tónlistarmaðurinn Svavar Knút-
ur opnar albúmið að þessu sinni.
Í góðum gír í eftirpartýi á Aldrei fór ég suður,
líklega 2008. Skemmtilegt eins og alltaf.
Ég og dóttir mín Dagbjört Lilja glaðbeitt í
fjallgöngu á Skálárhnjúk í fyrrasumar.
Hjá Jóhönnu Þorvaldsdóttur, geitabónda á
Háafelli sem á mikinn heiður skilinn fyrir að
varðveita íslenska geitastofninn.
Á sjó. Ég var tvö, þrjú sumur með pabba á
sjó og á yndislegar minningar þaðan.
Við bræðurnir þrír að syngja fyrir Svövu ömmu
á afmælinu hennar fyrir nokkrum árum.
Á ákaflega skemmtilegum tónleikum í Sjóræningjahúsinu á
Patreksfirði en ég verð þar næst 26. febrúar að spila.
Myndaalbúmið