SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 32
32 6. febrúar 2011 R onald Reagan Bandaríkjaforseti hefði orðið 100 ára þennan sunnudag. Gáfu- mannafélagið í Bandaríkjunum reyndi að tala hann niður frá fyrstu stund hans í Hvíta húsinu. Reagan bar sigurorð af Cart- er forseta í forsetakosningunum 1980. Spuninn var að Carter væri svo gáfaður en hollywoodleik- arinn væri ekki annað en það, ómenntaður og illa gefinn. Carter setti sig inn í hvert mál út í hörgul en Reagan vissi ekkert um neitt nema fyrirsögn- ina á efninu og þyrfti að hafa talspjöld frá að- stoðarmönnum til að geta tekið þátt í umræðum. Carter ynni 18 tíma á sólarhring á meðan Reagan svæfi út og fengi sér lúr þess á milli. Carter héldi um alla spotta á meðan Reagan þyrfti að láta semja hvert orð fyrir sig, hvort sem það væri bréf eða ræður. Þess utan væri Reagan gamall og gott ef ekki elliær. Reagan tók öllum þessum spuna elskulega, hafði ekki nokkrar áhyggjur af honum og ýtti undir hann í ræðum og á blaðamanna- fundum. „Mér þótti skemmtilegast að læra mannkynssögu,“ sagði hann á fundi með nem- endum í skóla einum. „Og þá segið þið sjálfsagt að það hafi verið auðvelt í mínu ungdæmi því svo lítið hafi verið búið af mannkynssögunni.“ Og þegar blaðamenn sögðu við hann að það væri enn einn vitnisburðurinn um að aðrir stýrðu málum í nafni forsetans en ekki hann, að hann skyldi ekki hafa verið vakinn áður en herinn skaut niður tvær líbískar herþotur, brást Reagan þannig við: „Já, þetta eru svo alvarlegar ábendingar að ég hef gefið fyrirmæli um að næst þegar eitthvað merkilegt gerist verði ég vakinn þegar í stað, jafnvel þótt það sé á miðjum ríkisstjórnarfundi.“ Hver var galdurinn við gengi Reagans? Og ekki leið á löngu áður en forsetinn átti hvert bein í mörgum landa sinna. Þegar hann hætti var hann vinsælasti forseti sem yfirgefið hafði Hvíta húsið, en margur forsetinn er á lægsta punkti sinna vinsælda á þeim tímamótum. Og þegar skjöl forsetans voru skoðuð eftir að hann var sestur í helgan stein kom í ljós að hann hafði ekki aðeins sagt fyrir um meginefni ræðna sinna held- ur skrifað þær flestar með penna frá orði til orðs og handskrifað að auki þúsundir svarbréfa til óbreyttra bandarískra borgara. Og þegar Obama flutti ávarp sitt á dögunum til þings og þjóðar, hið fyrsta eftir að hafa tapað illa í þingkosn- ingum, hvað höfðu spunameistarar hans að segja í framhaldinu? Þá var reynt að draga upp þá mynd í spjallþáttum að Obama forseti hefði í mörgu minnt á Ronald Reagan í boðskap sínum og framgöngu. En Obama hefur eins og kunnugt er verið talinn einn vinstrisinnaðasti forseti í sögu Bandaríkjanna. En hver var þá hinn póli- tíski galdur Reagans? Sennilega einkum sá að það var enginn galdur. Reagan hafði lífsskoðun. Þeg- ar mál eða verkefni komu upp lét hann ekki gera kannanir, eða lét þreifara vera í sambandi við markhópa. Hann mátaði viðfangsefnin við lífs- skoðanir sínar og brást við í samræmi við það. Hann hafði gengið til kosninga með þær lífsskoð- anir að leiðarljósi. Þeir sem kusu hann sem og þeir sem gerðu það ekki vissu fyrir hvað hann stóð. Það voru engar brellur, engin brögð, engir galdrar. Vissi alltaf hvert ferðinni var heitið Reagan hafði ekki horn í síðu gáfumannafélagsins sem reyndi að draga hæfileika hans og getu í efa. En hann gerði heldur ekkert með þá félagsmenn og það þótti þeim verst. Hann hélt sínu striki, tryggur sínum lífsskoðunum og tryggur þeim sem höfðu starfað með honum og fyrir hann. Það eru þeir sem ekki standa fyrir neitt, hafa enga innri sannfæringu né lífsskoðun sem þurfa að vita hvaðan vindurinn blæs í það og það sinnið, þurfa spunann og galdrana. Hinir, sem eru trúir því sem þeir hafa tileinkað sér og sagt almenn- ingi að þeir stæðu fyrir, villast ekki svo auðveld- lega í hinum pólitísku myrkviðum. Og það hjálp- aði Reagan örugglega að hann fylgdi lífs- skoðunum sínum ekki eftir með hrokafullum hætti þess sem hefur höndlað hið eina rétta og gefur því lítið fyrir sjónarmið og viðhorf annarra. Hann vildi mjög gjarnan að menn stilltu sínum sjónarmiðum upp gagnvart boðskap annarra og tækju svo sína afstöðu. Mátulega góður leikari En hitt, sem reynt var að nota til að gera lítið úr Reagan, að forsetinn væri bara leikari en ekki lögspekingur eða stjórnmálafræðingur, varð for- setanum einnig til framdráttar, af því að það sem mestu skipti, fastmótaðar lífsskoðanir, var í lagi. „Einhverjum þótti lítið til koma að ég væri „bara“ leikari,“ sagði hann. „Sjálfur tel ég reyndar að það hljóti að vera snúið að standa í núverandi starfi mínu nema hafa dálitla leik- arahæfileika. Ekki endilega mikla, en dálitla, og ég uppfylli einmitt það skilyrði.“ Það þótti til- valið til að gera grín að Reagan að hann hafði á leikaraferli sínum leikið á móti simpansa. „Já,“ sagði Reagan, „ég lærði mikið af honum, en það hefur verið haft eftir apanum að það hafi ekki verið gagnkvæmt.“ Afslappað sjálfsöryggi Reag- ans varð til þess að það rann upp fyrir mönnum að gagnrýni, spuni um heimsku og getuleysi, hafði ekki nein áhrif á forsetann. Hann vissi sjálfur hvað hann gat og fyrir hvað hann stóð, Reykjavíkurbréf 04.02.11 Galdur Reagans var að hann var ekki galdramaður Ronald Reagan í essinu sínu í ræðustól. AP Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóri, tekur á móti Ronald Reagan í Höfða árið 1986.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.