Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 2
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÞAÐ sem af er árinu hefur sala á
áfengi dregist saman í lítrum talið
um rúmlega 7,8% miðað við sama
tímabil árið 2009. Eins og sjá má í
meðfylgjandi töflu hefur salan
minnkað í öllum flokkum áfengis
en mismikið þó eftir tegundum.
Þannig er samdrátturinn mestur í
sterkum drykkjum annars vegar
og blönduðum drykkjum hins veg-
ar, en þar er aðallega um að ræða
sætblandaða áfenga gosdrykki.
Selt fyrir sex milljarða
Að sögn Sigrúnar Óskar Sigurð-
ardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR,
er samdrátturinn í áfengissölu
milli ára svipaður og ráð hafði ver-
ið fyrir gert í sölutölum fyrirtæk-
isins. Á fyrstu fjórum mánuðum
eru sölutölur ÁTVR vegna áfengis
með virðisaukaskatti rúmar 5.964
milljónir króna, en voru á sama
tíma í fyrra 5.727 milljónir króna,
en þess ber að geta að árið 2009
var virðisaukaskattur af áfengi
24,5% en hækkaði í 25,5% á árinu
2010.
64 milljónum undir áætlun
Í fjárlögum ársins 2010 var gert
ráð fyrir að áfengisgjaldið myndi
Morgunblaðið/Heiddi
Sterkt Verðhækkunin hefur mest
dregið úr sölu sterks áfengis.
skila 10,3 milljörðum kr. í ríkis-
kassann, en áfengisgjaldið skilaði í
fyrra alls 9,5 milljörðum. Sam-
kvæmt óbirtum bráðabirgðatölum
fjármálaráðuneytisins hefur inn-
heimta áfengisgjaldsins verið und-
ir áætlunum það sem af er ári sem
nemur 2,2%. Í lok apríl hafði
áfengisgjaldið þannig skilað 2.889
milljónum í ríkiskassann, en áætl-
unin gerði ráð fyrir að gjaldið
myndi skila 2.953 milljónum á
fyrstu fjórum mánuðum ársins og
því vantar 64 milljónir upp á að
innheimta áfengisgjaldsins stand-
ist áætlun.
Minni tekjur en vænst var
Mestur samdráttur í sölu sterkra drykkja og blandaðra Áfengisgjaldið á að
skila 10,3 milljörðum króna til ríkisins á árinu en er nú þegar 2,2% undir áætlunum
Breyting á sölu áfengis milli ára
Sala í þúsundum lítra jan.-apr. 2009,
samt. 5.739 þús. lítra
jan.-apr. 2010,
samt. 5.290 þús. lítra
600
500
400
300
200
100
0
Rauðvín Hvítvín Sterkir
drykkir
Blandaðir
drykkir
508 488
297 287
109
83
57
37-3,9% -3,5% -24,2%
-35,7%
-7,82%
Samtals:
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
4.534
Bjór
4.186
-7,7%
Heimild: ÁTVR
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
Velkomin á opnun
kosningamiðstöðva
Sjálfstæðisflokkurinn opnar
kosningamiðstöðvar í Reykjavík
Fimmtudagurinn 6. maí kl. 17.30
Austurbær og Norðurmýri, Nes- og Melahverfi,
Vestur- og Miðbær: Fiskislóð 14
Laugardagurinn 8. maí kl. 15.00
Hlíða- og Holtahverfi, Háaleitishverfi, Smáíbúða-,
Bústaða- og Fossvogshverfi: Ármúla 18
www.xd.is/reykjavik
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÓÁNÆGÐIR slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn söfnuðust
saman fyrir utan skrifstofur launanefndar sveitarfélaga í
gærmorgun og mótmæltu seinagangi við gerð kjarasamn-
inga. Kveiktu þeir lítið bál í tunnu til að leggja áherslu á kröf-
ur sínar. Þar fundaði samninganefnd stéttarfélags þeirra með
launanefndinni um nýja samninga. Samningar hafa verið
lausir frá því í ágúst á síðasta ári en félagsmenn felldu kjara-
samning sem nefndirnar höfðu gert. Nefndirnar ákváðu á
fundinum í gær að vísa málinu til ríkissáttasemjara.
MÓTMÆLA SEINAGANGI VIÐ GERÐ KJARASAMNINGS
Morgunblaðið/Júlíus
ALLS hafa Ný-
sköpunarsjóði
námsmanna bor-
ist 603 umsóknir
um styrki til
verkefna við
rannsóknir og
þróun á komandi
sumri. Umsóknir
hafa aldrei verið
jafn margar.
Stjórn sjóðsins
hefur ákveðið að styrkja 255 verk-
efni um alls 823 mannmánuði og
mun sjóðurinn þar með gera fjölda
háskólanemenda kleift að starfa að
sjálfstæðum rannsóknum á sínu
sviði í sumar. Heildarframlag í
sjóðinn var rúmlega þrefaldað í ár
og munaði þar mest um 90 millj. kr.
framlag frá menntamálaráðuneyt-
inu og 30 millj. kr. frá Reykjavík-
urborg. sbs@mbl.is
Styrkja 225 verk-
efni en rúmlega
600 sóttu um
Ýmsar rannsóknir
verða styrktar.
ENGAN sakaði í tveimur umferð-
aróhöppum sem urðu á Suðurlands-
vegi í Svínahrauni, ofan við Litlu
kaffistofuna, í gær. Veginum var
lokað til beggja átta vegna þessa. Í
seinna tilvikinu var ekið á sjúkrabíl
sem var á vettvangi vegna fyrra
óhappsins.
Svartaþoka var á Suðurlandsvegi
þegar þetta gerðist og því var
nauðsynlegt að loka veginum vegna
vinnu lögreglu og sjúkraliðs á vett-
vangi. Þá er engin hjáleið á þessum
slóðum nema þá Þingvallavegur
eða Nesjavallaleið. Opnað var fyrir
umferð til austurs um klukkan 17
en leiðin til vesturs varð fær
nokkru síðar.
Ekið á sjúkrabíl á
leið í útkall
REKSTUR Sjúkrahússins á Ak-
ureyri var 78,5 millj. kr. í plús á síð-
asta ári.
Þetta kom fram á ársfundi stofn-
unarinnar í gær. Reksturinn ein-
kenndist af sparnaðarkröfum en
hagræðingaraðgerðir sem gripið
var til þóttu takast betur en vænta
mátti. Laun og launatengd gjöld
voru um 3,3 milljarðar og lækkuðu
um 1% frá fyrra ári. sbs@mbl.is
Sjúkrahúsið á Ak-
ureyri í plús í fyrra
„ÞÆR hugmyndir sem hafa verið á
lofti eru býsna ólíkar og innan
starfshópsins hefur ekki heldur ver-
ið algjör samhljómur,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi.
Vinnuhópur sem hefur það hlutverk
að endurskoða staðsetningu og af-
greiðslutíma vínveitingahúsa í mið-
borg Reykjavíkur mun fyrir kosn-
ingar skila borgarráði upplýsingum
um hvernig miðborgarmálum er
háttað í nágrannalöndunum sem og
upplýsingum og sjónarmiðum hags-
munaaðila. Einnig ábendingum um
hvernig bæta megi miðborgarmenn-
inguna hér með tilliti til umkvartana
þeirra sem þar búa. Íbúar telja að
samþjöppun veitingastaða hafi leitt
af sér subbuskap, glæpi og hávaða
með þungum
bassatónum – svo
þeir séu svefni
sviptir og verð-
gildi húsa sé rýrt.
„Meðal veit-
ingamanna ann-
ars vegar og svo
íbúa hafa verið
mjög ólíkar skoð-
anir um hvernig
best verði tekið á
miðborgarmálum. Ég reikna því
með að okkar tillegg verði fyrst og
síðast upplýsingar sem borgarráð
getur unnið úr, enda hefur starfs-
hópurinn sem slíkur ekki ákvörð-
unarvald,“ segir Júlíus Vífill Ingv-
arsson. sbs@mbl.is
Ekki samhljómur
í miðborgarhópi
Veitingamenn og íbúar eru ósammála
Júlíus Vífill
Ingvarsson