Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
✝ Helgi Indriðasonrafvirkjameistari
fæddist á Akureyri
21. febrúar 1925.
Hann lést á heimili
sínu, Smáravegi 6,
Dalvík, sunnudaginn
25. apríl.
Foreldrar hans
voru Laufey Jóhanns-
dóttir, húsmóðir, f.
19.11. 1897 á Seyð-
isfirði, d. 25.1 1995,
og Indriði Helgason
rafvirkjameistari, f.
7.10. 1882 í Skóg-
argerði í Fellum, N-Múlasýslu, d.
25.3. 1976. Systkini Helga eru: Mar-
grét, f. 28.10. 1923, Jóhann, f. 7.8.
1926, Ólafur, f. 7.9. 1932. Helgi
eignaðist Þorstein Kormák Helga-
son, f. 16.12. 1949 með Þórhöllu
Þorsteinsdóttur, f. 18.5. 1920. Maki
Þorsteins Kormáks var Hulda Stef-
sambúð með Völu Rögnu Ingólfs-
dóttur, f. 27. 11. 1977, bm. Sólveig
Ösp Pálsdóttir, f. 10.2. 1977. Sonur
þeirra er Tristan, f. 20.5.2000.
Seinni bm. Indriða er Fríða Kristín
Gísladóttir, f. 15.7. 1960. Þeirra son-
ur er Hákon Máni, f.13.9. 1999.
Helgi stundaði nám í Hólaskóla
1941-1942 og lagði eftir það stund á
hestamennsku og hrossarækt. Hann
hóf síðan nám í rafvirkjun hjá föður
sínum. Meistarabréf fékk hann 11.3.
1954 og starfaði eftir það sem raf-
virkjameistari á Dalvík. Hann út-
skrifaði fjölmarga nemendur í raf-
virkjun og 1975 stofnaði hann
ásamt nokkrum þeirra rafverktaka-
fyrirtækið Elektro Co hf. og var
framkvæmdastjóri þess. Helgi söng
lengi með karlakórum, fyrst með
Geysi á Akureyri en síðar með
Karlakór Dalvíkur og hefur m.a.
komið fram sem einsöngvari með
báðum þessum kórum. Helgi var í
Frímúrarareglunni á Akureyri.
Útför hans fer fram frá Dalvík-
urkirkju fimmtudaginn 6. maí 2010
og hefst athöfnin kl. 13.30.
ánsdóttir, f. 11.5.
1955. Þau slitu sam-
vistum. Börn: Nökkvi,
f. 24.6. 1974, og Stef-
án Darri, f. 16.12.
1981. Eftirlifandi
maki Helga er Gunn-
hildur Jónsdóttir, f. á
Dalvík 13.9. 1928.
Þeirra börn eru: a)
Laufey, f. 11.2. 1951.
Maki Bernard Ropa, f.
27.1. 1952. Þau eiga
einn son, Igor, f. 24.9.
1983. b) Jóhanna,
24.1. 1953. Fyrrver-
andi maki Guðmundur Sig-
urvaldason, f. 30.6. 1951. Sonur
þeirra er Kjartan, f. 28.7. 1979, bm.
María Sif Ericsdóttir, f. 24.11. 1978.
Sonur þeirra er Tryggvi Bragi, f.
26.9. 2008. c.) Indriði, 17.6. 1954, bm
Herdís B. Karlsdóttir f. 16.1.1954.
Þeirra sonur er, Helgi, f.16.9. 1978 í
Litlum dreng í sumarvist á Dal-
vík finnst Helgi móðurbróðir vera
sterkasti maður í heimi. Hann er
ekki hræddur við neitt. Hann
stendur hlæjandi í stóru túni – sem
kannski var lítill garður – seilist í
randaflugur og tekur utan um þær
og sýnir í lófanum: Sjáðu, þær
stinga ekki – og ef þær stinga kom-
ast þær ekki í gegnum siggið.
Hann heldur á randaflugunni sem
virðist ósköp vesæl í þykkri hend-
inni þar sem siggið er hvítt og
drengurinn ákveður að ef maður
vill hafa í fullu tré við randaflugur
verði maður að safna miklu siggi í
lófann svo að broddurinn nái ekki
gegn.
Og lítill drengur í heimsókn hjá
afa og ömmu á Akureyri veit að nú
er von á honum Helga í dag því að
amma var áðan að hella kaffi í bolla
sem á að standa í nokkra klukku-
tíma. Þannig vill Helgi nefnilega
hafa kaffið sitt – kalt. Það er til-
hlökkunarefni því hann Helgi er
svo skemmtilegur og það fylgir
honum svo mikið líf en tilhlökkunin
er blandin kvíða því hann á það líka
til að stríða manni og stundum
hvessir hann sig dálítið mikið. Svo
stendur hann allt í einu þarna –
með kalt kaffið og vínirbrauðið
hennar ömmu í hinni hendinni og
fyllir íbúðina á Ráðhústorgi 1, mik-
ill og sterkur: hárið hvítt og með
óstýrilátum sveipum, eins og við
þekkjum fleiri úr ættinni, bylm-
ingsröddin og þessi órólega orka
sem fylgir honum. Hann lítur til
drengsins og glottir, höfuðið tinar á
þennan sérstaka hátt og nú er
örugglega stutt í athugasemd.
Í augum okkar bræðra var Helgi
Indriðason ekki hræddur við neitt
og bar ekki virðingu fyrir neinu.
Hann var eins og hetja úr Íslend-
ingasögunum og fór sínar eigin
leiðir á sínum háaldraða jeppa –
sem var líka eins og úr Íslendinga-
sögunum og bar fagurt vitni um
gildi hinnar sérviskulegu íhalds-
semi því hann hékk varla saman á
öðru en þrjóskunni í Helga. Hann
var hávær og ákveðinn, afdrátt-
arlaus í öllum skoðunum – eins og
Laufey amma okkar og systkini
hans – barngóður, hryssingslegur
og blátt áfram, hafði fullkomna for-
akt á hégóma. Þegar hann brosti
varð hann blíðlegur til augnanna og
þegar hann hló var eins og allt
snögghitnaði í kringum hann. Hann
hafði fagra söngrödd og tilfinninga-
ríka, eins og heyra má í myndinni
Landi og sonum þar sem hann
syngur í sumarnóttinni í einni feg-
urstu senu íslenskrar kvikmynda-
sögu.
Og nú er hann allur. Hann settist
í stólinn sinn heim kominn eftir síð-
ustu samfundina með karlakórnum
sínum, þar sem menn undruðust að
sögn hve fagurlega hann söng þetta
kvöld svo máttfarinn sem hann var,
og fékk síðan hægt andlát, eins og
vera ber eftir gott ævistarf. Við
bræður sendum fólkinu hans öllu,
Hillu, Laufeyju, Hönnu, Indriða, og
barnabörnum innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðmundur Andri
og Örnólfur Thorssynir.
Það er oft þannig í lífinu að hlut-
ir sem við vitum að beri að eru
óumflýjanlegir og eðlilegir en ekki
endilega auðveldir þegar að þeim
kemur. Þannig var það þegar
hringt var í mig eftir lokahóf
Karlakórsins og mér sagt að Helgi
Indriðason hefði kvatt þennan
heim. Fyrr um kvöldið höfðum við
leiðst upp á sviðið í Menningarhús-
inu Bergi og sungið með kórfélög-
unum.
Það var eins og tilveran rask-
aðist og jafnvægið væri ekki fyrir
hendi, en lífið býður ekki upp á
annað en að láta okkur skilja að allt
hefur endi og upphaf. Góður vinur
hefur gengið yfir móðuna miklu.
Það er líka undarlegt að fara aft-
urábak í lífsvagninum, láta hann
flytja sig til baka í lífinu og rifja
upp kynni og vinskap við þig, góði
vinur. Hvað er það sem laðar menn
saman, menn sem hafa ólíkan bak-
grunn og í raun fátt sem ætti að
leiða götur þeirra saman í lífinu.
Þessu verður auðvitað ekki svarað í
þessari vinarkveðju.
Þessi góðu kynni og vinskapur
hófst fljótlega eftir að ég flutti til
Dalvíkur með konu minni og dóttur
árið 1961. Ég hef reynt að rifja upp
okkar fyrstu kynni, en þau koma
ekki upp í huga minn, raunar finnst
mér eins og ég hafi þekkt þig öll
mín ár á Dalvík.
Fjölmargt kemur upp í hugann.
Vinnustundir í bókhaldi sem ég tók
að mér fyrir þig. „Rífðu þennan
reikning, þessi á enga peninga“
eða: „Hann borgar aldrei.“ Ekki
kannski allt eftir nútímanum en allt
eftir lífsreglum þínum, þú gerðir
við hluti og lagðir lagnir fyrir alla
þá sem til þín leituðu. Sennilega
hefur þú oft látið fjölskylduna bíða,
til þess eins að aðstoða aðra. Ef til
vill er þetta eitt af mörgu sem
leiddi okkur saman og lagði grund-
völl að vináttu, virðingu og sam-
kennd í lífinu.
Mér eru ógleymanleg fyrstu
skref mín í Frímúrarareglunni þar
sem þú varst minn leiðsögumaður.
Ró og friður, skilningur á líðan
minni, útskýringar á eðli reglunnar
og umfram allt að leiða mér fyrir
sjónir að reglan reynir að leiðbeina
okkur í lífinu.
Auðvitað er ekki hægt að aka
þessum lífsvagni um okkar kynni
án þess að minnast gleðistunda í
Smáraveginum með ykkur hjónum.
Gestrisni, góðar kökur ásamt guða-
veigum til að létta lundina. Allt svo
eðlilegt og sjálfsagt á þeim bæ.
Nú skilur leiðir um stund og vil
ég þakka af alhug og einlægni sam-
fylgdina. Far þú í friði vinur og
þökk sé þér.
Fjölskyldunni sendum við hjónin
samúðarkveðjur.
Hilmar Daníelsson.
Helgi Indriðason, félagi í Karla-
kór Dalvíkur, andaðist aðfaranótt
25. apríl síðastliðins 85 ára að aldri.
Hans mun verða sárt saknað af
kórfélögum sem allir minnast
Helga með hlýhug og virðingu.
Starfsemi félagasamtaka í litlum
byggðarlögum um allt land stendur
og fellur með áhuga og eldmóði
þeirra aðila sem að slíkum sam-
tökum standa. Þátttaka í kórastarfi
er þarna að engu undanskilið og fer
ómældur tími kórfélaga til söng-
æfinga fyrir hverja tónleika sem
þeir taka þátt í. Helgi Indriðason
stundaði þessa ástríðu sína fram á
síðasta dag, bæði sér og kórfélögum
sínum til mikillar ánægju.
Helgi var einn af stofnfélögum
Karlakórs Dalvíkur, en hann var
stofnaður árið 1960, og var jafn-
framt einn af heiðursfélögum kórs-
ins. Samviskusemi hans og tak-
markalaus áhugi á söng kom fram í
því að sjaldan lét hann sig vanta á
æfingar og var jafnframt mikill fé-
lagi félaga sinna á æfingum sem og
annars staðar. Hæfileikar Helga til
söngs voru miklir, enda var hann
gjarnan einsöngvari með kórnum
þegar því var skipta og það var eft-
ir því tekið þegar Helgi beitti sinni
djúpu hljómmiklu rödd þannig að
undir tók.
Árið 2005 fór Karlakór Dalvíkur í
söngferð til Danmerkur, Svíþjóðar
og Noregs og í hátíðarkvöldverði
um borð í ferjunni á leið frá Kaup-
mannahöfn til Óslóar þann 19. júní
var Helgi gerður að heiðursfélaga
kórsins, þá búinn að vera félagi í
kórnum í 45 ár. Síðasti konsert sem
Helgi tók þátt í var þegar kórinn
hélt í söngferð til Austfjarða í mars
á síðasta ári. Það sem var á dag-
skrá kórsins þá voru sjómannalög
og er sú dagskrá tileinkuð sjó og
sjómennsku frá landnámi til vorra
daga, í þessari dagskrá naut bassa-
röddin hans Helga sín vel, t.d. þeg-
ar lagið „Nú sigla svörtu skipin“
var flutt.
Laugardaginn 24. apríl sl. hélt
Karlakór Dalvíkur árshátíð sína og
var Helga og Gunnhildi, eiginkonu
hans, boðið að koma og taka þátt í
dagskránni. Þetta kvöld steig Helgi
á svið og tók þátt í söng með kór-
félögum sínum og var það ánægju-
legt að sjá 85 ára unglinginn syngja
þar af hjartans lyst.
Hilla, við viljum með þessum orð-
um þakka þér fyrir „lánið“ á honum
Helga í gegnum árin og vottum þér
og fjölskyldu þinni okkar dýpstu
samúð.
Fyrir hönd Karlakórs Dalvíkur,
Guðmundur Kristjánsson.
Helgi Indriðason
Fleiri minningargreinar um Helgi
Indriðason bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskuleg móðir mín, amma, langamma, systir og
mágkona,
SIGRÍÐUR KRISTÍN JAKOBSDÓTTIR,
Hlíðarhúsum 3,
áður til heimilis á Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
aðfaranótt miðvikudagsins 28. apríl.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Þeir sem vildu minnast hennar vinsamlega láti Krabbameinsfélag
Íslands njóta þess.
Ólafur Björnsson,
Þorbergur Björn Ólafsson,
Ólafur Friðrik Ólafsson,
Jóhann Helgi Ólafsson,
Vilhjálmur Snær Ólafsson,
Sigríður Erla Ólafsdóttir,
Diljá Ösp Þorbergsdóttir,
Þóra Jakobsdóttir, Bjarni Ellert Bjarnason,
Sigrún Jakobsdóttir,
Þórdís Jakobsdóttir, Stefán Gylfi Valdimarsson,
Gunnlaug Jakobsdóttir, Gunnlaugur Sigurðsson.
✝
Ástkær faðir minn,
KRISTINN NIELS ÞÓRARINSSON
frá Reyðarfirði,
lést í Kanada föstudaginn 16. apríl.
Útför hans fór fram í Saskatoon í Kanada
föstudaginn 23. apríl.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Magnús Kristinsson.
✝
Móðir okkar og tengdamóðir,
JÓNÍNA SÍSÍ BENDER,
Norðurbrún 1,
lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn
29. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Erna M. Ottósdóttir Laugdal, Gunnar Þorsteinsson,
María Haraldsdóttir,
Róbert H. Haraldsson, Kolbrún Þ. Pálsdóttir,
Jakob Þór Haraldsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ERLA EINARSDÓTTIR,
Sandbakka 6,
Höfn,
lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn þriðjudaginn
4. maí.
Útför hennar fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn
8. maí kl. 10.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Brynjólfur Erlingsson, Jónína Guðmundsdóttir,
Jóna Þormóðsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR SVEINSSON,
Álftamýri 43,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 4. maí.
Sveinn Briem, Karin Briem,
Kristín Sigurðardóttir,
Tinna Briem,
Dísa Briem.