Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 22

Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 ✝ Theodóra Guðna-dóttir fæddist í Stekkholti, Biskups- tungnahreppi, 18. september 1921. Hún lést á dval- arheimilinu Barma- hlíð, Reykhólum, mið- vikudaginn 28. apríl. Foreldrar hennar voru Guðni Pálsson, vinnumaður í Minni- borg í Mosfellssókn og verkamaður í Hafnafirði, f.18. maí 1894 í Gýgjarhólskoti í Biskupstungnahreppi, d. 6. sept- ember 1959 og Ingveldur Jóhanns- dóttir, vinnukona í Efstadal, Mos- fellssveit og lausakona í Ásgarði, Skildinganesi, Reykjavík, f. 4. októ- ber 1891 á Arnarstöðum í Helga- fellssveit, d. 3. október 1986. Systk- ini Theodóru, alsystir Guðfinna Guðnadóttir, f. 29. maí 1920, Efsta- dal í Laugardalshreppi, samfeðra Anna Ragnheiður Guðnadóttir, f. 25 janúar 1942 í Vestmannaeyjum, sammæðra Kristín Magnúsdóttir, f. 1. desember 1932 og Fjóla K. Magn- úsdóttir, f. 19. september 1934. Gestsdóttur, f. 19. apríl 1957, þau eiga tvö börn: Óskar Samúel og Gest Ólaf. 5) Björn, f. 2. september 1965, maki Ágústa K. Bragadóttir, f. 11. júní 1962, þau eiga þrjú börn: Hildi, Margréti og Samúel Inga. Barnabarnabörn Theodóru eru átta talsins. Theodóra lauk grunn- skólanámi í Skildinganesskóla í Skerjafirði 1930 og bjó með móður sinni á Bústöðum við Bústaðaveg í Reykjavík og húsi sem hét Ásgarð- ur við Reykjavíkurveg í Skerjafirði. Fór síðan sem vinnukona á nokkur heimili í Reykjavík, þaðan lá leið hennar vestur að Höllustöðum og var hún vinnukona þar tvö sumur, en síðan tók hún við heimilishaldi þar. Hún fór nýorðin nítján ára á Húsmæðraskólann að Staðafelli í Dalasýslu og var þar einn vetur, síðan lá leið hennar að Höllustöðum þar sem hún hóf búskap með Sam- úel veturinn 1943-1944. Theodóra og Samúel bjuggu á Höllustöðum alla tíð eða þar til Samúel lést 1985, eftir það hélt hún heimili á Höllu- stöðum til 2005. Theodóra og Sam- úel fengu fjölda verðlauna fyrir snyrtimennsku í búskapartíð sinni. Síðustu árin bjó hún á dvalarheim- ilinu Barmahlíð á Reykhólum. Útför hennar fer fram frá Há- teigskirkju í dag, fimmtudaginn 6. maí 2010 kl. 13. Theodóra giftist 10. ágúst 1944 Samúel Björnssyni, f. 27. nóv- ember 1921 í Borg, Reykhólahreppi, A- Barð., d. 17. júní 1985. Foreldrar hans voru Magðalena Sveins- dóttir, f. 23. desember 1883 Holtastaðareit í Húnavatnssýslu, d. 26. maí 1962 og Björn Arnfinnsson, f. 25. janúar 1861, Eyri, Gufudalshreppi, A- Barð., d. 20. desember 1952. Börn Theodóru og Samúels eru: 1) Kristrún, f. 7. apríl 1944, maki Karl I. Karlsson, f. 21.október 1942, þau eiga eina dóttur, Ingu Dóru, og tvö barnabörn. 2) Jónas, f. 17. október 1945, maki Bergljót Bjarnadóttir, f. 27. desember 1950, þau eiga þrjú börn: Eyþór, Bjarna og Birgittu og þrjú barnabörn. 3) Þorgeir, f. 11. mars 1951, var kvæntur Vöku Helgu Ólafsdóttur, f. 13. ágúst 1958, þau eiga tvö börn: Magnús og Önnu Björk og þrjú barnabörn. 4) Ingvar, f. 8 ágúst 1953, var kvæntur Sólrúnu Ósk Bognaði og brotnaði í bylnum stóra seinast. Hún mamma er lát- in. Það er svo undarlegt að láta hugann reika um liðna tíð. Mamma stóð fyrir stóru heimili. Foreldrar mínir byrjuðu búskap á Höllustöðum í lok stríðsins 1944. Þá voru aðrir tímar, nota þurfti skömmtunarseðla til að kaupa sykur, hveiti, smjörlíki og ýmsar nauðþurftir. Ætíð var allur matur unninn heima. Skemmtilegust voru alltaf vorin í sveitinni, þar sem alls staðar iðaði lífið og fal- legar minningar urðu til. Síðustu æviárin dvaldi mamma á dvalarheimilinu Barmahlíð, þar leið henni vel. Vil ég þakka því góða fólki fyrir frábæra umönnun henni til handa. Elsku mamma, þó að leiðir skilji nú um sinn munum við hittast heilar hinum megin. Guð veri með þér. Þín Kristrún. Það er alltaf erfitt að missa fastan punkt úr lífi sínu, en það er nú bara svo að enginn er eilífur. Þetta er nú samt sú tilfinning sem hefur hellst yfir mann síðustu daga eftir að þú kvaddir þennan heim, elsku mamma. Það er eig- inlega dálítið undarleg tilfinning að þú sért hætt að hringja í mig þar sem við töluðum saman nánast daglega. Það er þó huggun harmi gegn að þú ert komin til pabba. Þegar ég sit hér og hugsa til baka hvernig líf þitt var, þá kemur fyrst upp í hugann dugnaðurinn og seiglan. Þú kemur vestur að Höllustöð- um ung stúlka og ræður þig sem vinnukonu þar á átjánda ári, kem- ur í sveitina með Lillu vinkonu þinni úr Reykjavík, ert síðan feng- in til að taka við heimilinu tuttugu og eins árs. Þetta er erfitt að ímynda sér í dag, en svona var þetta þá. Reyndar var sjálfsagt komin einhver rómantík í spilin með pabba sem hefur létt þér lífið, en það hefur samt þurft að huga að öllu á mannmörgu heimili. Í mínum uppvexti minnist ég alls þess góða sem þú kenndir mér, þó svo stundum hafi ég ekki verið þægur unglingur, en aldrei þraut þolinmæðina hjá þér. Það gat nú oft verið heldur fjörugt á heimilinu þegar þrjú elstu barna- börnin komu til skjalanna og við fundum upp á misgáfulegum leikj- um, en alltaf hélstu ró þinni. Eftir að pabbi dó og þú hættir búskap þá fannst þú þér áhuga- mál, en það var föndur af ýmsu tagi sem þú hafðir svo gaman af og eftir að þú fluttist á dvalar- heimilið Barmahlíð gastu sinnt þessu áhugamáli þínu enn betur með gömlu nágrannakonunum. Það er ótrúlegt hverju þú hefur afkastað á þessum fáu árum. Það var skemmtileg ferð sem við fórum saman í fyrrasumar út í Flatey með Ölmu vinkonu þinni, en sú ferð var kölluð draumaferð- in af þér, sem var réttnefni því sá dagur var fullkominn þar sem við sigldum í blíðunni út í eyjar og þú fórst upp alla stiga og um alla eyju og hittir gamla vini, lést ekk- ert stoppa þig. Þá leið þér vel. Alltaf voru þó barnabörnin efst í huga þér síðustu árin og það veit ég að þau sakna þess að geta ekki komið við og fengið perubrjóst- sykur og súkkulaði eins þau voru vön að fá hjá þér og notið sam- vista við þig um hátíðisdaga. Minning þín lifir. Þinn sonur, Björn. Elsku amma mín, ég trúi því varla að ég sitji hérna við eldhús- borðið mitt og skrifi minningar- grein um þig sem varst svo hress þegar ég hitti þig síðast í ferming- arveislunni hjá honum Finnboga og eins þegar ég talaði við þig í síma fyrir viku. Það varð ekki af þér skafið hversu dugleg og sam- viskusöm þú varst í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur. Þótt tár mín séu nánast búin og tómið mik- ið þá hugsa ég stöðugt um þig, elsku hjartans amma mín. Ég er ómetanlega þakklát fyrir allar þær stundir sem þú gafst mér. Við Anna frænka minnumst þess oft þegar við vorum litlar stelpur og vorum hjá þér á Höllustöðum. Þú vildir allt fyrir okkur gera og sát- um við oft heilu klukkustundirnar saman við eldhúsborðið þitt og teiknuðum torfbæi og landslags- myndir. Einu man ég þó eftir, þegar við Anna tókum upp á því að nota markabókina hans Bjössa í einn af búðarleikjunum sem við fórum í. Þá varstu nú ekki alltof ánægð með okkur enda ekki ástæða til vegna þess að við vor- um búnar að krota hana alla út. En þrátt fyrir þetta uppátæki hjá okkur gátum við alltaf rifjað þetta atvik upp síðar meir og hlegið saman að þessu. Eins er mér mjög minnisstætt þegar þú komst til Reykjavíkur til augnlæknis í eitt skiptið að vori til. Við frænkur nutum þess að vera með þér líkt og alltaf. Þar sem útsölurnar voru í hámarki þegar þú komast ákváðum við að drífa okkur í Kringluna. Ég held að ég hafi sjaldan heyrt þig hlæja jafnmikið og þú gerðir þegar við tókum upp á því að hlaupa hressi- lega með þig í hjólastólnum um ganga Kringlunnar, þá var sko fjör hjá okkur, elsku amma mín. Það var alltaf mjög stutt í húm- orinn hjá okkur þegar við vorum saman og gat ég alltaf leitað til þín þegar eitthvað bjátaði á hjá mér. Ég er svo ánægð að Berglind mín skuli hafa fengið það tækifæri að kynnast þér, langömmu sinni. Eftir að ég hafði setið hjá þér og haldið fast í hlýju höndina þína daginn áður en þú kvaddir okkur hef ég hugsað út í samtöl okkar þar sem við ræddum oft um lífið og dauðann. Við vorum sammála um að öll myndum við hittast aft- ur. Ég trúi því elsku amma mín að þú munir fylgjast með okkur hérna niðri þangað til við komum öll til þín aftur. Þrátt fyrir að leið- ir okkar skilji núna þá bjóst ég ekki við því að þú myndir fara svona fljótt, en elsku amma, ég held að þú hafir verið sátt og varla er hægt að hugsa sér miklu betri leið til að yfirgefa þennan heim. Ég mun ætíð geyma minningu þína, elsku amma mín, í hjarta mínu og segja Berglindi hversu einstök amma þú varst, kallaðir mig oft „dúfuna þína“ sem mér þótti svo vænt um. Með þessum orðum kveð ég þig í bili. Nú ertu komin í himnaborg, með afa minn þér við hlið. Þó mikil sé mín hjartasorg, þá fannstu þinn eilífa frið. Þú vakir yfir svo mikið er víst, og verður alltaf amma mín best. (Höf. ók.) Þín Birgitta. Amma Dóra er yndislegasta kona sem við höfum kynnst og við erum mjög þakklát fyrir að hafa kynnst henni svona vel. Það var alltaf svo gaman og þægilegt að spjalla við hana og henni var aldr- ei sama um neitt. Skemmtilegasta minningin okk- ar um hana var þegar við fórum út í Flatey í fyrrasumar. Hún hafði ekki farið þangað í mörg ár og fannst þetta algjör ævintýraferð. Það var rosalega gaman að eyða tíma með henni og við munum sakna hennar óskaplega mikið. Margrét, Hildur og Samúel Ingi. Elsku amma mín, nú ertu komin í eilífðina til afa en 25 ár eru nú liðin síðan hann lést. Það er svo margt sem mig langar að skrifa enda átti ég ótal góðar stundir og minningar með þér og afa á Höllu- stöðum. Ég var um sex mánaða gamall þegar ég fór fyrst í pössun til þín hálfan daginn. Svo liðu tím- arnir. Þegar skólinn var byrjaður var ég oft hjá ykkur um helgar og nánast alla daga vikunnar á sumr- in. Ég man vel eftir mér 4-5 ára í sveitinni hjá ykkur. En hjá ykkur lærði ég að leggja á borð og um- Theodóra Guðnadóttir ✝ Móðir okkar og amma, INGA ÞORGEIRSDÓTTIR kennari, Hofteigi 48, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju mánudaginn 10. maí kl. 15.00. Þorgerður Ingólfsdóttir, Knut Ødegård, Mali Ødegård, Roar Sørli, Knut, Kristine, Hege Ødegård, Rut Ingólfsdóttir, Björn Bjarnason, Sigríður Sól Björnsdóttir, Heiðar Guðjónsson, Orri, Bjarki, Rut, Bjarni Benedikt Björnsson, Daði Runólfsson, Vilborg Ingólfsdóttir, Leifur Bárðarson, Margrét María Leifsdóttir, Guðmundur Pálsson, Máni, Diljá Helga, María, Inga María Leifsdóttir, Kristbjörn Helgason, Júlía Helga, Jakob Leifur, Unnur María Ingólfsdóttir, Thomas Jan Stankiewicz, Catherine María Stankiewicz, Helene Inga Stankiewicz, Thomas Davíð Stankiewicz, Inga Rós Ingólfsdóttir, Hörður Áskelsson, Guðrún Hrund Harðardóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Áróra, Auðunn, Inga Harðardóttir, Guðmundur Vignir Karlsson, Björt Inga, Ísleifur Elí, Áskell Harðarson. ✝ Elsku drengurinn okkar, JÓN KARL ÓÐINSSON, sem lést að Einarsnesi fimmtudaginn 29. apríl, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 8. maí kl. 14.00. Björg K. B. Jónsdóttir, Óðinn Sigþórsson, Soffía Karlsdóttir, Jón H. Jónsson, Þórunn M. Óðinsdóttir, Þórarinn Ingi Ólafsson, Kristín B. Óðinsdóttir, Davíð Blöndal, Sigríður Þ. Óðinsdóttir, Frímann Andrésson, Soffía B. Óðinsdóttir, Lúðvík Bjarnason, Guðmundur B. Óðinsson, Þórarinn H. Óðinsson, Karítas Óðinsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐRÚNAR THEODÓRU SIGURÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Steinunn, Eiríkur og Sigurður Sverrir Stephensen. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞÓREY JÓNSDÓTTIR frá Bessastöðum í Fljótsdal, Snorrabraut 56b, lést föstudaginn 30. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 12. maí kl. 13.00. Auður Bergsteinsdóttir, Ólafur Árni Traustason, Soffía Sigríður Karlsdóttir, Sigurður Jónasson, Hilmar Karlsson, Brynja Kjærnested, Guðrún Árný Karlsdóttir, Sveinbjörn Enoksson, Bergsteinn Karlsson, Ólafur Finnbogi Ólafsson, Jón Bergsteinsson, Bergsteinn Jónsson, Bára Hólmgeirsdóttir, Anna Bergsteinsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Oddrún Ólafsdóttir, Björg Ólafsdóttir, Svavar Ingi Ríkharðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.