Morgunblaðið - 06.05.2010, Side 28
28 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
Hljómsveitin Múgsefjun kemur
fram á hátíðinni Nordischer Klang í
Þýskalandi í næstu viku og heldur
tónleika á morgun á Næsta bar.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og að-
gangseyrir er 500 kr. en pening-
arnir renna í ferðasjóð sveit-
arinnar. Nordischer Klang er
haldin ár hvert í Greifswald í N-
Þýskalandi.
Múgsefjun safnar fyrir
Nordischer Klang
Fólk
WEIRD Girls-gjörningahópurinn, undir stjórn
Kitty Von Sometime, hefur sent frá sér mynd-
band við lag Gus Gus, „Hateful“, en Kitty er sam-
býliskona Daníels Ágústs Haraldssonar, söngv-
ara Gus Gus, sem sá um að klippa myndbandið.
Myndbandið er sérstakt fyrir það að hafa verið
tekið eingöngu með útfjólublárri lýsingu og eru
stúlkurnar í Weird Girls málaðar með litskrúð-
ugri málningu þannig að hún sést eingöngu.
„Þetta var erfiðisvinna,“ segir Kitty um tök-
urnar á myndbandinu en það er 10. þáttur Weird
Girls-verkefnisins. Tökur hafi staðið yfir í einar
14 klukkustundir og þurftu stúlkurnar að klæð-
ast svörtum búningum og bera svarta málningu
auk þeirrar fyrrnefndu. Kitty segir nokkra kvik-
myndagerðarnema hafa komið að máli við sig
um gerð myndbandsins og stúlkunum hafi verið
smalað saman með stuttum fyrirvara, en reglan
er sú að þær viti ekkert í hverju gjörningurinn
felst fyrr en á hólminn er komið. Þá er hópurinn
einnig breytilegur, þ.e. ekki alltaf sömu stúlk-
urnar sem taka þátt.
„Maður sá ekki neitt,“ segir Kitty um tökurnar
og því hafi þurft að ganga varlega um tökustað-
inn. „Þetta var afar langur vinnudagur,“ segir
hún og hlær. Kitty segir margar stúlkur á bið-
lista eftir því að taka þátt í verkefnum Weird
Girls en af fyrri verkefnum og nýlegum má
nefna myndband við lag Agent Fresco, „Eyes of
a Cloud Catcher“. Myndbandið við lag Gus Gus
má sjá á youtube.com/watch?v=Xfv24lnf4lg.
helgisnaer@mbl.is
14 klukkustunda tökur í myrkri
Neonlitir Úr myndbandi Weird Girls.
Salem Lights, verðlaunaverk
myndlistarkonunnar Söru Björns-
dóttur í flokknum Alternative Rou-
tes á alþjóðlegu vídeó- og tilrauna-
kvikmyndahátíðinni 700IS
Hreindýraland sem haldin var í
mars sl., verður sýnt í Ungverja-
landi í dag þegar listahátíðin Inter-
modem hefst í nýlistasafninu Mo-
dem í Debrecen í Ungverjalandi.
Alternative Routes er hluti af sam-
starfsverkefni 700IS og þriggja
annarra hátíða í Evrópu.
Verk Söru verður einnig sýnt í
borginni Porto í Portúgal í nóv-
ember, á hátíð sem ber heitið
Frame Research.
Salem Lights sýnt á
hátíð í Ungverjalandi
Hljómsveitin Miri mun á mæðra-
daginn, 9. maí, selja lag sitt „Góða
konan“ á vefnum tonlist.is fyrir 500
kr. og mun ágóðinn renna óskiptur
til Mæðrastyrksnefndar. Breiðskífa
sveitarinnar, Okkar, kemur brátt
út og verður hægt að kynna sér
hana þann sama dag. Miri vill með
þessu styðja „allar góðu konurnar
hér á landi“, eins og segir í pósti.
Miri selur lag til styrkt-
ar Mæðrastyrksnefnd
19 ÁRA nemi við Kvikmyndaskóla
Íslands, Vilius Petrikas, er kominn í
fjögurra manna úrslit í stutt-
myndakeppni á vefsíðunni yobi.tv
og hafa yfir 200 þúsund netverjar
horft á myndina hans sem heitir
The Curse of the House. Stutt-
myndin er draugamynd og byggð á
sannsögulegum atburðum, að sögn
Vilius, atburðum í borginni Kaunas
í Litháen. Þar bjó fjölskylda ein
sem lenti í miklum hremmingum.
Móðirin varð geðveik og hvarf einn
daginn, dóttirin varð undir lest og
dó og faðir hennar hengdi sig í kjöl-
farið, bugaður af sorg. Upp frá því
hefur bölvun hvílt á húsinu sem
fjölskyldan bjó í og fólk sem þar
hefur dvalið orðið vitni að und-
arlegum atburðum. Vilius segist
sjálfur hafa orðið vitni að því.
Tveggja ára gömul keppni
„Þetta er ný stuttmyndakeppni,
hóf göngu sína fyrir tveimur ár-
um,“ segir Vilius en keppnin heitir
YOBIFilm Contest og er bandarísk.
Vilius segir verðlaunaféð 12.000
dollara og það muni skiptast niður
á fimm efstu keppendur sem þýðir
að Vilius hefur þegar unnið til
slíkra peningaverðlauna, þó hann
viti ekki hversu stór hans hlutur
verður, en segir það „slatta af pen-
ingum“. Sigurvegarinn fær þó
hærri upphæð en hinir. Aðal-
verðlaunin eru ferð fyrir tvo á kvik-
myndahátíðina Toronto Inter-
national Film Festival í september
auk peningaverðlauna. Netverjar
kjósa þá mynd sem þeim þykir best
og því um að gera að kíkja á mynd
Viliusar og kjósa hana á slóðinni
http://yobi.tv/yobifilm/finalists/
view/48. helgisnaer@mbl.is Bölvun Úr stuttmynd Viliusar, The Curse of the House.
Einn af fjórum sem eftir
eru í stuttmyndakeppni
Stuttmynd um draugahús byggð á sönnum atburðum
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG hef verið að semja tónlist sl.
tíu ár og var kominn með svo mik-
ið af góðu efni að ég varð hrein-
lega að drífa mig í að gefa út
plötu og koma þessu frá mér,“
segir Aðalsteinn Jóhannsson, sem
nýverið gaf út sína fyrstu sóló-
plötu sem nefnist Stone. Að-
alsteinn samdi öll lögin og textana
á plötunni, útsetti þau auk þess
sem hann syngur, spilar á bassa
og kassagítar. Segist hann þakk-
látur þeim stóra vinahópi tónlist-
armanna og söngvara sem komu
að gerð plötunnar.
Semur jöfnum höndum á
ensku og íslensku
Aðalsteinn er borinn og barn-
fæddur Akureyringur, þar sem
hann býr í dag og starfar. Segist
hann snemma hafa heillast af tón-
listinni og numið bassaleik þó
hann hafi alltaf gripið í gítarinn
þegar hann hugðist semja sín eig-
in lög. Aðalsteinn hefur verið virk-
ur í tónlistarbransanum síðustu
misseri og m.a. spilað með hljóm-
sveitum á borð við neðanjarð-
arhljómsveitina Útópíu, Neista og
ballhljómsveitina Sent.
Þar sem öll lögin á geislaplöt-
unni eru sungin á ensku og liggur
beinast við að spyrja hvers vegna
Aðalsteinn hafi ekki valið að
syngja á móðurmálinu. „Ég sem
reyndar jöfnum höndum á ensku
og íslensku, en mér fannst ein-
hvern veginn ekki passa að hafa
blöndu af hvoru tveggja á plöt-
unni. Auk þess sem auðveldara er
að kynna hana erlendis ef hún er
bara á ensku. Ég á hins vegar
mjög mikið af íslensku efni þannig
að næsta plata verður sennilega
bara með íslenskum textum,“ seg-
ir Aðalsteinn.
Einhver þarna uppi
að hræra í mér
En hvernig myndi hann lýsa
eigin tónlist? „Ég hef verið spurð-
ur að þessu áður og veit ekki al-
veg hvernig ég á flokka tónlistina.
Þetta er svona róleg sófatónlist
undir sterkum kántríáhrifum,“
segir Aðalsteinn. Spurður hvort
hann eigi sér einhverjar fyr-
irmyndir í kántrítónlistinni svarar
Aðalsteinn því neitandi og bendir
á að fyrirmyndir hans séu fremur
hljómsveitir á borð við Radiohead,
Coldplay og Travis. „En þegar ég
byrja að semja þá kemur kánt-
ríelementið bara upp og mig lang-
ar ekki til að stoppa það. Ég veit
reyndar ekki hvaðan þetta kemur.
Ætli það sé ekki einhver þarna
uppi sem er að hræra í mér,“ seg-
ir Aðalsteinn kíminn.
„Sófatónlist undir
sterkum kántríáhrifum“
Ljósmynd/HSH
Aðalsteinn „Þegar ég byrja að semja þá kemur kántríelementið bara upp og mig langar ekki til að stoppa það.“
myspace.com/ssstonemyspace.com/ stone