Morgunblaðið - 18.05.2010, Blaðsíða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2010
✝ Haukur Sigurðs-son fæddist í
Keflavík 24. október
1957. Hann lést 8. maí
2010. Foreldrar hans
eru Sigurður Vigfús
Ingimundarson, f. 5.
september 1922, og
eiginkona hans Rósa
Ólafsdóttir, f. 19.
ágúst 1925, d. 19.
mars 2006. Þau
bjuggu á Vesturgötu
14a (Túnbergi),
Keflavík. Systkini
Hauks eru Ingimund-
ur, f. 28. júlí 1950, eiginkona hans
er Bryndís Sigursteinsdóttir og
synir þeirra a) Sigurður Reginn, f.
25. nóvember 1972, kvæntur Jó-
hönnu Kristjánsdóttur, f. 23. júní
1977, dætur þeirra
eru Silvía Rós, f.
1996, og Bríet Eva, f.
25. desember 2000. b)
Sölvi Hrafn, f. 20. jan-
úar 1974. Ólafur
Baldvin, f. 1. janúar
1952, kvæntur Elínu
J. Jakopsdóttur, f. 28.
janúar 1954, börn
þeirra eru Jakop
Snævar, f. 2. janúar
1980, Jóna Marín, f. 6.
mars 1985, og Sig-
urður Baldvin, f. 4.
nóvember 1997.
Haukur kvæntist 14. janúar 1980
Ólínu Margréti Sigurjónsdóttur, f.
28. maí 1961. Foreldrar hennar eru
Sigurjón Ólafsson, f. 29 ágúst 1909,
d. 12. október 1997, vitavörður á
Reykjanesi, eiginkona hans var
Sigfríður Pálína Konráðsdóttir, f.
15. maí 1921, d. 29. ágúst 1975.
Börn Hauks og Ólínu eru 1) Bald-
vin, f. 16. ágúst 1977, d. 23. febrúar
1978. 2) Heiða Rós, f. 31. mars 1980,
í sambúð með Eðvaldi Björnsyni, f.
12. nóvember 1974, dóttir þeirra er
Sædís Ósk Eðvaldsdóttir, f. 17. maí
2000. 3) Haukur, f. 4. mars 1982,
sambýliskona hans er Birgitta
Brynjólfsdóttir, f. 3. nóvember
1983, börn þeirra eru Fannar
Snævar, f. 7. september 2004, og
Ástrós Lovísa, f. 7. október 2008. 4)
Snjólaug Ásta, f. 22. mars 1987, í
sambúð með Torfa Stefánssyni, f.
10. janúar 1985, sonur þeirra er
Stefán Baldvin, f. 29. mars 2008.
Haukur var húsasmíðameistari
og vann við það og hafði mikinn
áhuga á svifdrekaflugi.
Útför Hauks fer fram frá Kefla-
víkurkirkju í dag, 18. maí 2010, og
hefst athöfnin kl. 14.
Elsku besti pabbi minn. Ég veit
ekki hvar ég á að byrja, reiðin hrjáir
mig svo mikið, það er svo óréttlátt að
það skyldi vera maður sem rændi
þér frá mér. Við áttum svo stóra
drauma sem við ætluðum að fram-
kvæma í sumar, ég átti loks að fá að
fljúga með þér, við ræddum það
meira að segja daginn sem þú fórst.
Aðalhugsunin er hvernig ég á að
geta lifað án þín, ég elskaði þig svo
mikið elsku pabbi. Litla afastelpan
þín grætur og vill fá afa sinn aftur.
Hún hugsar um allar góðu minning-
arnar sem þið áttuð saman en hana
vantar að fá að tala við þig og sjá. Ég
reyni að hugsa um það sem þú
kenndir mér, hvað það er fallegt í
himnaríki, þú trúðir því svo heitt. Ég
veit að þú færð góðar móttökur hjá
litla stráknum þínum og ömmu.
Það erfiðasta er að þurfa að
kveðja elsku besti pabbi minn, en þú
sagðir alltaf að ég þyrfti að vera
sterk, ég skal reyna að vera sterk og
styðja fjölskylduna og passa upp á
afa.
„Ó Guð, endurnýja og gleð anda minn.
Skýr hjarta mitt. Lýs getu mína. Í þín-
ar hendur fel ég allar athafnir mínar.
Þú ert mitt leiðarljós og athvarf. Ég
mun ekki framar vera sorgmæddur og
hryggur, ég mun vera hamingjusamur
og fagnandi. Ó Guð, ég mun ekki framar
vera áhyggjufullur né láta erfiðleika
íþyngja mér. Ég mun ekki framar leiða
hugann að skuggahliðum lífsins. Ó Guð,
þú ert mér meiri vinur en ég er sjálfum
mér. Ég helga mig þér, ó drottinn.“
Þín dóttir,
Heiða Rós.
Ég gleymi seint þeim sorgardegi 8.
maí þegar við fengum þær fréttir að
pabbi hefði verið tekinn frá okkur.
Það er mjög óraunverulegt að sitja
hér og skrifa minningargrein um
pabba minn sem er núna kominn í
faðm Baldvins bróður, mömmu sinnar
og allra sem hann saknaði.
Þú áttir góða ævi og ég á margar
góðar minningar um þig, t.d. úr öllum
veiðiferðunum okkar sem við fórum í
austur og upp á hálendið og þegar ég
fór með þér að fljúga. Það var mikið
fjör og miklar pælingar hvar ætti að
fljúga miðað við vindátt, þetta var það
sem þér þótti skemtilegast. Ég, þú og
afi áttum margar góðar stundir sam-
an þegar við byggðum húsið mitt. Ég
er heppinn að hafa átt þig sem pabba.
Elsku pabbi, tengdapabbi og afi.
Við geymum allar fallegu minning-
arnar um þig í hjörtum okkar og mun-
um aldrei gleyma þér. Þín er sárt
saknað.
Haukur Hauksson
og fjölskylda.
Elsku pabbi, ég get ekki enn trúað
að þú sért farinn. Ég næ ekki að skilja
hvernig manneskja getur tekið svona
góða sál í burtu frá mér. Elsku pabbi
minn, þetta er svo sárt, ég get ekki
lýst því, tárin ætla ekki að hætta að
streyma. Ég veit að þú vilt að ég sé
sterk en það er svo erfitt því ég elska
þig svo mikið. Ég vil að þú vitir að þú
ert besti pabbi sem ég hefði getað
óska mér.
Ég vil þakka þér fyrir að gefa mér
svo margar góðar minningar því við
áttum svo margar góðar stundir sam-
an. Ég get ekki hætt að hugsa út í
kvöldið áður en þú varst tekinn frá
mér hvað við töluðum um. Ég bjóst
aldrei við að það væri seinasta skiptið
sem ég myndi sjá þig hér á jörðunni
og þegar þú kvaddir mig að það væri
síðasta skiptið sem þú myndir kveðja
mig.
Ó pabbi, ég sakna þín svo sárt en þú
ert kominn til Baldvins sonar þíns og
móður þinnar. Ég bíð eftir að hitta þig
aftur, elsku pabbi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín dóttir,
Snjólaug Ásta.
Elsku Haukur. Okkur langar til að
kveðja þig með þessum fallegu orðum:
Ég þakka þér fyrir
þín fögru ár.
Ég þakka þér fyrir
að vernda mín sár.
Ég þakka þér fyrir
Haukur Sigurðsson
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HÁLFDÁN ÁGÚST JÓNSSON,
Klausturhólum,
Kirkjubæjarklaustri,
sem varð bráðkvaddur miðvikudaginn 12. maí,
verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju á Síðu,
föstudaginn 21. maí kl. 11.00.
Minningarathöfn verður haldin í Fossvogskirkju
fimmtudaginn 20. maí kl. 13.00.
Arnþór H. Hálfdánarson, Guðrún J. Jensdóttir,
Ágústa B. Hálfdánardóttir, Guðni Agnarsson,
Gunnhildur Hálfdánardóttir, Guðmundur K. Pálsson,
Jón Víkingur Hálfdánarson, Sigríður Erlendsdóttir,
Anna M. Hálfdánardóttir, Jón B. Skúlason,
Þórkatla Hálfdánardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGFRÍÐUR THEÓDÓRSDÓTTIR BJARNAR
kennari,
áður til heimilis
Fannborg 8,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn
9. maí.
Hún verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 19. maí
kl. 15.00.
Theódór Skúli Halldórsson, Ólöf Helga Pálmadóttir,
Gunnlaugur Halldórsson, Cécile Gaillot,
Sigfríður Guðný Theódórsdóttir,
Pálmi Ólafur Theódórsson, Birgitta Strange.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SÝRUS GUÐVIN MAGNÚSSON,
Lækjarsmára 8,
Kópavogi,
andaðist á Landspítala Landakoti laugardaginn
8. maí.
Útför hans verður frá Digraneskirkju fimmtudaginn
20. maí kl. 13.00.
Matthildur Katrín Jónsdóttir,
Viðar Sýrusson, Elsa Ólafsdóttir,
Ásta Kristín Sýrusdóttir, Jón Bernharð Þorsteinsson,
Reynir Sýrusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HRAFNS EINARSSONAR,
Vesturbrún 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fríðuhúss við
Austurbrún.
Signý Halldórsdóttir,
Katrín Hrafnsdóttir, Einar Malmberg,
Sigrún Hrafnsdóttir, Sigtryggur Baldursson,
Sólveig Hrafnsdóttir, Halldór Sölvi Hrafnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓHANN ÁGÚST GUÐLAUGSSON
frá Kolsstöðum
í Dölum,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 8. maí, verður
jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 21. maí
kl. 15.00.
Steinunn Erla Magnúsdóttir,
Árni H. Jóhannsson, Sigrún Elfa Ingvarsdóttir,
Bjarni Jóhannsson, Ingigerður Sæmundsdóttir,
Gunnbjörn Óli Jóhannsson, Freyja Ólafsdóttir,
Jóhann G. Jóhannsson, Þórdís Þórsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
vinsemd og hlýhug við andlát og útför elskulegs
föður míns, sonar, fóstra, bróður og afa,
ÞORSTEINS JÓNSSONAR
frá Laufási,
Vestmannaeyjum.
Anna Þorsteinsdóttir,
Anna Þorsteinsdóttir,
Guðlaug Ingvarsdóttir, Olav Heimir Davidson,
Ingólfur Ingvarsson, Snjólaug Elín Árnadóttir,
Sæmundur Ingvarsson, Björg Egilsdóttir,
Elínborg Jónsdóttir,
Ólafur Jónsson,
Jóhann Jónsson, Bergljót Blöndal
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
RAGNAR BENEDIKT MAGNÚSSON,
Ljósheimum 2,
áður Blesugróf 12,
andaðist á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi
laugardaginn 15. maí.
Vilborg M. Jóhannsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður minnar, ömmu, langömmu, systur og
mágkonu,
SIGRÍÐAR KRISTÍNAR JAKOBSDÓTTUR,
Hlíðarhúsum 3,
áður til heimilis á Hjallabraut 33,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki deildar 12G á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaka alúð og umönnun.
Ólafur Björnsson,
Þorbergur Björn Ólafsson,
Ólafur Friðrik Ólafsson,
Jóhann Helgi Ólafsson,
Vilhjálmur Snær Ólafsson,
Sigríður Erla Ólafsdóttir,
Diljá Ösp Þorbergsdóttir,
Þóra Jakobsdóttir, Bjarni Ellert Bjarnason,
Sigrún Jakobsdóttir,
Þórdís Jakobsdóttir, Stefán Gylfi Valdimarsson,
Gunnlaug Jakobsdóttir, Gunnlaugur Sigurðsson.